Vörður


Vörður - 27.09.1924, Blaðsíða 4

Vörður - 27.09.1924, Blaðsíða 4
4 V ö R Ð U R ráðhússins, og hafði hann þó birt í blöðunum, áður en dóm- urinn var uppkveðinn, hvernig dómurinn myndi falla. Dómarinn fékk fjölda af hót- unarbrjefum áður en dómurinn fjell. — Hótuðu sumir að drepa hann, ef þeir yrðu dæmdir til deuða, en aðrir, ef hann dæmdi þá í lífstíðar fangelsi. Stórkostieg fjársvik hafa nýlega sannast í Svíþjóð á einn af þektustu foringjum járnbrautar verkamannanna sænsku Carlbo að nafni, sem nú er nýlátinn. — Var hann gjaldkeri í fjelagi sænskra járnbrautarmanna og naut hjá þeim hins mesta trausts. — Fjekk hann þau eftirmæli í Socialdemokratablöðum ýmsum, að hann hefði verið sjerstaklega vandaður og heiðarlegur maður, en þegar farið var að athuga bókfærslu hans nánar, eftir að hann var kominn til feðra sinna, kom það i dagsljósið, að hann hefði dregið ólöglega undir sig um í1/i miljón krónur, sem hann hafði eytt í ýmiskonar gróða- bralisfyrirtæki á styrjaldarárun- um. Alþýðublaðið hefir gleymt að geta þessa mæta manns, og Jónas hefir heldur ekki minst hans í Kristjaníu pistum sfnum. Roald Asmundseu hinn frægi pólarfari hefir nýlega orðið að gefa sig upp sem gjaldþrota vegna kostnaðar, sem hann hefir haft af leiðangrum sfnum og undirbúningi við þá. — Hann er einn af frægustu mönnum Norðmanna, og sýnist tæpast vansalaust af norska rfkinu, að það skyldi ekki hlaupa undir bagga með honum. iUorgan, ameríski auðmað- urinn nafntogaði, hefir enn á ný boðið Frökkum 100 milj. dollara lán, og er talið að sú upphæð nægi Frökkum til að halda gengi sinu uppi, en án stórrar lántöku mundi það tæpast hafa hepnast. — 1 martsmánuði i vetur lánaði hann þeim aðra 100 miljónir dollara, og gátu þeir með því stöðvað gengið sem fjell þá óð- fluga og sýndist vera á hraðri ferð f sömu eyðileggingu sem þýska markiö. SviiRlendingar og ítalir hafa gert samning með sjer um það, að leggja öll deilumál sem upp kunna að koma á millum þeirra i gerðardóm, en ekki hafa nánari fregnir komið um hvernig sá gerðardómur skuli skipaður. Innlendar frjettir, Húsbruni. Að kveldi þess 17. þ. m. kl. um 7 kviknaði í húsinu nr. 93 við Hverfisgötu hjer í bænum. Var það timbur- hús allstórt og áfast við vestur- enda þess skúrbygging úr steini. — Brunaliðið kom fljótt á vet- vang og tókst að slökkva eldinn áður en húsin fjellu, en þau eyðilögðust að mestu og megin- ið af innanstokksmunum brann eða skemdist stórkostlega. Útbyggingin var vátr. fyrir 11 þús. kr. og mun það hafa látið nærri rjettu lagi, en aðalhúsið var vátrygt fyrir að eins 12 þús. Byggingaref ni. Vjer höfum fyrirliggjandi: Þakjárn nr. 24, do. » 26, Sljett járn » 24, Faksautn, 2 ^/z", Pakpappa, »Víking«, do. »Glefant«, do. sandpakka, Panelpappa, Gólfpappa, Pappasaum, Gaddavfr, Saum, 1"—6", Ofna, Bornholms, Skipsofna, Eldavjelar, Bornholnis, Pvottapotta, Ofnrör, Eldf. stein & leir, Zinkhvftu, Blýhvitu, Fernisolíu, Allsk. málningarvörur. H.f. Oarl HLöepfner kaupir hæsta verði (Móttaka i Skjaldborg við Skúlagötu). GÆRUR kaupjr hæsta verði r J ö n O laísson híiuí OOO, simueínl: Gnitar. Móttaka Sjávarborg, (sími 1241). © © © Tryggingar gegn eldsvoða hvergi ódýrari en hjá O. Johnson & Kaaber. Aðaluuiboðsmenn á íslandi fyrir: Brunabótafjelögin „Magdeborg", „Víking", „Norí & Syd" 09 „Auto". Hvítárbakkaskólinn. Nokkrir nemendur geta enn fengið rúm í skólanum næsta vetur. Kendar eru þessar námsgreinar: íslenska, íslandssaga, danska, enska, mannkynssaga, landafræði, dýrafræði, grasafræði, eðlisfræði heilsufræði, söngur, leikfimi og hannyrðir, svo og þýska og bók- hald þeim, er þess óska. Kostnaðurinn var siðastliðinn vetur ca. 315 kr. fyrir stúlkur og ca. 382 kr. fyrir pilta. Umsóknir sendist undirrituðum, eða Birni Jakobssyni á Varma- læk (simleiðis). Hvítárbakka, 22. sept. 1924. <jr. A. Sveinsson. GAR N I R ‘“£232 Spyrjið um verðið hjá oss, áður en þjer seljið öðrum <j* arnahreinsuniii. ( J « K ÓLAF8§OI. - Síiul 606). Símnefni: Gnítar. Móttaka í Sjárarborg. — Sími 1241. kr„ en núverandi eigandi þess hajði keypt það fyrir rúmu ári síðan á 23 þús. kr. og verður hann því fyrir miklu tapi. Inn- anstokksmunir allra íbúenda húsanna, 5 að tölu, voru óvá- ttygðir. Orsökin til eldsvoðans var sú, að einn af leigjendum útbygg- ingarinnar, Guðmundur Guð- mundsson að nafni, hafði tekið að sjer að hreinsa 4 lítra af »pólitúr« fyrir eiganda skúrsins, sem einnig bjó þar, Ólaf nokk- urn Lárusson, sem orðinn er alkunnur hjer í bænum fyrir brennivínssölu. Pólitúr þessum helti Guð- mundur á suðudúnk, sem hann setti á olíugasvjel, en gætti þess ekki, að illa var um lokið á dúnknum búið svo að pólitúrin vall upp úr og rann niður í eldinn. Varð bálið þegar svo mikið að Guðmundur gat við ekkert ráðið. Peir ólafur og Guðmundur voru þegar settir í varðhald og viðurkendu það sanua i málinu, að tveim dögum liðnum. Eigandi »pólitúrsins« fjekk 1000 kr. sekt, en sennilega verð- ur mál höfðað gegn bruggaran- um fyrir gáleysisbrennu og ligg- ur fangelsi við þeim verknaði ef skaðinn er ekki að fúllu bættur. Húsrannsókn framdi lög- reglau nýlega í húsinu nr. 8 A við Bergátaðastræti, eign Sig- urðar Berndsen, og fann hún þar hreinsunartæki og »pólitúr« hjá eigenda hússins og hjá ein- uin leigjandanum, Ásgeiri Ás- mundssyni, nokkra litra af brennivíni og talsvert af lands- verslnnar portvíni og voru verð- miðarnir af flöskunum skafnir af. Sigurður Berndsen kannaðist við að vera eigandi »pólitúrs- ins« og suðutækjanna og fjekk hann 1000 kr. sekt og 2 aðrir, sem verið höfðu honum til að- stoðar við bruggunina og út- vegun »pólitúrsins«, annar 500 en hinn 200 kr. Mál Ásgeirs Ásmundssonar er óútkljáð enn. Heldur hann því fram að Sigurður Berndsen hafi beðið sig fyrir brennivínið til geymslu, en Sigurður neitar því harðlega og er talsvert vandasamt að vita hver sann- ara segir. l'iskiafllnn. Hann er enn þá ágætur bæði hjá þeim tog- urum sem veiða í salt og ís. — Peir sem í salt veiða fiska á sömu slóðum og í vor, útaf ísa- fjarðardjúpi og er ekki sjáan- legt að nokkurt lát sje á fiski- gnægðinni þar. — ísfiskssalan hefir gengið vel og eftirspurnin og verð á saltfiski fer fremur vaxandi en minkandi. JÖrundiir BrynJólfsBon alþingismaður hefir legið rúm- fastur mikin hluta sumarsins og er talið óvíst að hann verði fær til þingsetu næst. iigurAnr Sig;urössoii frá Kálfafelli er nýkominn austan úr Rangárvallasýslu eftir nokkra vikna~dvöl þar. Segir hann nýtingu hafa orð- ið ágæta í Árnes- og Rangár- vallasýslum og grassprettu í meðallagi. — Flestir þar eru nú að enda við að hirða hey sin. H vítárbakkaskóllnn. Peir sem ætla sjer að fara á alþýðuskóla í haust ættu að gefa góðar gætur að auglýsing- unni um Hvítárbakkaskólann hjer í blaðinu. Er skóli þessi bæði góður og ódýr. GengiA hefir verið stöðugt nú síðustu dagana. Pundið á 30 kr. og dönsk kr. verið lík. Sláturtíöiu er nú byrjuð hjer sunnanlanda. Verð á kjöti mun verða heldur hærra en í fyrra. Helgi Bergs hefir verið ráðinn framkvæmdastjóri Slát- urfjelags Suðurlands í stað Hannesar Thorarensen, sem nú veitir áfengisversluninni forstöðu. Ólafur HLjartanss., bróðir alþingismanns Jóns Kjartans- sonar hefir verið settur kennari við Eiðaskóla. H.rlstján Albertsou rit- höfundur hefir verið ráðinn leiðbeinandi við leikhúsið í vet- ur. — Má mikils af honum vænta því að hvorutveggja er, að hann þekkir vel til alls, sem að leiklist lýtur eftir hina löngu dvöl síua erlendis viða í lönd- umog svo er hann sjálfur leik- ritaskáld. kíguröur H.ristjánsson bóksali varð sjötugur 23 þ. m. Sýndu prentarar og ýmsir aðrir þessum mæta borgara ýmiskonar vírðingarvott, en hann færði styrktarsjóði prentara 1000 kr. minningargjöf. Atliygli skal vakin á aug- lýsingu Ríkharðs Jónssonar. Kennir hann heimasmíði og teikningu í vetur og ættu þeir, sem við þá hluti fást, ekki að láta ganga úr greipum sjer að njóta tilsagnar jafnfærs manns í þeirri grein og hann er. Símagjöld við útlönd hafa nýlega lækkað að mun sökum gengishækkunar íslensku króu- unnar. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.