Vörður - 05.07.1924, Qupperneq 4
4
V 0 R Ð U R
Sögufjelagið.
Athygli skal vakin á því, aö
stjórn Sögufjelagsins hefir á-
kveðið að setja niður bækur
fjelagsins, bæði ef eitt rit er
keypt einstakt eða allar bækur
þess eru keyptar í einu lagi er
það hefir gefið út.
Sá, er allar bækur fjelagsins
kaupir í einu, (bókhl.verð 192
kr.) án þess að gerast fjelagi,
fær þær tyrir 122 kr.
Sá er gengur i fjelagið með
árstillagi, fær allar bækur þess
fyrir 80 kr., en nýir æfifjelagar
fá sömu kjör sem utanfjelags-
menn.
Fjelagiö hefir gefið út mörg
merkileg heimildarrit að sögu
landsins, svo sem Alþingisbæk-
ur Islands 1670—1619, Tyrkja-
ránssögu, Morðbrjefabæklinga,
Biskupasögur, Skólameistaratöl,
Æfisögur Jóns Steingrímssonar,
Fórðar Sveinbjörnssonar og Gísla
Konráðssonar, Dómasafn Lands-
yflrrjettar 1800—1824, Blöndu,
safn ýrnsra alþýðlegra fræða o.
m. fl. Hefir alþingi 1924 svift
fjelagiö bæði styrk til útgáiu
Alþingisbókanna og Dómasafns-
ins. Á fjelagið allerfltt uppdrátt-
ar nú, eins og reyndar flest bók-
mentafyrirtæki, og ættu menn
að vikjast vel undir vandræði
þess.
Allsherjamöt I. S. I.
Að venju var allsherjamót I.
S. I., sett 17. júnl.
Fólk streymdi saman, við
Austurvöll, og siðan, á leiö suð-
ur á íþróttavðll.
Numið var staðar við kirkju-
garðinn. Þar mælti prófrssor
Sigurður Nordal, fram ræöu til
minningar afmælisbarnsins.
Mæltist prófessornum vel að
vanda. Að þessu loknu, var
blómsveigur lagður á leiði Jóns
Sigurðssonar.
Síðan var haldið suður á 1-
þrótta röll. Setti formaður í. S. í.
A. V. Tulinius mótið.
Loks talaði fyrv. sendiherra
Sveinn Björnsson, brýndi dreng-
skap og góða framkomu fyrir
iþróttamönnum. Siðan hófst
mótið.
Veður var slæmt 17. júni.
Rokið skóf þurmoldina yfir vöil-
tn, enda varð lítill árangur þann
daginn. Seinni dagana var veð-
ur skaplegt, svo þátttakendur
nutu sin betur.
Árangur af móti þessu, er all-
góður. Ný met sett i 6 eftirfar-
andi iþróttum: Stangarstökk
(Ottó Marteinsson) 2,81 m. Þrí-
stökk (Osvald Knudsen) 12,40
m. Spjótkast (beggja h. saml.)
Helgi Eiríksson 65.405 m. Kapp-
ganga 5000 m. (Ottö Marteins-
son) 28 m. 12,8 s. Kringlukast
(beggja h. saml.) Fórður Jóns-
son 60.23 m.
Á þessu móti var kept, i
fyrsta sinn, i tveim atrennulaus-
um stökkum, hástökki og lang-
stökki.
1 mótinu tók þátt norskur
maður að natni Reider Sörensen
Hann mun vera 10. besti iþrótta-
maður í Noregi. Enda vann hann
bæði atrennulausu stökkin hæð-
arstökk 1,41 og langstökk 3,12.
Þar að auki stökk hann, þri-
stökkið lengdst 18,87 m.
Mótið fór eftir föngum, sæmi-
lega fram, neraa hvað dómarar
drógu leikinn að óþörfu. Allir
keppendurnir vóru úr Kjósar-
sýslu og Reykjavik. Það er leið-
inlegt, að mótið skildið ekki
vera sótt utan af landi. Væri
óskandi að næsta ár verði mót-
ið betur sótt.
Að lokum var Íslandsglíman
háð. Hlutskarpastur varð Sig-
urður Greipsson. Er þetta i 3
sinni i röð, sem hann verður
Glimu-konungur íslands. Verð-
laun fyrir fegurðarglímu vóru
veitt að þessu sinni. Er það
horn eitt mikið og skrautlegt.
Steinn Emilsson er gefandinn,
nefnir hann hornið Stefnuhorn,
á það að vinnast 3 í röð, svo
til eigna verði.
Enn þá er óútkljáð, hvaða fje-
lög muni hafa flest stig. Áhorf-
endur sóttu mótið ilia alla dag-
ana, mun það eiga rót sina að
rekja til fólksfæðar i bænum.
K.
Innlendar frjettír.
Lik Gtuójón* Flnnuon*
ar frá Melum í Melasv. er fyrir
nokkru fundið hjer i höfninni.
Rannsókn i því máli er hafln
aftur.
Mlnllngarntr. Þeir hafa
ekki breiðst meira út og er út-
lit fyrir að tekist hafl að stöðva
þé.
Veóráttan. Sffeldir þurkar
eru nú um alt land og lítur út
fyrir hinn mesta grasbrest af
þeim ástæðum.
Þrátt fyrir gróðurleysið og
harðindin hafa fjenaðarhöld orð-
ið góð og sauðburður gengið á-
gætlega.
Mœnnaótt gerir viða mjög
vart við sig einkum i Eyjaflrði.
Margir hafa dáið.
Preatastefnu og kenn>
aratuudl er nýlokið. Verður
sagt frá hvorutveggia i næsta
blaði.
Palladómurlnn um Jónaa.
Vegna Qarveru hr. Jónasar
mun palladómurinn biða þar
til hann kemur heim.
Til uppbótar fyrir dráttinn
mun mynd fylgja aí manninum
ef »Verði« tekst að ná í nokkra
sem honum líkar.
Vonar blaðið, að bæði les-
endur þess og Jónas kunni því
þökk fyrir.
Athugasemd.
í siðasta tbl. Varðar, þarsem
Iðnsýningarinnar var getið,
gleymdist að geta ölgerðarinnar
»EgilI Skallagrimssona.
ölgerð þessi hafði myndar-
lega sýningu á drykkarvörum
sinum.
Hafa vörur hennar þóttvand-
aðar og fallið neytendum vel i
geð.
Leidrjetting.
I blaðinu »Vörður«, sem út
kom laugardaginn 28. júní, þar
sem sagt er frá Iðnsýningunni,
stendur þessi klausa: Eggert
Kristjánsson, söðlasmiður sýnir
þar hina viðurkenda hnakka
sína og ýmislegt annað sem
Sleipnir vinnur. Þetta er ekki
rjett frá sagt. Hann á þar ekk-
ert sem aö reiðskap lýtur. Sá
eini hnakkur sem þar er til
sýnis er smíðaður af ísleiki Þor-
steinssyni á vinnustofu Jóns
Þorsteinssonar Laugaveg 48.
Kaupendur
Varðar eru vinsamlega beðnir
að athuga, að gjalddagi II. árg.
blaðsins var 1. Júlí.
Amerískt
lystiskip mikið, 20 þús. tonn,
kom hingað þann 3 júli. Far-
þegar sagðir um 400. Margt
þeirra fór.til Þingvalla, en aðrir
skoðuðu bæinn. Veður var hið
fegursta.
Skipið sr sagt afskaplega
skrautlegt, enda kvað kosta
skilding að ferðast með því.
Skipið heflr hjer rúmlega 2ja
daga viðdvöl.
Amerísku
flugmennirnir, sem eru að ferð-
ast í kringum hnöttinn koma
hingað i ágústmánuði. Sagt er
að þeir hafi engan flöt á landi
nægilega stóran til að lenda á
og muni þeir því lenda á ytri
höfninni.
Flugið befir gengið sæmilega
til þessa.
Vegna þrengsla
verða bæði frjettir og ritdóm
ar að biða næsta blaðs.
„Y örðnrs<
kcmur út á laugardegi i viku hverri
Verð 8 kr. árg. Gjalddagi 1. júli. —
Ritstjóri til viðtals dagl. kl. 10—12
f. h. Simi 1191. Afgreiðsla á Berg-
þórugötu 14, opin 11—1 og 5—7.
Simi 1432. — Kaupendur snúi sjer
til ufgreiðslumanns með borgun
yrir blaðið og alt sem að afgreiðslu
pess lýtur.
Athugið. 6—10 drengir
komi á Bergþórugötu 14 kl.
5—6 hvern laugardag að selja
»Vörð«. Góð sölulaun.
Kaupið og útbreið-
ið „Vörð“.
Prentsmiðjan Gutenberg.
ULL
þvegna og óþvenga kaupir
Hiilii. Garflars Gíslasaaar
Frá Landssímanum.
Frá 1. júli hækka talsímagjöld, eins og hjer segir:
25 aura gjald uppí 35 aura.
75 — — — 100 —
100 — — — 125 —
150 — — — 175 —
175 — — — 200 —
225 — — — 300 —
en 35 aura og 50 aura gjöldin haldast óbreytt.
Frá sama tima lækkar loftskeytagjald að því er snertir síma-
viðskifti við skip, skrásett hjer á landi, eins og hjer segir:
Strandargjald frá 40 ctm. niður í 25 ctm. fyrir orðið, minsta
gjald 2 fr. 50. Skipsgjald frá 40 ctm, niður í 10 ctm. fyrir orðið,
minsta gjald 1 fr„ en innanlands gjaldið (10 aurar fyrir orðið,
minsta gjald kr. 1.00), helst óbreytt.
Reykjavík, 1. júli 1924.
Smásölu verð
má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbaksteg-
undum, en hjer segir
V indlar:
Yrurao*Bat (Hírschsprung)
Fiona ---
Benourrel ---
Cassilda ---
Punch ---
ExoepionaleH ——
La VnlentlMfi------
Vasco <lo Oama-----
Kr,
21.85
25.90
27.00
24.15
25.00
31.65
24.15
24.15
7« ks.
Utan Reykjavíkur má verðið vera því
hærra, sem nemur flutningskostnaði frá
Rvik til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/°.
Landsverslun íslands.
Rvennaskólinn áBlöndaösi.
Kensla hefst á skólanum hinn 15. október í haust og stend-
ur til 14, mai í vor.
Kent er: Hússtjórn, vefnaður, alskonar kvenfatasaumur og
önnur handavinna og karlmannafatasaumur í sjerstakri deild. I
bóklegu er aðaláhersla lögð á íslensku, reikning og náttúrufræði.
Inntökuskilyrði á skólann eru þessi:
a. Að umsækjandi sje ekki yngri en 14 ára; undanþágu má
þó veita, ef sjerstök atvik mæla með.
b. Að hánn hafi engan næman sjúkdóm.
c. Að hann hafi vottorð um góöa hegðun.
d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sje greitt við
inntöku, og ábyrgð sett fyrir eftirstöðvum.
e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið
fullnaðarpróf samkvæmt fræðslulögum, ella gangi undir
inntökupróf þegar hanh kemur í skólann. — Skólagjald
er 75 kr. um námstimann.
Nemendur hafa haft matarfjelag og skólinn sjer um allar
nauösynjar.
Skólinn leggur námsmeyjum til rúmstæði með dýnum og
púðum. Annan sængurfatnað verða þær að leggja sjer til.
Umsóknir um inntöku á skólann sendist formanui skóia-
stjórnarinnar, alþm. Þórarni Jónssyni á Hjaltabakka, fyrir miðjan
september n. k.