Vörður - 16.10.1926, Síða 1
„Hið eina naiiðsYnlega64*
Áburöarfrumvarp Tr. P.
Menn leggja eflaust eyrun við
þegar Hr. Tryggvi Þórhallsson
talar um ræktunarmál. Eklci
einungis fyrir þá sök, að hann
er einhver fremsti maðurinn í
þeim flokki, sem kennir sig við
hændur. Ekki heldur fyrst og
fremst ^fyrir þá sök, að hann er
ritstjóri aðalmálgagns þessa
flokks, heldur fyrir þá sök, að
hann skipar þá stöðu, sem
heimtar grundvallaða landbún-
aðarþekkingu af hverjum þeim,
sem þar á sæti. Hr. Tr. Þ. er
formaður Búnaðarfjelags ís-
lands. Þessvegna hlusta menn í
þögulli eftirvæntingu, þegar
hann tekur til máls um ræktun
landsins.
í síðasta hlaði Tíinans lætur
hr. Tr. Þ. Ijós sitt skína. Jeg
hafði fyrir nokkrum vikum sið-
an minst lauslega á frumvarp
það um tilbúinn áburð, sem
hann hefir borið fram á tveim
síðustu þingum. Hafði mig með-
al annars hent sú goðgá, að láta
í ljós, að jeg teldi frumvarpið
nauða ómerkilegt. Það er því
engin l'urða þó greinarhöfundi
sje mikið niðri fyrir, enda tekur
hann áburðarmálið frá rótum, i
víðustu merkingu. Raunar ’lá
ekki annað fyrir en frumvarp-
ið sjálft, en það er ekkert við
þvi að segja nema gott eitt, að
lormaður Búnaðarfjel. Ieiði um-
ræðurnar inn á nokkuð víðari
grundvöll.
Sumt af því, sem stendúr í
grein forinanns Búnaðarfjelags-
ins er vitanlega rjett og satt. T.
<1. munu allir geta tekið undir
það með honum, að það dýrasta,
sem bóndinn geri nú, sje að
rækta ekki. En þó forsendurnar
sjeu rjettar, er ekki ávalt víst
að rjettar ályktanir sjeu af
þeirn dregnar. Og það hefir því
miður farið svo fyrir formanni
Rúnaðarf jelagsins að þessu
sinni, að ályktanir hans eru
nokkuð liæpnar, svo ekki sje
li’ekar að orði kveðið. Formað-
nrinn segir:
„Aukiri ræktun á íslnndi,
svo að nokkru verulcgu nemi,
er óframkvæmaiileg án tilbúins
áburðar')
Hann skýrir þetla svo nánar
°g segir, að vegna þess hve á-
burðurinn sje lítill, verði ekki
bægt að rækta nýtt land, nema
með því að taka áburðinn frá
ræktaða landinu. „Það verður að
koma einum l^etli í órækt til
þess að rækta annan“.
bessar kenningar eru þess
verðar að þær sjeu teknar til at-
hugunar. Hjer er því slegið föstu
að áliurðarhirðing hjer á landi
sje komin i svo gotl horf að
ekki verði umbætt. Því aðeins er
1) Leturbr. Tr. Þ.
luvgt að fullyrða ao aukin rækt-
un verði ekki framkvæmd nema
ineð tilbúnum áburði.
Jeg býst við, að l'leirum en
mjer þyki þessar íullyrðingar
nokkuð hæpnar. Og áreiðanlega
fará þær í bága við skoðanir
ýmsra annara, sem þekkingu
eiga að hafa í þessum efnum, og
um það hafa rætt og ritað. Jeg
vil þessu til sönnunar tilfæra
hjer nokkur umrnæli núverandi
búnaðannálastjóra, lir. Metúsal-
ems Stefánssonar, úr grein um
áburð, sem prentuð er í handbók
trúnaðarmanna Búnaðarfjelags
íslands 1923. Hann færir að því
góð rök og gild, að húsdýraá-
burður, sem árlega falli til, sé
ekki minna en 4%—5 milljón
króna virði.
Því næst talar hann um með-
ferð áburðarins: „Sumt sígur
niður í óþjettan flórinn eða
haugstæðið, cða regnvatnið skol-
ar því í burtu. Sumt rýkur upp
strax í l'jósinu, spillir loftinu
þar og segir til sín með „fjós-
lyktinni“, eða það fer út i „veð-
ur og vind“ þegar út er komið;
sumt tapast sökum óheppilegr-
ar hagnýtingar o. s. frv.“
Því næst segir hr. M. St.: —
„Átumeinin eru mörg og
mun sist oftalið þótt gert sje ráð
fgrir, að bændur tapi þannig
miljón króna árlega, umfram
það scm óhjákvæmilegt er. Geti
mönnum orðið þetta Ijóst, þá
hljóta þcir að hefjast handa og
setja undir lekann, þar sem er
sem gullið drjúpi jafn og þjeit
úr greipum bænda, sökum ónýtr-
ar geymslu, illrar hirðingar og
rangrar hagnýtingar áburðarins.
' Uruggasta og áhrifamesta ráð-
ið, til þess að bæta úr þessum
vandræðum, er það talið, að
byggja áburðarhús og safnþrær,
enda er það i rauninni jafn sjálf-
sagt, og ætli innan fárra ára —
og mcð stuðningi jarðræktarlag-
anna — að vcrða jafnalgengt að
hafa hús gfir áburðinni sem nú
er fgrir heyin.“
Þarna kemur þá álit núver-
andi búnaðarmálastjóra á með-
ferð áburðarins skýrt fram.
Hann álítur, að bændur tapi ár-
lega, að minsta kosti miljón
króna á óhagkvæmri hagnýtingu
áburðarins. Þrjú ár eru liðin
síðan þetta er ritað en ástandið
mun Htið breytt. Eftir því sem
mjer er tjáð af manni, scm er
þaulkunnugur þessum efnum,
eru ekki enn komin upp áburð-
arhús nema á sjötta hverjum
bæ á íslandi.
Hjer er vissulega verkefni fyr-*
ir forgöngumenn landbúnaðar-
ins. Siðan Ræktunarsjóðurinn
tók til starfa hafa bændur átt að-
gang að hagkvæmum lánum til
í lok síðasta mánaðar geys-
aði ógurlegur fellibylur á
Floridaskaga í Bandaríkjunum
og olli gifurlegu tjóni. Reif hann
upp allan jarðargróður og gjör-
eyddi skógum og ökrum á stóru
svæði, feldi hús og varð hundruð-
um manna að bana.
Samfara bylnum æddi flóð-
alda inn yfir skagann svo þung
áburðarhúsa. Samkvæmt jarð-
ræktarlögunum l'á þeir % hlula
kostnaðarins greiddan. Ræktun-
arsj. lánar % til framkvæmd-
anna. Fjárútlát bóndans í bili
verða þvi ekki tilfinnanleg.
Nú hefir hver bóndi á landinu
til jal'naðar 4 nautgripi. Áburð-
arhús fyrir áburð undan einum
nautgrip reiknast 40 dagsverk.
Áburðarhús fyrir þessa naut-
gripi reiknast því 1(50 dagsverk.
Dagsverkið reiknast 6 kr. Svo
þetta vrði alls 9(50 krónur. Rækt-
unarsjóðurinn lánar % þessarar
upphæðar eða 576 kr. Styrkur
samkv. jarðræktarlögunum er
kr. 1.50 á dágsverkið, eða 240 kr.
Þó er ákveðið að lán og styrkur
fari ekki fram úr 3A kostnaðar
til samans. Það eru 720 krónur.
Ef miðað er við aðkeypt vinnu-
ai'l yrði því fjárutlátin í bili 240
krónur. En ef bóndinn vinnur
að verkinu sjálfur, getur vel far-
ið svo, að hann komist af án
nokkurra fjárútláta í bráð. En
hvað sem því líður er hagurinn
við slíka framkvæmd svo mikill,
að útlagður kostnaður fengist á-
valt endurgreiddur á fyrsta eða
öðru ári í auknum áburði.
Jcg held það hefði verið rjett
af formanni Búnaðarfjelagsins,
að benda bændum á það, sem nú
hefir verið talið, áður en hann
sló því föstu, að aukin ræktun
að nokkru marki væri ófram-
kvæmanleg án tilbúins áburðar.
En þó keriiur margt fleira til
greina, sem ráða þarf bót á, áð-
ur en fullyrt verður, að ekkert
nema útlendur áburður geti ýtt
undir aukna ræktun. Skal hjer
bent á 4 atriði i viðbót:
1. Fiskiúrgangur. I öllum kaup-
túnum landsins er árlega hent
í sjóinn fiskiúrgangi, sem ef-
laust er margra tuga þúsund
króna virði, ef hirtur væri og
og mikil, að liún lagði i auðn
alt sem í'yrir varð og m. a. hinn
fagra baðstað og skemtistað
Miami, þar sem auðmenn
Ameríku hafast við mikinn
hluta ársins. Aldan skolaði burt
um 1800 byggingum, þar á með-
al hinum ríkmannlegu risahótel-
um bæjarins, sem l'lest stóðu
niður við ströndina. Skipin á
notaður lil áburðar.
2. Þari. Um hann má líkt segja,
að þar liggja eflaust nokkrir tug-
ir þúsunda ónotað af áburðar-
efnum.
3. Rafmagnsveitur á sveitabæj-
um. Eins og nú standa sakir er
sauðataðinu víðasthvar brent að
miklu eða öllu leyti. Þar sem raf-
magnsveitum verður komið við
til ljósa, suðu og upphitunar,
fæst mikill áburður, sem nú er
brent, til ræktunar.
4. Áveitur. Með þeim fæst auk-
inn heyfengur, sem leiðir af sjer
aukinn búpening og þar með
aukna ræktun.
Jeg hefi þá drepið á nokkur
æði mikilsverð atriði, sem for-
manni Búnaðarfjelagsins virðist
hafa yfir sjest þegar hann sló
fram kenningu sinni:
Aukin ræktun á fslandi, svo
að nokkru verulegu nemi, er
óframkvæmanteg án tilbúins ú-
burðar.
Á þessari kenningu byggist
öll liin harðskeytta barátta hans
fyrir áburðarfrumvarpinu sæla.
-— Er þá næst fyrir hendi að at-
huga frumvarpið Htið eitt.
Aðalatriði málsins eru tvö.
Annarsvegar innkaupin, hins-
vegar flutningsgjöldin. í frv. var
gert ráð fyrir að Búnaðarfjelag-
ið hefði framvegis á hendi inn-
kaup og sölu áburðarins. Þessu
var breytt í þá átt við meðferð
Neðri deildar á síðasta þingi, að
ríkið tæki að sjer verslunina.
Eru hr. Tr. Þ. og öðrum fylli-
lega kunnar ástæðurnar-, sem til
þess lágu, og óþarfi að fjölyrða
um þær hjer.
Hitt atriðið var það, að skip
ríkissjóðs skyldu flytja áburð-
inn endurgjaldslaust bæði frá
útlöndum og liafna á milli. — Á
þetta atriði hefir megináíhersl-
an verið lögð af flutningsmanni
höfninni sukku eða hrökíust á
land upp.
Samskot er hafin um öll
Bandaríkin til þess að bæta úr
tjóninu.
Myndirnar yfir þessum línum
eru frá Miami. Á annari þeirra
sjest eitt af stærðar hótelum
bæjarins, þeim er flóðaldan
vann á.
við alla meðferð þessa máls frá
byrjun.
Tilraunir þær sem gerðar hafa
verið um notkun tilbúins áburð-
ar hafa fært sönnur á það, að
notkun hans svarar kosínaði i
nágrenni kauptúna þar sem góð-
ur markaður er fyrir afurðir
búanna. Til þessa tíma hefir á-
burðurinn ekki verið notaður í
sveitum landsins að nokkru
marki. Það er því ekki hægt að
fullyrða með öruggri vissu að
notkun hans svari kostnað þar.
Það mun þó vera álit flestra, að
áburðurinn komi að góðum not-
um við nýrækt, einkum á þann
hátt að nota hann á ræktað land
og losa að nokkru húsdýraáburð-
inn til nýræktarinnar. Segjum
að svo sje.
Liggur þá næst að athuga
hvaða fjárstyrkur liggur i þess-
ari ívilnun flutningsgjaldanna,
bændum til handa.
Láta mun nærri, að ræktunar-
kostnaður sje 300 krónur á
hverja dagsláttu. Flutnings-
gjaldið á áburðinum er 25 krón-
ur á smálest frá útlöndum. Á-
ætlað er, að sína tunnuna þurl'i
af hvorri tegund, köfnunarefn-
isáburði og superfosfat, á dag-
sláttu ræktaðs lands. Flutnings-
gjaldið á þessum tveim tunnum
er 5 krónur. Áætla má að þriðj-
ungi meiri áburður fari til ný-
ræktar. Yrði þá flutningsgjald-
ið 7.50. Ivilnunin næmi því sjö
krónum og fimtiu aiirum af
þeim þrjú hundruð krónum, sem
ræktunarkostnaðurinn nemur.
Dettur mönnum í hug, að í þess-
ari upphæð felist nokkur veru-
leg hvatning til aukinnar ný-
ræktar? Á þeim stöðum, sem
millilandsskipið kemur ekki við
mundi þessi ívilnun hækka um
örfáar krónur.
Þá er skipakosturinn. Ríkið