Vörður - 18.09.1926, Side 4
.4
V Ö R Ð U R
%
Söðiasmíðabúðin
S L E I P N I R.
^gætir erfiðisvagnar, ásamt vönduðum aktýgjum, ódýrara en
áður. Hin margeftirspurðu handvagnahjól komin aftur. Reiðtýgi og
alt tilheyrandi. Lækkað verð. Pantanir afgreiddar út um land. —
Beislisstangir, ístöð keyrslumjel og reiðbeislamjel
selst ódýrt í heildsölu og smásölu.
Símnefni: „SLEIPNIR“. .Laugaveg 74. Sími 646.
Gjalddagi „Varöar“
var 1. júlí og eru umboðsmenn blaðsins vinsamlega
beðnir að minnast þess, og gera skil við fyrstu hentug-
leika, einkum þeir, sem eigi hafa enn gert skil fyrir eldri
árgöngum blaðsins. — Sömuleiðis eru einstakir kaupend-
ur, sem eigi vita af neinum umboðsmanni í nánd við sig,
vinsamlega beðnir að gera oss skil hið fyrsta, sjerstak-
lega þeir, sem eiga ógreidda marga árganga.
Nokkrir menn, sem hafa verið beðnir að annast inn-
heimtu á andvirði blaðsins í sinni sveit, hafa enn eigi
svarað brjefum vorum er þar að lúta, og er þess vænst,
að þeir geri það hið allra fyrsta.
Öllum fyrirspurnum, sem lúta að greiðslu eldri ár-
ganga blaðsins er svarað viðstöðulaust. Sömuleiðis er
bætt úr vanskilum og er æskilegt að menn tilkynni þau;
einkum ef mikil brögð eru að.
AFGREIÐSLAN.
Bækur
Einars Helgasonar:
RÓSIR
Leiðarvísir í ræktun inniblóma. 1.00 kr.
BJARKIR
Leiðarvísir í trjárækt og blómrækt, með myndum.
2.00 kr.
HÆNSN ARÆKT
Leiðbeiningar. 1.00 kr.
F R E Y R ..
Mánaðarrit um landbúnað, þjóðhagsfræði og verslun.
Allir 22 árgangarnir.
FYRIRLESTUR um heilbrigðismál og heilsufræðL
Eftir Jónas Kristjánsson, læknir.
Bókaversl. Guðm. Gamatíelssonar
Reykjavík.
gengnar og loks voru týndar
upp tvær veigalitlar rckaspítur,
sem engum hafði til hugar kom-
ið að nota í reftið. Greinar af
góðum stofni og bakaðar Sam-
bandssól, sagði Tryggvi. Þar við
sat.
Nú hefur Tryggvi kynt
mönnum „persónurnar". Að
hans dómi eru þær „miklar per-
sónur“. Önnur hefur farið um
landið með skáldlegum hug-
leiðingum um andlega sam-
nautn og tóvinnu. Hin hefur um
nokkur ár haft það starf með
höndum, að segja já og amen
við reikningum kaupfjelaganna.
Hvorttveggja starfið er vinsælt
og velsjeð i Vatikaninu.
Frá sjónarmiði Tr. Þ. er val-
ið skiljanlegt, þó það sje ekki
að sama skapi mannúðlegt.
Hann hefur borið sig illa undan
því að þurfa að „beygja sig fyrir
kröfum bændat* um að taka
„reyndasta, duglegasta og hæf-
asta manninn, sem völ var á“
efstan á lista Framsóknar við
Jandskjörið í sumar. Nú átti ekki
aftur að brenna sig á sama soð-
inu. —
Það er ekkert ilt um þessar
„persónur" að segja. Það er
yfirleitt svo sem ekkert um þær
að segja. Þetta eru dálitlir bros-
andi postulínsenglar, sem blása
á litlu básununa sina Tímalofið,
eftir því sem vindorkan leyfir.
Það er ljótt að ota þessum
sakleysingjum fram. Frá and-
stæð ingunum verður ekki veg-
ið að þeim. Og þeim verður
ekki heldur fylgt vegna neinna
afreka. Einu verðleikarnir eru
það, að þeir hafa ekki unnið
sjer tíl óhelgi. Kostalausir og
gallalausir sem stjórnmálamenn.
Það stenst víst á.
Þetta er útkoman af vikna
erfiði, heilabrotum og andvöku-
nóttum. Fjöllin tóku jóðsótt —
Það er oft sagt um óreynda
menn að þeir sjeu óskrifuð blöð.
„Persónur“ Tímans eru óskrifuð
blöð. Blöðin geta verið nógu
góð. En hvað verður skrifað á
þau? Báðir flokkarnir, sem að
þeim standa, þykjast víst hafa
rjett til að letra á þau sín boð-
orð. Sagt er að Jónas og Jón
Bald. sjeu báðir búnir að ydda
blýantana. Og það er jafnvel
talið að Ólafur Friðriksson
vilji fá að krota eitthvað á
spássíurnar. Eftir því sem þess-
um flokkum hefur farið á milli
yrði áletranirnarnar á þessa
leið:
Öðrum megin Framsókn:
Stýfing.
Hinum megin Jafnaðarmenn:
Gullgengi.
Öðrum megin Framsókn:
Kauplækkun.
Hinum megin Jafnaðarmenn:
Kauphækkun.
Öðrum megin F’ramsókn:
Einstaklingsrekstur.
Hinum megin Jafnaðarmenn:
Rikisrekstur.
Öðrum megin Frainsókn:
Þingræði.
Hinum rnegin Jafnaðarmenn:
Handafl (á spássíu).
Jeg segi eins og biskupinn
sálugi: Eg sje eftir pappírnum,
Klemens.
Vestur-íslenskar
frjettir.
íslendingadagurinn
var haldinn í Winnipeg þ. 2.
ágúst að venju. Fyrri hluta dags-
ins fór fram allskonar kepni í
íþróttum og varð allsherjarsig-
urvegari dagsins Rögnvaldur
F. Pjetursson. Vann hann 7
fyrstu verðlaun og tvenn önnur
verðlaun. „FjalIkonan“ (Ida
Swainson) flutti ávarp. Stephan
G. Stephansson skáld var heið-
ursgestur dagsins og flutti hann
þar ræðu. Prestarnir Albert
Kristjánsson, Rögnvaldur Pjet-
ursson, Jónas A. Sigurðsson
fluttu og ræður. Að ræðunum
loknum fóru fram glímur og
vann piltilr að nafni Kristinn
Oliver fyrstu verðlaun, en Bene-
dikt Ólafsson önnur verðlaun og
verðlaun íyrir fegurðarglímu. —
„Fjallkonan" afhenti sigurvegur-
unum verðlaunin. Heimskringla
kveður áhuga yngri manna fyrir
glímunni heldur að dafna.
Skrifari Winnipegborgar
var Magnús Pjetursson nýlega
kosinn. Magnús var fæddur í
Winnipeg 1883. Faðir Magnúsar
var Pjetur Magnússon, frá ísa-
firði. Ellefu ára misti hann föð-
ur sinn, en móðir hans var dáin
áður. Magnús var aðeins á tólfta
ári, er hann var tekinn til vika
á bæjarritaraskrifstofu Winni-
pegborgar. Forstöðu veitti þá
þeirri skrifstofu ágætismaður að
nafni Charles Brown og sá hann
fljótt hvað í Magnúsi bjó og
reyndist honum hið besta. Mátti
svo heita, að hann gengi honum í
föður stað. Árið 1906 var Mag-
nús gerður að aðstoðarmanni Mr.
Brown. Og árið 1907 ‘varð hann
ritari hinnar . svo nefndu r^ð-
gjafastjórnar, er þá var mynduð
í Winnipegborg. Er Magnús því
manna kunnugastur öllum bæj-
armálum Winnipegborgar.
i
Jón Þorláksson, forsætisráðherra
og frú hans komu heim um
síðustu helgi úr mánaðarför til
útlanda.
Frambjóðendur við landskjörið:
Jónas Kristjánsson læknir og
Einar Helgason, garðyrkjustjóri,
af hálfu Ihaldsmanna.
Jón Sigurðsson Ysta-Felli
Jón Guðmundsson, endurskoð-
andi S. I. S. af hálfu Framsókn-
ar- og Jafnaðarmanna.
Skólahúsið á Eiðum.
Búist er við að nýja húsinu
verði lokið um veturnætur og
geti nemendur þá sest að í þvi.
Aðsókn að skólanum er mikil.
Síldveiðin eystra.
I sumar hefir verið meiri sild-
veiði á Austfjörðum en í mörg
ár undanfarið. Hafa allir firðir
verið fullir af síld og hefði veið-
in eflaust orðið stórum meiri, ef
menn hefði verið búnir að veið-
arfærum svo sem skykli. Verð-
ið hefir verið ágætt, miklu hærra
en á síldinni, sem veiðst hefir
Norðanlands. Eftir síðustu fregn-
um er síldin nú i rjenum og á hin
stirða veðurátta eflaust sinn þátt
í því.
Fiskifulltrúinn á Spáni og Ítalíu
óskar þess getið, að utaná-
skrift sín sje: Sr. D. Gunnar Egil-
son, Via Layetana 12, Barcelona.
íslendingur veginn í Frakklandi.
Nýlega barst hingað fregn um
það, að ungur islenskur sjómað-
ur, Pjetur Sigþórsson að nafni,
ættaður af Snæfellsnesi, hefði
verið skotinn til bana í Rúðu-
borg á Frakklandi. Hafði Pjetur
viljað koma til hjálpar norskum
manni, er lent hafði í ryskingum
við blökkumann. En blökkumað-
ur þreif þá til skammbyssu sinn-
ar og skaut Pjetur.til bana.
Sjúkrahús í Hafnarfirði.
Eins og kunnugt er hafa St.
Jósepssystur látið reisa Landa-
kotsspitalann hjer í Reykjavík
og rekið hann frá upphafi. Nú
hafa þær látiö reisa sjúkrahús
í Hafnarfirði. Var það vigt fyrra
sunnudag með mikilli viðhöfn.
Meulenberg prefekt hjelt aðal-
ræðuna og lýsti byggingunni og
tilgangi hennar. Magnús Jónsson
bæjarfógeti þakkaði St. Jóseps-
systrum húsbygginguna fýrir
hönd bæjarins.
Nýja sjúkrahúsið er mjög
vandað og frágangur allur sam-
kvæmt kröfum timans. Eru
þarna rúm handa 50 sjúklingum.
Dálítil kirkja er bygð áföst við
sjúkrahúsið, en er ófullger erin. *
Lækkun matvöruverðs.
Samkvæmt hagtíðindum síð-
ustu hefir matsöluverð lækkað
um rúml. 1% í ágúst, og elds-
neyti og ljós tæplega 1%. Mest
hefir lækkunin orðið á kjöti og
fiski.
fslenskur botnvörpungur
sektaður. Nýlega tók varð-
skipið „Þór“ togarann Belgaum
við veiðar í landhelgi á Þistil-
firði. Fór varðskipið með togar-
ann til Siglufjarðar og var hann
dæmdur í 5000 kr. sekt og afli
og veiðarfæri gert upptækt.
Læknar:
Ari Jónsson hefir verið settur
læknir í Hróarstunguhjeraði.
Guðmundur Guðmundsson, sem
verið hefir settur í Reykhólahjer-
aði, hefir verið skipaður hjeraðs-
læknir þar.
Sex úrvals sönglög.
er nafn á nótnahefti, er Helgi
Hallgrímsson hefir gefið út. Eru
lög þessi öll eftir heimsfræg tón-
skáld, svo sem Schubert, Mas-
senet, Brahms. Tekstarnir eru á
íslensku og hafa gert þýðingarn-
ar þeir Bjarni Jónsson frá Vogi,
sira Friðrik Friðriksson o. fl.
Hjer er um þarft fyrirtæki að
ræða, því mjög er óviðkunnanlegt
að söngvarar vorir þurfi jafnan
að syngja á erlendu máli. Fer
allur hinn ósöngfróðari almenn-
ingur mikils á mis við að skilja
ekki tekstana. Oftast er sungið
á dönsku, jafnvel þótt um lög sje
að ræða af þýskum eða frönsk-
um uppruna. Það er órjettmæt
vantrú á tungu vorri, að ekki sje
hægt að fella hana að efni bestu
söngsmíða. Sú vantrú kann að
hafa skapast af því að oft hefir
verið kastað höndunum til þýð-
inganna. En um þýðingar sem
ætlaðar eru til söngs gildir það
ekki fyrst og lremst að frum-
textinn sje þræddur nákvæmlega,
heldur hitt, að textinn sje söng-
hæfur, án þess þó að blær frum-
textans raskist 'til muna. Mestu
sönglagaperlur heimsins geta því
aðeins orðið almenningseign hjer
á landi, að til sjeu við þær ísl.
tekstar. Tunga vor á nógan auð
til þess að svo megi verða, nóga
mýkt og blæbrigði. En það er
ekki öllum henf að gera slikar
þýðingar. Til þess þurfa menn
ekki aðeins að hafa smekk fyr-
ir máli heldur einnig söng.
Bæði brageyra og söngeyra og til-
finningu fyrir því hvað sönghæft
sje.
Með þessari tilraun Helga Hall-
grímssonar er stefnt í rjetta átt.
Og er ekki að efa, að sönglög-
unum ver.ður vel tekið. Sigurð-
ur Birkis hefir safnað lögunum
og búið undir prentun. Er hann
söngfrrður vel og smekkmaður
hinn mesli.
Misprentast
hafa nokkur orð í greininni
„íþróttaleikir“ í síðasta tölubl.
Þar steridur Tmndknattleikur, á
að vera handknattleikur; liron-
knattleikur, á að vera kross-
knattleikur og bnðknattleikur, á
að vera boðknattleikur.
BYSSUR og RIFFLAR
og alskonar
SKOTFÆRI
seljum við með vel sam-
keppnisfæru verði í heild-
og smásölu. Kynnið yður
verð og vörur sem fyrst.
Sportvöruhús Reykjavíkur
(Einar Björnsson)
Símn.: Sportvöruhús, Reykjavík.
Prentsmiðjan Gutenberg.