Vörður - 14.11.1925, Qupperneq 4
4
VÖRÐUR
inu, en litlar líkur virðast þó
til að framgangi samninganna
sje nein hætta buin af. — 1.
des. er ráðgert að þeir verði
undirskrifaðir af fulltrúum ríkj-
anna á fundi í London og verða
þing þeirra áður að hafa sam-
þykt þá. — Fyrirsjáanlegt er
að samningarnir muni hafa í
för með sjer bráða takmörkun
á vígbúnaði í Evrópu, enda
lofa aðiljar því að vinna sam-
an að afnámi hans. Símfregn
liermir að hollenska þingið hafi
þegar samþykt að veita J/5
minna til hersins að ári en
undanfarin ár.
Ítalía. í síðasta blaði var
skýrt frá því, að upp hafi kom-
ist um samsæri gegn Aíussolini.
Ætlaði jafnaðartnaðurinn Zani-
boni að skjóta hann aftan frá
á fundi, sern halda átti í Róm.
Stjórnarblöðin itölsku riluðu af
afskaplegum æsingi um tnálið
og fullyrtu, að ef Mussolini
hefði verið myrtur, þá hefði öll
Ítalía verið roðin blóði and-
stæðinganna. Mussolini hefir
síðustu dagana látiö handtaka
fjölda jafnaðarmanna, þar á
meðal marga þingmenn. Er
ekki fyrir það sjeð, hvað hljót-
ast kann af þeim ófriðareldi,
sem nú blossar á Ítalíu.
Grettir Algarsson, hinn vest-
ur-íslenski landkönnuður, hefir
í sumar verið í rannsóknarför
norður með Grænlandsströnd-
um. Fyrir skemstu barst sú
fregn að skipverjar hans hefðu
neyðst til þess að svifta hann
skipsstjórn og nú er símað frá
New York, að þeir skýri frá
því, að hann hafi hegðað sjer
eins og brjálaður maður. Kvað
hann sig vera ríkiserfingja ís-
lands og eiga höll, sem hjeti
Akureyri. Hefði hann þar 3000
vopnaða berserki og þar hefði
hann oftlega tekið á móti kon-
ungi Dana. Málaði hann ís-
lenskan fána á skipshlið og
hneykslaði með því hina bresku
áhöfn.
Verslunarstrið. Símað er frá
Madrid, að verslunarsamningur
milli Fjóðverja og Spánverja
hafi farið í handaskolum. Stjórn-
in hefir lýst verslunarstríði á
hendur þjóðverjum. Tollur á
innfluttum þýskum vöriím hefir
verið hækkaður um 80%.
»EldvÍg8lan« heitir allmikið
brjef sem Þórbergur Þórðarson
hefir skrifað ritstjóra Varðar og
birt í Alþýðublaðinu 6. þ. m.
Tekur það yfir 1372 síðuíblað-
inu Svar við þessu brjefi birtist
í næsta tbl. Varðar.
Kaupdeiian. Svo leit út á mið-
vikudag sem horfur væru á
sættum í kaupdeilunni. Hafði
sátlasemjari borið fram nýja
miðlunarlillögu og fulltrúar út-
gerðarmanna [Ólafur Thors,
Jón Ólafsson og Páll Ólafsson)
annarsvegar, en fulltrúar Sjó-
mannafjelaganna í Rvík og
Hafnarfirði (Sigurjón A. Ólafs-
son, Björn Jóliannesson, Jón
J. Bjarnason og Jón Bacli) og
verkamannafjelagsins »Dags-
brún« (Magnús V. Jóhannes-
son, Jón Balduinsson og Felix
tíuðmundsson) hinsvegar fallist
á hana og lofað að mæla með
henni við umbjóðendur sína.
Tillaga sáttasemjara var svo-
hljóðandi:
»Samningur milli Fjelags ís-
lenskra bolnvörpuskipaeigenda
og Sjómannafjelags Reykjavíkur
dagsettur í Reykjavík 1. októ-
ber 1924 haldist óbreyttur til
1. janúar 1926. Frá þeim degi
til 1. október 1926 gildi sami
samningur með eftirgreindum
breytingum:
1. gr. Mánaðarkanp skal vera:
hásetar (lágmarkskaup) kr.
230,00 — tvö hundruð og þrjá-
tíu krónur —, matsveinar kr.
302,00 — þrjú hundruð og tvær
krónur —, aðstoðarmenn í vjel
kr. 360,00 — þrjú hundruð og
sextíu krónur —, kyndari kr.
336,00 — þrjú hundruð þrjátíu
og sex krónur —, hafi hann
stundað þá atvinnu samtals í
sex mánuði. Iíaup óvans kynd-
ara skal vera kr. 300,00 —
þrjú hundruð lcrónur.
2. gr. Aukaþóknun sú fyrir
lifur, sem um ræðir í þessari
giein skal vera kr. 27,00 —
tuttugu og sjö krónur — fyrir
hvert fult fat.
4. gr. Aftan við greinina bæt-
ist: Ennfremur fái hver háseti,
matsveinn og kyndari viku
sumarfrí með fullu kaupi, ef
hann hefir unnið samfleytt í 10
mánuði bjá sama útgerðarfje-
lagi«.
(Miðlunartillaga þessi er að
því leyti frábrugðin tillögunni
þeirri urn daginn, að kaup há-
seta var þar ákveðið 226 krón-
ur á mánuði (bjer 230), mat-
sveina 297 kr. (hjer 302), þókn-
un fyrir lifur var 26 krónur á
fat (hjer 27). Og samningurinn,
sem verið hefir, átti eftir fyrri
miðlunartiliögunni að gilda til
1. febrúar 1926, en á eftir
þessari aðeins að giida til ný-
árs).
»Samninganefndir Fjelags ís-
lenskra bolnvörpuskipaeigenda
og Dagsbrúnar, hafa orðið sam-
mála um að mæla með því, að
nefnd fjelög aðhyllist eftirfar-
andi kauptaxta fyrir þá, er
stunda vinnu við fermingu og
affermingu skipa og alla hafn-
arvinnu.
Dagtímakaup sje kr. 1,25, og
gildi samningur þessi til 1.
janúar 1927, en þó skal samið
að nýju um kaupgjald á árinu
1927 í september 1926 og er
ætlast til að þeim samningum
sje lokið íyrir 1. október
1926«.
(Dagsbrúnar-kaupið er nú kr.
1,40 á tímann).
— Útgerðarmenn sainþyktu á
fundi á fimtudag, að ganga að
tillögunni, ef bæði sjómanna-
fjelögin og verkamannafjelagið
»Dagsbrún« samþyktu hana.
Fundir voru í sjómannafjelag-
inu og verkamannafjelaginu
sama kvöld. Á fundi sjómanna-
fjelagsins í Bárunni, sem stóð
yfir frá kl. 8 —11, voru um 500
manns. Atkvæðagreiðsla var
leynileg og fór svo, að 167 neit-
uðu að ganga að tillögunni, en
145 greiddu henni atkvæði. 8
seðlar voru auðir. En nálægt
200 manns, sem á fundinum
voru, greiddu ekki atkvæði.
Fundur »Dagsbrúnar« stóð
yfir framundir miðnætti. JÞar
greiddu eiuir 36 atkvæði með
lillögunui, en 130 á móti.
— Meira en helmingur togar-
anna er nú kominn í liöfn og
hefir hætt veiðum.
H.f. Tóbaksverslun íslands. —
»Nýlega hafa 5 menn í Reykja-
vík stofnað hlutafjelag, til að
reka heildsölu með allskonar
tóbaksvörur, og hefst sala þessi
eftir áramótin, er tóbakseinka-
sala ríkisins hættir. Mennirnir
sem stofna heildsölu þessa eru:
Magnús J. Kristjánsson forstjóri
Landsverslunar, Hjeðinn Valdi-
marsson skrifstofustjóri hennar,
Sigurður Kristinsson forstjóri
S. í. S., Richard Torfason bók-
ari Landsbankans og Hjalti
Jónsson framkvæmdastjóri h.f.
Iíol og Salt. Höfuðstóll þessa
nýja hlutafjelags er 100.000
krónur.
í brjefi, sem þetta nýja heild-
sölufjelag hefir sent verslunum
út um landið, segist það hafa
ágæt samhönd og telur upp því
til sönnunar um 30 tóbaksverk-
smiðjur, sem það kveðst hafa
sambönd við — og einkaum-
boð fyrir flestar þeirra. Enþess-
ar verksmiðjur, sem taldar eru
upp, eru einmitt þær, sem Lands-
verslunin hefir skift við áður.
Hið nýja fjelag hefir, ef brjefið
segir satt og rjett frá, náð und-
ir sig fleslum eða öllum þeim
samböndum, sem Landsverslun-
in liefir haft til þessa.
Húsakynni Tóbakseinkasöl-
unnar verða eftir 2. jan. n. k.
heimkynni hins nýja heildsölu-
fjelags«. (íslendingur.)
Hjónaband. Síðastliðinn sunnu-
dag voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Auður J. Víðis og
Sigurður Sigurðsson frá Kálfa-
felli. Óskar Vörður brúðhjónun-
um allra heilla.
Páll Zóphóniasson skólastjóri á
Hólum er nýfarinn til útlanda
og hygst að dvelja erlendis til
vors, fara um Norðurlöud og
Þýskaland til þess að kynna
sjer búfræðiskenslu og búfjár-
rækt.
Guðmundur iónsson búfræðis-
kandídat frá Torfalæk, stjórnar
Hólasköla meðan P. Z. dvelur
ylra.
Guömundur Hagalin rithöfundur
hefir undanfarið verið á fyrir-
leslrarferð um Noreg og talað
um íslensk efni. Er góður róm-
ur gerður að fyrirlestrum hans
í norskum blöðum. Hefir hann
nýlega lokið skáldsögu, sem út
kemur í vetur.
Borgarstjórakosning fer fram
hjer í bæ í janúar næstkoinandi.
Dánarfregn. 1. þ. m. ljest hjer
í bæ frú tíuðrnn tíuðnadóilir,
kona Steindórs Björnssonar
leikíimiskennara. Var hún 34
ára gömul og dó frá fjölda ungra
barna.
Dáin er nýlega hjer í bænum
ráðskona Oddíjelaga, ungfrú
Guðbjörg Porsteinsdóttir.
Frá Færeyjum. Fregn frá Pórs-
höfn í Færeyjum segir, að á-
kveðið sje að 20 vjelkúttarar
þaðan úr eyjunum verði sendir
hingað tií veiða næsta ár.
Bæjarstjórnarkosning fer fram
hjer í bænnm í janúar næslk.
Úrganga: Gunnl. Claessen, Pjel-
ur Halldórsson, Ólafur Friðriks-
son, Sigurður Jónsson og Pórð-
ur Bjarnason.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri.
Um 140 nemendur stunda þar
nárn í vetur. í gagnfræðadeild-
inni eru um 115 nemendur. —
Framhaldsnámi er haldið uppi
í 2 deildum, 4. og 5. bekkjar
námi. Auk reglulegra nemenda,
sem taka þátt í framhaldsnámi,
nota allmargir bæjarbúar sjer
þar kenslu í ensku, þýsku og
frönsku.
Bio lækkar aðgangseyri. Bíóið
á Akureyri hefir nú lækkað verð
aðgöngumiða, að því er íslend-
ingur segir frá. Almenn sæli
kosla nú 1 kr., betri sæti 1,50
kr., sæti á svölum 1,75 kr. og
barnasæti 50 aura.
Ný bök: Uppsprettur, ljóða-
safn eftir Halldór IJelgason frá
Ásbjarnarstöðum í Borgarfirði.
Jóhannes Kjarval hefir opna
sýningu á málverkum sínum í
Templarhúsinu.
Dánarfregn. Látinn er á Eyr-
arbakka Ölajur Teitsson hafn-
sögumaður, 86 ára að aldri.
PrentsmiðjanGutenberg.
V etrarbraut.
Sólstjörnur,
íiskeið.
Litrof wtjarnauna,
38, Sólstjörnum skipa menn nú á
tímum í allskyns flokka, eftir efnum
þeim, sem ætla má að yfirgnæfi í ljós-
höfum þeirra.
Einföldust er skifting Secchis. Skiftir
hann þeim í 4 flokka, aðallega eftir lit.
Skal þeim nú lýst.
1. Bláhvítar stjörnur. Pær eru allra
stjarna bjartastar. Litrof þeirra sýn-
ir að helíum er aðalefni Ijóshvolfs
þeirra. Pað er Ijettast allra frum-
eína og ef til vill foreldri efna, sem
koma síðar í Ijós. Dæmi: Delta og
Epsilon í Fjósakonum.
2. Hvítar stjórnur. Pær eru einnig
mjög bjartar. Litrofið sýnir að
vatnsefni yfirgnæfir í ljóshvolfum
þeirra. Dæmi: Hundastjarna og
Alfa í Arnarmerki.
3. Gular stjörnur. Pær eru eigi feikna
bjartar af sljörnum til. Litrofið
sýnir, að auk ofantalinna efna, eru
ýmsir málmar í þeim í gufu líki.
Dæmi: Sólin og Kapella.
4. Rauðar stjörnur. Pær eru daufastar
allra stjarna. Litrofið sýnir þar
margvisleg efni, meðal annars járn.
Dæmi: Nautsauga og Betelguese.
Pannig virðist sjerhver flokkur hafa
ákveðin efni í yfirgnæfandi mæli. Pó er
líklegt að frumefnin sjeu jafndreifð um
allan heim, en engar likur til hins, að
viss efni sjeu á vissum stöðum í rúm-
inu. Álíta menn því að efni og efna-
sambönd myndist í sólunum1 jafnótt og
aðstæður leyfa, á sinn hátt eins og líf-
verur spretta þar upp, sem lífvænterorðið.
Sumlit ar stjöi’iiui* lijilii
svipað liitnisti
39. Mælitæki nútírnans eru svo ná-
kvæm að undrum sætir. Hitageislar fjar-
lægra stjarna eru afardaufir, sem vænta
má, en tekist hefir þó að mæla þá og
reikna síðan hita á ljóshöfum ýmsra
1) Auk pess sem efnin virðast myndast
hvert fram af öðru, þá blandast þau óaflát-
anlega. Veldur því geislaspyrnan, sem dreyf-
ir rykinu um heim allan. Vígahnettir blanda
þeim einnig, því að líkindum berast þeir
víðsvegar um rúmið á mitlum stjarnanna.
stjarna, sem liggja innan þeirra vje-
banda, að fjarlægð verði mæld.
Útkoman er að meðaltali1 þessi:
Stjörnur Hitastig
flokkaðar eftir lit: á celsíusmæli:
Bláhvítar.................. 9500
Hvitar..................... 8200
Gular...................... 4700
Rauðar..................... 3200
Lengi sat að völdum skoðun sú, að
sljörnur breyttu Ht með aldri, þannig
að þær væru bláhvítar í æsku, síðan
hvítar þá gular og loks rauðar í elli
sinni, er þær væru að koluin komnar.
Petta studdist eigi við næga þekkingu
og litbreyting sólnanna, með aldrinum
reynist allmjög á annan veg.
Ðæmisagu Herschols.
40. Pað eitt er víst að æfiskeið sóln-
anna eru óralöng. Æfi mannkyns er
augnablik eitt, ef miöa skal við þau
örófi alda, sem ætla má að líði frá
æsku til æfiloka sólkerfis í rúminu.
Veitist því mannkyni jarðar æði erf-
itt að sjá á svip stjarnanna hvaða lífs-
1) Æðilangt utanvið meðaltal þetta, liggja
margar svo nefndar »B« stjörnur. Pær eru
bláhvítar og ofsaheitar. Stjarnan Kappa í
Drekamerki er t. d. 22500°. »B« stjörnur eru
afar merkilegar margs vegna.
ferill liggur að baki þeim. Samt er það
eigi með öllu ókleift.
Herschel notaði líkingu þessa: Maður
nokkur barst inn í stóran skóg. Aldrei
hafði haun skóg sjeð og aldrei heyrt
um hann getið. Eigi aö siður vildi
hann þekkja sögu hans alla. Einum
degi hafði hann yfir að ráða og eigi
breyttist skógurinn neitt á þeirn cina
degi. Hann var samur að morgni og
kvöldi
Fer hann nú viða um skóginn og
verður í fyrstu slarsýnt á hin slóru
trje, sem rísa hvert að baki öðru, svo
langl sem augað eygir. Pá sjer hann
fræin í moldinni. Suin eru lukt, sum
uppsprungin. Viðatteinunga lýtur hann
af ýmsum stærðum. Hann sjer trje í
ýmsum myndum — sum í blóma onn-
ur fúin og fallin. Loks sjer hann í
blómum trjánna samkyns fræ og iiggja
við rætur þeirra. Opnast honum þá
æfisaga skógarins: Fræin vaxa og verða
trje. Trjen ala ný fræ, sem falla til
jarðar og festa þar rætur. Gömul trje
deyja að lokum. Önnur kynslóð sest
að í þeirra stað.
Pannig er mannkyn jarðar á vegi
slatt, er það vill skygnast inn í leynd-
ardóma stjarnanna og þekkja síðan
æfiskeið þeirra. Á. M,