Vörður


Vörður - 20.06.1925, Blaðsíða 2

Vörður - 20.06.1925, Blaðsíða 2
2 V Ö R Ð U R ►OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOf V ÖRÐUK kemur út á 1 a ugar d ö g u m Ri tstjórinn: Kristján Albevtson Túngötu 18. Símar: 1452, 551, 364. Afgreiðslan: Laufásveg 25. — Opin 5—7 siðdegis. Sími 1432 Verð: 8 kr. árg. § Gjalddagi 1. júlí. ♦OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÝ um botnvörpuDgum og fyrir austan þær var mergð af Vest- manneyja mótorbátum á fískl. Við fórum nærri sumum; áein- um slóð ungur maður og púðr- aði sigarettu i ákafa, rjett eins og hann væri inni hjá Rosen- berg, en ekki við vinnu sína út á sjó. Á Skallagrími sá jeg eng- an reykja, en í neftóbaksbind- indi held jeg að fáir hafi verið þar, og jeg taldi það ekki ó- maksins vert að prjedika það. Strjálingur var af botnvörp- ungum, enskum og þýskum i Fjallasjó og Mýrdalssjó ogfjöldi af þýskum i meðallandssjónum, fíestir eða allir þó utan land- helgi, og voru þeir allir að veið- um, en ekki virtist skipstjóra vert að stansa og kasta innan um þá, sagðist aldrei fá bein, þar sem Þjóðverjar væru. Kl. 3 morguninn eftir var það þó gert út af Ingólfshöfða, þar sem enn voru nokkrir Rjóðverjar, en afli varð sáralitill. Enginn sást nú frönsk skonortan alla leiðina. ólíkt þvi sem áður var, þegar þær i ungdæmi mínu voru svo hundruðum skifti með endilangri suðurströndinni á þessum tima ársins. Kl. 8 að morgni 23. apríl (á sumardaginn fyrsta), vorum við út af miðri Lónsvík. Var kast- að þar tvisvar, en afli ekki eins góður og skipstjóri vildi. Var því farið lengra, auslur á það, sem jeg vil nefna Papagrunn, grunDÍlákann rniili Lónsvíkur- djúps og Berufjarðarálsins, og numið staðar 12—15 sjómilur út af Eystra-Horni, og þar vor- um við. eða á þeim slóðum á 60—80 fðm. dýpi næstu 5—6 daga, því að afli reyndist þar góður. Fyrsta daginn fengum við þarna 20 poka frá kl. 1 til kl. 10, og svipað var það næstu daga, einn til áttskiftur poki af þorski, stútungi og vænum þyrsklingi að jafnaði, nokkuð af stórufsa, lítið af öðrum fiski og þvi betur ekkeit af smá- þyrsklingi þeim, sem sagt er að veiðist stundum þau ókjör af á »Hvalbak« á vorin. Veðrið var gott þessa daga, vindur oftast við norður, vana- lega hægur, þegar ekki var far- ið langt austur fyrir Hornið, en þegar kom lengra austur, úr landvari, var stóraslormur og krappur sjór, sem gerði erfiðara að fiska. Landsýn var hin besta og óviðjafnanlega lilkomumikil er hún á þessum slóðum. Snæ- fjallakongurinn íslenski, öræfa- jökull, blasti við lengst í vestri, alheiður fyrstu dagana, svo Suðursveitarfjöllin og Horna- fjarðarskriðjöklarnir, Vestra- Horn og Lónsvíkurfjöllin næst manni og til norðausturs mikið af Strandfjöllum Suður-Múla- sýslu, með Búlandstindi, Súlum upp af Kambanesi, Reyðarfjalli, með Halakletti (eins og tröll- auknu reyðarbaki) og Gerpi eins og endapunkti. öll voru fjöllin enn f hreinum vetrarbúningi, hið efra, en neðan til í hlíðum Lónsfjallanna snjólitið og hamr- ar allir og hengiflug, þar sem snjó aldrei festir verulega, voru að mestu auð og gerðu svip fjallanna enn fjölbreyltari. Við vorum þarna nokkura daga, ekfs og áður var sagt og toguðum dag og nótt, svo að nú fjekk skipstjóri og skips- höfn lítið næði og nóg að gera — og jeg líka. Botninn var yfirleitt harður, vaxiun ýmsum »gróðri«, o: ýmsum dýrum, sem líkjast fljótt á litið fremur jurt en dýr- um og fiskimcnn hyggja vana- lega vera jurlir, enda þótt bæði litur þeirra sje ekki jurtanna rauði eða brúni og dýpið miklu meira en það sem botngróður þrifst á. Þessi dýr eru mest svampar, polýpsar, mosakórallar og reglulegir kórallar, sem geta í Berufjarðarálum orðið allvæn- ar, metraháar bríslur. Svo er mergð af fögrum ljósrauðum fimmhyrndum sæstjörnum og marghyrndum sæsólum, margt af kuðnngum, einstaka gadda- krabbar, þyrnóttir og ýgir á svipinn, með uppspertar tengur, hvergi hræddir hjörs í þrá, ef í það fer, og svo ekki að gleyma sæfíilunum ineð fínu nöfnin og stóru ígulkerunum, sem eru eins og vel úli látin barnshöfuð — ljómandi falleg, þegar búið er að þrifa þau og þurka. Framh. B. Scem. Alþýðublaðið dæmt. Brief og svar. Ritstjóra Varðar hefir borist svohljóðandi brjef frá ritstjóra Alþýðublaðsins: Reykjavík, 12. júni 1925. Herra ritstjóri! Jeg hefi lifað það, að þjer gerðust dómari yfir öllum blaða- mönnum nútímans á þessu landi, og komist að raun um fádæma stjettardómara-hæfi- leika yðar, þar sem þjer sneidd- uð af aðdáanlegri lagni hjá á- deilu á blaðamensku ritstjór- anna við auðvaldsblöðin. Hitt varði mig ekki að á daga mína myndi drífa, að þjer gerðust yfirdótnari yfir lægri dómstól- um landsins, en þó hefir það nú að borið. 1 síðasta tölublaði »Varðar« hafið þjer hækkað sekt þá, er mjer hefir hlotnast fyrir undirdómi í gengismáli h.f. »Kveldúlfs« á hendur mjer, úr 200 kr. upp í 250 kr. Ganga mátti að þvf visu, að h.f. »Kveld- úlfi« þætti sektin lág og lítið muna um hana fyrir bágstadd- an ríkissjóöinn, en jeg bjóst þó eklii við, að þessi leið yrði far- in til að hækka hana. Jeg fæ rnjer ekki til, þótt greinir Alþýðublaðsins um hið óheyrilega gengisbrask í fyrra sjeu kallaðar »uppspuni« um h.f. »Kveídúlf«, — lít á það eins og eftirtektarvert ritháttar- einkenni á ihaldsblaði. Með alþýðlegri kveðju Hallbjörn Halldórsson. Eflinnáli: Finst yður ekki, herra ritstjóri! að það myndi vera þægileg tilbreyting fyrir lesendur »Varðar« að fá ofan- ritaðan brjefmiða til lestrar i næsta tölublaði »Varðar«? Sami H. H, Herra ritstj, Hallbjörn Hall- dórsson! Þjer afsakið þó að jeg eyði fáum orðum að þessari prent- villu (250 í stað 200), sem slæðst hefir inn í frásögn mína um dóminn yfir svívirðingum yð- ar um Iíveldúlfsfjelagið. Yður dettur það varla í hug í alvöru, að nokkur maður trúi því, að það sjeu brögð og refjar af minni hálfu að hafa sagt rangt til um sekt yðar. Það er auð- vitaö, að öllum mönnum hlýtur að standa gjörsamlega á sama um það, nema yður sjálfum, hvort þjer borgið 50 kr. meira eða minna í ríkissjóð fyrir urn- mæli yðar. Jeg verð lika að álíta, að ef íslensk blöð gerðu sig aldrei sek um meiri ókurteysi í rit- hætti en það er, að kalla »upp- spuna« ummæli sem dæmd hafa verið »dauð og ómerk« af dóm- stólum landsins — þá myndi vist fáum ofbjóða orðbragðið i blaðamensku vorri. Úr því jeg er nú farin að svara yður, hr. ritstjóri, þá langar mig til þess að koma viðar við, en þjer gerið í brjefi yðar. Rað er upphaf þessa máls, að blað yðar gerir ítrekaðar árásir á h.f. »Kveldúlf« og telur að það hafi í samráði við bankana unnið að gengislækkun ísl. krónunnar, sjálfu sjer i hag, en öllum almenningi í óhag. Retta voru þungar sakargiftir, fjelagið taldi sig hafa hreinar hendur í þessum efnum og stefndi yður fyrir meiðyrði. Þegar fyrir sáttanefnd kom (jeg styðst hjer við fiásögn blaðs yðar í fyrra), þá vilduð þjer með eDgu inóti kannast viö að ummæli yðar væru »æru- meiðandi«. Þá var reynt að skýra það fyrir yður, hvers vegna Kveldúlfur teldi það æru- meiðandi, að vera sakaður um að hafa í eiginhagsmunaskyni gert allan almenning á íslandi fátækari. »Þá afstöðu kvaðst ritstjórinn (þ. e. Hallbjöin Hall- dórsson) ekki skilja, því að frá sjónarmiði gróðamanna væri það miklu fremur hól um þá, ef sagt væri um þá, að þeir hefðu vit á að færa sjer hent- uga aðstöðu til gróða í nyt« (Alþ.bl. 28. maí þ. á.). Rað virðist hafa komið flatt upp á yður, að nokkur »gróðamaður« skyldi vera svo innrættur, að hann ekki miklaðist af því í hjarta sínu, að blöðin töluðu um hve laglega lionum hafi tekist að sópa til sín auðæfum Lafidnám ísleudinp á Grænlandi. (Grein þá, er hjer birtist í þýð- ingu, hefir próf. Friðpjófur Nansen ritað og birtist hún i Politiken fyr- ir skemstu. Par sem Nansen jafnan talar um norsk-íslenska landnámið, pá er hjer um sögulega fölsun aö ræða, eins og ekki er ótitt enn pann dag í dag, þegar Norðmenn eru að eigna sjer að hálfu eða fullu afrek Islendinga til forna. Pað er auðvitað, að íslendingar fundu og bygðu Grænland, hitt er annað mál, að nýlenda þeirra dó út eftir að hún gekk Noregi á hönd. Að öðru leyti er efni greinar Nansens svo merkllegt, að vjer teljum rjett að pýða hana). Undir stjórn danska fornleifa- fræðingsins dr. Poul Nörlunds’s var 1921 grafið í gamlan nor- rænan kirkjugarð íSuður-Græn- landi. Uppgröftur þessi kallar mjög á athygli vor Norðmanna, þar sem hann varpar nýju ljósi yfir slðustu afdrif hinnar norsk- fslenslcu nýlendu þar i landi. Frá uppgreftrinum er skýrt í nýútkomnu bindi af »Meddel- elser om Grönlaud« (67. bindi, Khöfn 1924), sem flytur þrjár ágætar ritgerðir eftir dr. Póul Nörlund, próf. Finn Jónsson og próf. Fr. C. C. Hansen. Kirkjugarðurinn liggur á nesi, sýnilega hinu forna Herjólfsnesi, rúma 50 kilometra frá suður- odda Grænlands. Hann liggur niður við ströndina og hefir sjórinn því miður á liðnum öld- um skolað burt nokkrum hluta hans. Par fundust leyfar og vegs- ummerki fram undir 200 grafa, sem flestar hafa varðveist illa. Flest líkin voru molnuð niður, af 25 einstaklingum voru bein svo heil og ósködduð, að hægt var að geyma þau og rannsaka. Þar við bætast tvær hauskúpur, sem fundust nokkrum árum áður. Mörg af likunum voru sveip- uð klæðum, var nokkur hluti þeirra svo óskemdur að hægt var að geyma þau, og eru þau mjög merkileg, þar sem þau varpa ljósi yfir lífskjör fólksins. Pað sjest aö kápurnar hafa verið útslitnar og bættar en sum- ar þeirra benda aftur á nokkra velmegun. Pessi föt sýna, að fæstar af þeim gröfum, sem hafa veriö rannsakaðar, geta verið eldri en frá síðari helmingi 14. aldar eða fyrri helmingi 15. ald- ar, sumar þeirra geta jafnvel tæpast verið eldri en frá mið- biki 15. aldar, vegna þess að föt og höfuðbúnaður með þessu sniði, tók þá fyrst að tíðkast í Evrópu. Petta ætti því að benda á að Grænlendingar hafi á þeim tímum haft mök við Evrópu- þjóðir, og er það mun seinna en sögulegar heimildir skýra frá. Sennilegast virðist, að sumar grafirnar sjeu enn yngri, því á- reiðanlega hafa klæðin verið notuð um hríð, áður en þau voru grafin. Beinagrindurnar hefir rann- sakað próf. Fr. C. C. Hansen í Khöfn. Pær bera greinilegan vott um úrkynjun, sem próf. Hansen telur að sjerstaklega hafi stafað af matarskorti og sjúkdómum, svo sem beinkröm og kanske í einstöku tilfellum berklum. Marg- ar af konunum hafa haft svo vanskapaðar mjaðmagrindur, að þær geta naumast hafa fætt lif- andi börn. Fullorðnir karlmenn hafa verið tiitakanlega lágirvexti. Prír hinir hæstu hafa verið 153, 158 og 162 cm. áhæð, enhæstu konurnar um það bil 145 cm. og mjög veikbygðar. Petta er afskaplega lágur vöxtur í sam- anburði við meðaltalshæð hins norska kyns nú á dögum. Pað er og eftirtektarvert að tennur allra manna, líka þeirra sem dáið hafa á unga aldri, hafa verið óvanalega eyddar, ogbend- ir það til þess, að í fæðu þeirri, sem þeir neyttu að staðaldri, hljóti að hafa verið mikið af sandi og kísilblöndnu ryki. Petta má skýra svo, að því er próf. Hansen segir, að þeim hafi vantað nægilega mikið afvenju- legri fæðu og í hennar stað orð- ið að neyta þurkaðs laufs, hre'n- dýramosa, mosa, þangs og ýmsra annara jurta o. s. frv. Sumpart hefir sitið sandkent ryk á þess- um jurtum, sumpart hafa þær við matarlagningu blandastsandi, við að malast í kvörnum úr lje- legum steini. En það sem eftirtektarverðast er við þessar beinagrindur, er hinn undarlegi ungi aldur þeirra. Af þeim 25 sem rannsakaðar hafa verið, voru 14 af mönnum sem dáið hafa innan þrítugs, um 3 var hægt að segja með vissu að þær hafa verið yfir 30 ára og hinar 8, sem voru af fullorðnum, hljóti að hafa verið um þrítugt (eða ef til vill lítið eitt yfir þrítugt). Par við bælist, að af 31 líkkistu, sem bægt var að mæla og engin bein voru I, sem þoldu geymslu, voru 14 barnakistur, en hinar 17 voru fyrir fullorðna eða hálfvaxna. En þær benda líka allar á lág- an vökst. Þessir merkilegu grafarfundir leiða fyrir sjónir vorar myrkar og dapurlegar myndir afsíðuslu tímum kynfrænda vorraáGræn- lands-ströndum. Vjer sjáum veslast upp lítið sveitarfjelag úr- kynjaðra manna og kvenna, sem berjast vonlausri baráttu fyrir lífinu, meira eða minna einangr- aðir frá móðurlandinu og um- heiminum. Peir veiklast dag frá degi af skorti, af ónógri eða of fábreyltri fæðu, þeir falla allir í valinn á unga aldri, farnir að mótslöðukrafli, flestir deyja áð- ur en þeir eru fullvaxnir, til- tölulega fáir ná þrítugsaldri og nær engir verða eldri en liðlega þrítugir. Konurnar geta ekki lengur fætt börn. Fólkinu fækkar og loks hnfga hinir síð- ustu í valinn af hungri ogskorti. Of margur hildarleikur ör- væntingarinnar þarna undir veðurbitnum, frostsprungnum fjöllum, með hálendisísinn að baki og hafísinn fram undan ströndinni, — en »Bavten paa Höjen har intet Tegn, og Saga har glemt, hvad hun vidste«. Af söguheimildum vitum við að hið íslenska landnám á Græn- landi, í Austurbygð og Vestur- bygð, hófst fyrir árið 1000. Svo er talið að Eiríkur rauði hafi numið land 983. Austurbygðin, sem var syðst í Julianehaabs- hjeraði, sem nú heitir, hefir þá haldist í yfir 400 ár, ef til vill alt að því 500, og Vesturbygð, sem, var norðar, í Godthaabs- hjeraði, hefir sennilega staðið eitthvað skemur. Báðar bygðir hljóta að hafa

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.