Vörður - 20.11.1926, Side 4
4
V Ö R Ð U R
Öllum þeim, er sýndu mjer samúð og hluttekningu við heim-
komu mína og jarðarför mannsins míns, E. E. Sæmundsen, sendi
jeg hjer með innilegt þakklæti.
■ Blöncþiósi 29. október 1926.
Þuríður Sæmundsen.
ERÁ ÚTVEGSBÆNDAFJELAGI VESTMANNAEYJA.
Hjer með tilkynnist sjómönnum þeim, sem ætla að ráða sig á
báta fjelagsmanna á komandi vertíð, að fjelagið hefir samþykt að
taka ekki við vermönnum fyr en eftir áramót.
Vestmannaeyjum 17. nóv. 1920.
Fjelagsstjórnin.
tíee&im,'
BafMiisisitsrí! siííiæiii
Túrbína og rafmagnsvjel
sambygðar, alt að 4 hestöflum. Útvegum einnig vjelar af öllum
öðruin stærðum.
Veum upplýsingar, og gerum áætlanir. Einnig föst lilboð, ef
óskað er.
Bræðurnir Ormsson
Reykjavík.
lega ryðja braut fyrir kröfu is-
lenska ráðuneytisins í ríkisráði,
umdir forsæti konungsins yfir ís-
landi, þar sem yrði gert út um
það í eitt skifti fyrir öll með
hTerjuin hætti það gæti orðið
hagkvæinast fyrir nýlendustjórn-
ina á Grænlandi að opna hafnir
•g atvinnuvegi alla þar vestra
fyrir íslenskum þegnum. Með
þeim hælti yrðum vjer og mun
betur settir en Norðmenn lil þess
að ná fyrstu fótfestu í landinu,
sein mjög væri æskilegt vegna
fámennis vors.
Með þessari frumsókn í mál-
inu er auðvitað að engu leyti
veikt, heldur einmitt efld að
miklu krafa vor óskert um rjett-
arsókn íslands til fullrar viður-
kenningar um sögurjett vorn til
eylandsins í heild. Á þennan hátt
kemur í ljós mjög áþekk aðferð
niálsrekstrar vors gegn Dan-
jBÖrku, um' nýlenduna gömlu,
eins og beitt var — að lokum til
sigurs, í hinni langvarandi deilu
vorri um sjálfstæði íslands
sjálfs. Vjer sækjum nú eins og
þá með þeim hætti, að heimta
þegar það allt, sem verður
fengið og þegið án þess þó, að
loka nokkru sundi fyrir úrslit-
um fullkomins rjettlætis. Stig af
stigi höldum vjer fram á þeirri
braut uns þjóðunum skilst, að
sannir hagsmunir Norðurheims-
þjóða eru best farnir með rjett-
sýni í þessu máli gagnvart fs-
landi.
I riti Einars Arnórssonar:
„Þjóðrjettarsamband fsl. og
Danm.“ Rvk. 1923, bls. 113 o. f„
er talið að „analogia“ sje fullgóð
fyrir því, að tilskipanir, opin
brjef, samningur o. s. frv. eigi
einnig að leggjast fyrir ráð-
gjafarnefndina. En jeg get ekki
sjeð að hjer sje um þá „liking
orsakanna“ að ræða, er geti
rjettlætt slíka lagaþýðingu. Fyrst
og fremst hlýtur ákvæðið í 16. gr.
urinn í leikslok við leikarana:
„Eruð þið ekki enn farnir að
skilja það, að þið eruð ekki færir
um að leika þennan sjónleik. Þið
hafið okkur ekki annan í ykk-
ur“.
Þetta er þá í stullu máli það
sein Pirandello vill segja uin hina
erfiðu list sjónleiksins: Það er
margvíslegum vanda bundið að
semja verkið, eins og það verð-
ur til í sál skáldsins — og það er
altaf ómögulegt að sýna það á
leiksviði, eins og það var í raun
og veru í þeirri ímyndun, sem
fóstraði það. Sýning þess verður
aldrei annað en mynd af skiln-
ingi eða skilningsleysi leikar-
anna á verki og persónum, sem
þeim eru meira eða minna ó-
skyld.
Þessi er hinn „eiginlegi kjarni"
í tragedíu Pirandellos.
Höfuðsorgarefnið í leiknum
um verurnar sex er ekki ógæfa
þeirra og þjáningar — heldur
hitt, að þær geta ekki orðið að
því skáldverki, sem þær Jirá að
verða, að ekki er hægt að sýna
Jiau- á Ieiksviði nema gjörólikar
sjálfum þeim. Leikurinn er sorg-
arleikur skáldverks, sem ekki
fær notið sín þar sem það á að
njóta sin, á leiksviðinu. Hann er
skapaður af Jijáningum leik-
skáldsins yfir þeirri afmyndun,
sem gengur yfir verk hans, fyrst
meðan hann er að glima við
sbsl. eftir alinennum reglum, að
skýrast stranglega takinarkað.
Hjer er að ræða um afarmikil-
væg afskifti af hálfu annars rík-
is um löggjöf íslands, og mun
víst almennt álit íslendinga um
þetta fara í líka átt sem Bjarna
Jónssýni fórust orð í Andvara
1923. í öðru lagi hafa sambands-
lögin sjálf, svo freklega sem
framast er unt, bundið þessa
starfsemi ncfndarinnar við lög,
í eiginlegri merking þess orðs;
enda er einasta undantekningin
frá reglunni í þessari sambands-
lagagrein á þann veg, að rýra en
ekki auka vald nefndarinnar,
þar sem gjört er ráð fyrir því, að
lagafrumvörpin þurfi ekki að
leggjast fyrir nefndina, sje það
„sjerstaklega miklum vand-
kvæðum bundið“. Að fella einn-
ig önnur fyrirmæli æðstu stjórn-
ar íslands undir 16. gr. væri í
raun rjettri að gjöra Dani lög-
ráðamenn vora, sem vissulega
hefur ekki verið tilgangur sam-
bandslaganna. Við mikilvægar
stjórnarráðstafanir, sem eiga
eftir stjórnarskránni að koma
fyrir ríkisráð gætu slíkar höml-
ur gegn samning umboðslegra
skipana orðið alóþolandi. Kæmi
einhver rígur upp milli land-
anna, sem ekki væri óhugsandi,
mundi hlekkur ráðgjafarnefndar
á löggjöfinni sjálfri og kunna að
reynast ærið nægur þótt fram-
kvæmdarvaldið fengi að vera
frjálst frá þeim afskiftum. Er
því vonandi, að tekið verði í
tíma fyrir þessháttar venju, sem
gæti t. d. — þótt annað sje hjer
látið ónefnt — orðið til ómet-
anlegs tjóns fyrir framtíð og
velferð hins íslenska fullveldis,
við framsóknina um rjett vorn
yfir Grænlandi.
Einar Iienediktsson.
form Jiess, og síðar í meðferð
leikendanna, sem eiga að sýna
það.
Leikurinn er svo vel sýndur
af hinum ungu kröftum Leik-
fjelags Rej'kjavikur, sem frek-
ast er hægt að búast við. Sýning
hans er víða á borð við það
besta, sem hjer hefir sjest á leik-
sviði.
Agúst Kvaran leikur föðurinn.
Honum tekst best 'að sýna þá hlið
hans, sem að leikhússtjóranum
veit, alla hina varfærnu en þrá-
látu baráttu hans fyrir tilorðing
sjónleiksins, hvernig hann fer
að vekja áhuga og sköpunargleði
höfundarins. Frú Guðrún lnd-
riðadóitir leikur móðurina á-
gætlega, mædda og beygða konu,
ístöðulitla og einfalda. Ungfrú
Arndis Björnsdóttir leikur dótt-
urina og eru viða mikil tilþrif í
leik hennar, sjerstaklega þegar
hún lýsir þeim hrylling og við-
bjóði, sem tengdur er við ógeðs-
Iegustu stundir lífs hennar. Ind-
riði Waage leikur soninn, dreg-
ur upp mynd lians með fáum
föstum línum — fyrirlitninguna,
lífshatrið, einstæðingsskapinn
mitt í allri þeirri spilling og
eymd, sem eitrar andrúmsloftið
í kring uin hann og hann hvorki
skilur nje vill skilja. Brynjálfur
Jóliannesson sýnir leikhússtjór-
Sýningar.
Eyjólfur J. Eyfells.
Guðm. Einarsson.
Það eru fáar nýjungar á sýn-
ingu Egjólfs Eyfells. Efnaval og
meðferð eru hin sömu og þau
hafa verið síðan jeg man fyrst
eftir myndum hans. Öll þessi
sólarlög, glóandi himnar og
glampandi sær eru sjálfsagt í
miklum hávegum höfð meðal
fólks, en mjer sýnist frændsemi
þeirra við sanna list vafasöm.
Þó hefur Eyjólfur gáfur og nátt-
úrutilfinningu til að bera, svo
sem sjá má á stöku stað, en gáf-
urnar eru á rangri braut og
fjötraðar vana og „manierisma“.
Þessa list skortir alla fram-
sækni, alla baráttu — Eyjólfur
kann þetta svona og lengra fer
hann ekki.
Lognmollan ríkir á þessari
sýningu. Hjá Guðmundi Einars-
syni blæs aftur á móti röskur
byr, og þó enginn stormur. ís-
lensk. náttúra virðist hafa verið
list hans til bóta, skýrt litina
og stækkað formin. Suðurþýska
ídýfan er horfin, blær myndanna
er orðinn íslenskari og þó sjálf-
stæður og ólíkur öðrum hjer-
Lendum listamönnum. I Vest-
mannaeyja-myndunum má Ijós-
ast sjá þessa framför.
Guðmundur er fjölhæfur lista-
maður, og meitill, pensill og
radernál fara honum öll vel í
hendi. Nálin ef til vill best. Rad-
eringar á við „í vör“ og „Sjávar-
þorp“ eru frumburðir íslenskrar
svartlistar, og í þeim setur hann
það fram í fám strikum, sem
honum tekst ekki að ná i mál-
verkunum, þótt í stærra formi
sjeu.
E. Th.
ann af miklu fjöri og miklum
myndugleik, inanninn, sem er
vanur að stjórna, skipa fyrir,
koma af stað hreyfing og vinnu,
vastra og hamast, örva og
knýja áfram.
— Hinn ungi stjórnandi Leik-
fjelagsins, Indriði Waage, á skil-
ið þakkir og viðurkenning fyrir
það starf, sem þegar liggur eft-
ir hann. Hann hefir sjálfur sýnt
ágæta leikgáfu og það er aðdá-
anlegt, hve hinum yngri leikend-
um hefir farið fram undir Iiand-
leiðslu hans. Hann stefnir hátt
í vali sínu á verkefnum og
kemst vel frá því. Hann hefir
fyrstur ráðist í að sýna leilti
Shakespears á íslensku leiksviði
— í fyrra „Þrettándakvöld" en
nú eftir jól verður „Vetraræfin-
týri“ leikið. Og jafnframt hikar
hann ekki við að sýna nýtísku-
verk, þau er ör.Sug eru viðfangs
og óviss um almenningshylli —
„Á útleið“ og „Sex verur leita
höfundar“.
Nú kemur til kasta þeirra
sem unna listuin hjer í höfuð-
staðnum, livort þeiin leikur hug-
ur á að kynnast þeim höfundum,
sem á vorum dögum fara nýjar
leiðir og seinja frumleg verk.
K. A.
Af Austurlandi.
Frá Seyðisfirði er símað 9. þ.
in.: Ofsaveður og flóðgangur að-
faranótt laugardags austanlands.
Á Norðfirði brotnuðu um 30 ára-
bátar, sumir í spón, smábryggj-
ur og sjóhús brotnuðu allmikið.
Um 20 kindur týndust í sjóinn,
átta skippunda fiskhlaða tók út
af þurkreit. Á Mjóafirði týnd-
ust í sjóinn 3 árabátar og á bæn-
um Eldleysu 15 skippunda fisk-
lilaði af venjuleguin þurkreit.
Fiskhlaðinn var fergður með
klöppum. — Menn búast við þvi,
að brúin á Eskifjarðará verði
fullger í vikulokin. -— Fiskafli
var ágætur á Fáskrúðsfirði síð-
ustu viku og afli er hjer dógóð-
ur þegar gæftir eru sæmilegar.
— Bæjarstjórnin hjer ákvað fjár-
framlag minst 50,000 krónur til
byggingar fyrirhugaðs fjórð-
ungsspítala fyrir Austurland. —
Á Seyðisfirði hefir verið stöðug
hláka síðan á föstudag. Að mestu
autt orðið á láglendi.
Snjóflóðið nyrðra.
Frá Akureyri er símað 13. J>.
m.: Bley tuhríðar undanf arið
liafa viða orðið orsök að slæm-
um búsifjum. Torfbæir flestir
orðnir blautir i gegn og lekir og
sama er að segja um hlöður og
peningshús. — Snjóflóð hala
fallið viða og valdið skaða. Mest-
ur skaði af völdum snjóflóðs er
til spurst hefir, var á bænum
Skeri á Látraströnd. Snjóflóðið
tók fjárhús með 60 kindum og
heyhlöðu og 4 báta og sópaði
öllu á sjó út. Að eins 9 kindum
varð bjargað. Lá við, að fióðið
tæki bæinn líka. Slapp fólkið
nauðulega. 'Hefir J>að nú flúið
hann og búpeningurinn hefir
verið fluttur á næstu bæi. —
Maður lir Svarl'aðardal, Dag-
bjariur Borsteinsson, fórst i
snjóflóði á Háagerðisfjalli. Var
hann á rjúpnaveiðum.
Síra Ólafur Magnússon
í Arnarbæli er skipaður pró-
fastur í Árnessýslu.
Hressingarhæli Hringsins
í Ivópavogni var opnað siðasl-
liðinp sunnudag. Formaður
Hringsins, fóú Kristín Jac.obson,
sagði sögu fjelagsins. Var það
stofnað 1906 og hefir síðan unn-
ið að líknarstarfsemi. Hælið í
Kópavogi er ætlað berkaveiku
í'ólki, sem ekki er svo þjáð að^
liauðsyn krefji að það liggi á
heilsuhæli, en hins vegar ekki
fært um að rækja nema á-
reynslulitil störf. Hefir hælið
lcostað 75 ]>ús. kr. og Hringur-
inn þegar greitt 50 þús. af þeirri
upphæð, en 40 þús. hefir fjelag-
ið varið til ýmsrar annarar
starl'semi síðastliðin 20 ár. Auk
frúarinnar fluttu ræður síra
Friðrik Ilallgrímsson og Guðm.
Björnsson landlæknir. —- Krist-
jana Guðmundsdóitir hjúkrun-
arkona veitir hælinu forstöðu, en
læknir þess verður Sigurður
Magnússon á Vífils;- '"ðuin.
Prentsmiðjan Gulenberg.