Vörður


Vörður - 20.09.1924, Síða 2

Vörður - 20.09.1924, Síða 2
2 voRöun Kolaíðnaðurinn breski. Enda þótt að nátnumanna- verkfallinu yrði afstýrt sem ensk- ir námamenn boðuðu þann 1. apríl s. 1. á þó enski kola- iðnaðurínn við fremur erfið kjör að búa. Verðið á útflutningskolunum hefir að vísu haldist nokkurn veginn stöðugt siðan í ágúst- mánuði í fyrra, og leikur það á 24—26 shillings fyrir tonnið en útflutningurinn befir minkað í- skyggilega mikið síðan í árs- byrjun. Útflutningurinn í apríl- mánuði s. 1. nam t. d. að eins * rúmum 5 milj. tonna, og er það l1/* milj. tonna minna, en hann var að meðaltali árið 1923, en aðgætandi er, að þá var útflutn- ingurinn meiri en hann varfyr- ir styrjöldina. Það duldist að vísu eigi, að svo hlaut að fara, að útflutn- ingurinn minkaði að mun jafn- skjótt sem vinnan byrjaði aftur í Ruhrnámunum. Þessi mikla aukning, sem varð á kolaúlflutningnum frá Eng- landi var óeðlileg og bein af- leiðing af teppunni á kolaversl- uninni í Ruhr, sem stóð frá því i janúar 1923 og þar til um baustið sama ár, er Rjóðverjar hættu hinni óvirku (passivu) mótstöðu. Frá því að Mecum-samning- urinn var gerður, hefir kolaút- flutningur Þjóðverja til Frakka, Belgja, ítaliu og Luxemborg ver- ið svo mikill, að þessi lönd hafa ekki að mun þurft á kolum að halda frá Bretum. Arið 1923 ljetu fjóðverjar ekki meiri kol af hendi til Frakka og Luxemborg, en sem nam að meðaltali rúmlega 400 þús. tonn á mánuði, en í apríl- 'mánuði ljetu 1 milj. og300þús. tonn til þessara rikja eða rúm- lega þrisvar sinnum meira. Alt fyrir þetta hafa þær kola- byrgðir sem Þjóðverjar þurfatil eigin nota ekki gengið til þurð- ar, heldur aukist, því að um leið og mótstöðunni íRuhrlauk jókst framleiðslan svo stórkost- lega, að hún nemur nú 90°/o af því, sem hún var fyrir styrjöld. En auk þess hefir svo kola- vinsla aukist stórkostlega í hin- um fyrtöldu löndum sjálfum svo að eðlilegt er að útflutning- ur Breta til þessara ríkja hafi minkað mjög. Þegar á þetta alt er litið, var það auðsjáanlega óhjákvæmilegt að eftirspurnin eftir breskum kolum hlyti mjög að minka. Árið 1923 fluttu Englending- ar út 54,5 milj. tonna til Frakk- lands, Þýskalands, Belgfu, Hol- lands og ítaliu í stað 34,5 milj. tonna árið 1913, en á fyrstu 4 mánuðum ársins 1924 var út- flutningurinn til þessara landa rúmlega 572 milj. tonna minni en hann var á sama tima í fyrra. Og sennilega hefir munurinn orðið enn ipeiri í maí og júní. Til annara landa hefir út- flutningurinn þessa 4 mánuði orðið litlu meiri en hann var í fyrra, en hann er þó orðinn 35% af því sem hann var fyrir stríð og mjög má telja það vafa- samt, hvort hann verður nokkru sinni svo mikill sem hann var þá. Og víst er það að árið 1923 fluitu Bretar til Suður-Afríku að eins x/i« hluta þeirra kola, sem þeir selduþangað fyrir 1914 og sömuleiðis til Mið-Ameríku. Til Indlands nam útflutningur- inn helmingi og til Austur-Asíu einum þriðja. Eru þessi lönd nú flest sjálf- um sjer næg í þessu efni og sjeu þau það ekki fá þau kol nær sjer. Samkepnin verður því harð- ari með hverju árinu sem líður. Eitt af því, sem hefir ált hvað mestan þátt í því að draga úr eftirspurninni eftir kolum er hin sívaxandi olíunotkun á skip- um og f verksmiðjum. Árið 1913 taldist svo ti! að helmingur af kolaútflutningi Englands gengi til skipanna, en nú er þetta orðið stórkostlega breytt, sökum þess, að mikill fjöldi skipa, sem áður brendi kolum, brenna nú olíu. Og þrátt fyrir það þótt skip- um hafi fjölgað að mun hefir þó kolaneyslan farið mjög mink- andi bæði í Lundúnum og öðr- um enskum hafnarbæjum. Við þetta bætist svo afleiðing- arnar af siðasta kaupgjaids- samningnum við námamennina ensku, sem eykur framleiðslu- kostnaðinn ekki svo óverulega í ýmsum námum. En einsogmarkaðurinnstend- ur nú og meðan eftirspurnin er ekki meiri, eru engin líkindi til þess að eigendum kolanámanna takist að velta þessum aukna framleiðslukostuaði yfir á kaup- endur, og alt mælir með því, að þær námur, sem lakast hafa borið sig, verði að hæltarekstr- inum og er þegar farið að bóla á því. ?Hversu lengi þessi deyfð á kolamarkaðinum stendur, verð- ur tíminn að leysa úr. En svo mikið er víst, að út- litið fyrir kolamarkaðinn enska er sist betra en það var árin 1921—22. ^ En úr því fær enginn Ieyst, hver áhrif það gæti haft á Eng- land og heimsveldið breska ef kolaútflutningur þeirra þyrri að mun. Er það ekki einungis tekju- missirinn sem þar kemur til greina, þó mikill sje, heldur jafn- vel iniklu fremur það skarð, sem með því væri höggvið í áhrifavafd þeirra gagnvart öðr- um þjóðum. Kolin bresku hafa verið einn þátturinn, og hann ekkisáveik- asti, í sköpun heimsveldisins breska, og hrökkvi sá þátturinn eða þó ekki verði rneira en togni mjög á honum, er hætt við því að á fleirum togni. Er þetta eitt af mörgum á- hyggjuefnum sem Bretar eiga nú við að stríða, en þeir hafa fyr komist í hann krappan og þö ekki gefist upp. Nokkur orð um „Fjelagsmál bænda“. í 31. og 32. Ibl. »Tímans« er 6 álna löng grein, skrifuð undir fyrirsögninni » Fj e 1 a g s m á 1 b æ n d a «. Fylgir þar með skýr- ing frá ritstjóranum, og segir í henni, að grein þessi sje brjef sem sent hafi verið til ýmsra fjelagsmanna sökum þess, að i Vesturskaftafellssýslu hafi verið hafin mjög »rætin ofsókn« gegn bændafjelagsskapnum, Kaupfje- laginu í Vík og Sláturfjelaginu. Ekki er þess getið, í hverju þessi »rætna ofsókn« sje fólgin, nje heldur, hverjir hafi gert hana. Hefði það þó verið viðkunnan- legra, en með því að höf. hefir skotist yfir það, er hætt við, að þetta verði dæmt dautt eiús og hvert annað staðlaust fleyp- ur, ekki allskostar ólíkt flestu því, er frá penna eða munni Tímaritstjórans kemur. Ekki ■hefir þess orðið vart, að brjef þetta hafi verið sent út hjer í sýslu, og liggur því all- nærri að álykta, að »brjefið« muni hafa orðið til við skrif- borð ritstjórans sjálfs, enda er enginn undirritaður, og ber það óneytanlega vott um, að þaðsje einn af ófeðruðu króunum. En hitt er á allra vitorði, að í bein- an legg má jafnaðarlegast rekja ætterni þeirra til forsprakka »Títnaklíkunnar«. Nægir að minnast á vantraustsyfirlýsing- una sælu á þingmanni sýslunn- ar, sem aliir þeir, er hlut áttu að, skammast sín nú fyrir, svo að enginn þorir að nefna hana. Grein þessi,Fjelagsmál bænda, er aðallega ofin samau aftveim þáttum, hóflausu skrumi um kaupfjelagið hjer og afrek þess á annan bóginn, en svartasta niði um kaupmennina hjer í Vík, á hinn. Á »Tímans« vísu er greininni skift í marga kafla með feitletruðum fyrirsögnum. Eftir dálítinn inngang kemur »Alment yíirlit«. í þessum kafla kennirmargra grasa. Er þar annað veifið sár- an kvartað yfir því, hve 'sam- kepnin sje mikil og afar örðug kaupfjelaginu, að kaupmenn selji vörur sínar svo lágu verði, að enginn hagnaður sje að sölunni. Kaupfjelagið hafi því neyðst til að selja sínar vörur meö þessu lága verði kaupraanna, og láta þá algerlega ráða verðinu. Af því hafi svo leiti, að kaupfjelag- ið hafi ekki grætt neitt, og því ekki sjeð sjer fært að reka sölu- deild sína sum árin. Hitt veifið er svo fárast yfir því, »að geysi mikill gróði« hafi streymt til kaupmanna öll stríðsárin, ogþá jafnframt grobbað af þyí, að kaupfjelagið hafi þá grætt stór- fje á tveim árum. Svo mikil er rökfestan og samkvæmnin í greininni! Þá sakar höf. kaupmenn mjög um það, að þeir hafi hækkað eitthvað þær vörur, sem þeir áttu fyrirliggjandi, þegar stríðið skall á, og hin geysilega verð- hækkun varð allstaðar, bæði innanlands og erlendis. Segir hann, að því hafi haldið áfram öll stríðsárin, að vörur hafi alt- af verið að hækka í verði. Þetta telur hann óhæfu og segir þar um : — »Allir fundu, að þetta var ranglátt«. Manni verður á að brosa að veslings höf., að hann skyldi ekki bera gæfu til að segja: »Allir fundu að stríð- ið var ranglátt«. Sannleikurinn er sá, að vör- ur, sem lágu hjá kaupmönnum, þegar mesta verðhækkunin varð annarsstaðar, voru nijög lítið hækkaðar og sumar teg. ekki neitt. Mikið vantaði á, að verð- Iag hjer á ýmsum tímum væri í neinu samræmi við það, sem geröist víðast annarsstaðar, og það svo mjög, að vörur voru stundum miklu ódýrari hjer en hægt var að fá þær á markað- inum erlendis. Þetla fundu rnenn líka mjög vel, því mikil eftir- sókn varð eftir þessum ódýru vörum. Flestir sem efuihöfðu á,reyndu því að byrgja sig upp til langs Kjallarí »Varðar« StjörnurikiS. Sólin. Hltaeinlug. Hðll htta. 14. Hitinn er að jafnaði mældur í stigum. Þó er til annað hitamál, sem nefnist hitaeining. Það er sá hiti, sem fer til þess að hita 1 gr. af vatni, 0 stigs heitu, upp í 1 slig á Selsíus. Það er eðli hitans að koma fram á einum stað, ef hann hverfur á öðruin. Hitinn er eilt gerfi orkunnar í heiminum. En orka heimsins virðist altaf söm og jöfn. Hún færist úr stað og breytir um gerfi, en vex eigi nje gengur til þurðar. Upptök hennar eru því öllum hulin. Hún er eilíf. FJjólt á litið virðist hitinn stundum hverfa með öllu. Fáein dæmi skulu sýnd: 1. Sje lálinn ís — svo sem 10 stiga kaldur — i ketil yfir eld, þá hverfur frostið smátt og smátt úr ísnum eins og væntu má. — Hiti eldsins hefir yljað ísinn. Hitinn hefir flutst úr stað. 28 2. Nú er isinn orðinn 0 stigs heitur. En þá hitnar hann eigi meira þó eldurinn logi. En nú tekur hann að bráðna og sje stöðugt hrært í vatn- inu þá hefir það ávalt sama hitastig uns ísinn er horfinn. Bæði ísinn og vatnið er 0 stigs heitt. Hitinn hefir horfið í vatnið án þess að hita það. Hann hefir breytst í svonefndan bundinn hita. 3. Nú má haída áfram og vatnið hitnar, uns það nær 100 stigum. Þá slað- næmist aftur hitnunin. 4. Vatnið breytist um í gufu. Gufan er einnig 100 stiga heit um leið og hún rýkur upp úr sjóðandi vatninu. Svo lítur út sem hitinn hafi orðið að engu, en nú felst hann bundinn í gufunni. Miklum liita þarf að eyða til þess að breyta vatni i gufu, þó mælitækin sýni gufuna jafnheita vatn- inu, að suðunni lokinni. 5. Sjeu nú tæki til að innilykja gufuna og hita síðan þá hitnar hún stöðugt upp í 3000 stig. Má þar rekja feril hitans á sama hátt og i 1. og 3. grein. 6. En nú eykst hitinn eigi um stund, heldur bindur sig í efninu. Ný breyt- ing hefst og vatnsgufan leysist upp í frumefni sín: vatnsefni og súrefni. 29 Lengra verður eigi komist, á því stigi sem vjer stöndum. En feikna hiti binst við sundurliðun þessara efna. Tilraunir sýna að tæp 80 gr. af 1 stigs heitu vatni þarf til þess að bræða 1 gr. af ísi, 0 stigs heitum. Bundinn hiti vatns er því 80 hitaeiningar í gramm- inu. Einnig hafa menn fundið að bund- inn hiti gufu er 538 hitaeiningar í grammi hverju. En við sundrun á 1 gr. af 3000 stiga heitri vatnsgufu bindast 3800 hitaeiningar. Eigi er liklegt að náttúran látí hjer staðar numið. Við hærri hitastig gæti hugsast að hún bindi enn meiri hita. Safnar hún þannig orku sinni í góðu árunum og geymir til hinna hörðu. Hiti þessi losnar eigi við hlutina fyr en breytingar þessar ganga sömu leið til baka. Til þess að leysa hann til fullnustu þurfa frumefni gufunnar að sameinast, gufan að breytast i vatn og vatnið í ís. Af öllu þessu getur athugull lesari sjeð að efni geta miðlað hita um stund- arsakir án þess að lækka hitastig sitt. Hyggja sumir að þetta sje mikill þáttur í viðhaldi sólarhitans. 30 Sénn 15. Af hita þeim, sem berst til jarðar vorrar frá sólunni, geta menn áætlað hitalát hennar í heild sinni. Skulu fáein dæmi sýnd til þess að gefa hugmynd um þau feikn, sem það- an stafa sí og æ. Sá hiti, sem fellur að' meðaltali á fermetra hvern á yfiiborði jarðar árlega, mundi nægja til þess að lyfta 100 tonn- um 10 km í loft upp. Sá hiti, sem fellur árlega á jarðar- hnöttinn allaií, væri nægur til þess að bræða utan af honum öllum 33 metra þykkan jökul á sama tima. Auvifað fer þó örlítill hluti sólarhit- ans til jaröarinnar. Sá hluti lelst mönn- um íXTöiiHnnnnr. en það telja menn % hluta af þeim hita, sem lendir á öllum hnöttum sólkerfisins. Má af því sjá að hverfandi lítið staðnæmist á hnöttum sólarinnar. Mest alt fer beina leið út í endalaust rúmið án þess að koma við i heimkynnum hennar. Alt hitalát sólar reiknast mönnum nálega 4.1038 hitaeiningar á ári hverju1). Sjest best hve sú tala er feikna há á því að árlega missir hvert grainm í 1) Nákvæuiar telst það 3e • 10B8 en það er 3» ■ 10 með 32 núllum.

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.