Vörður - 16.07.1927, Síða 4
4
V ö R Ð U R
Heilsuhælið í Kristnesi.
Byggingu Kristneshælisins er
nú iangt komið, eins og sjest
á mynd þeirri, er vjer hirtum
af því í dag. Er ætlast til þess
að það verði fullgert 1. okt.
Framhlið hússins snýr mót
suðri og verður þaðan fögur
útsýn út á Eyjafjörð.
Húsið verður hitað með laug-
arvatni úr Reykhúsalaug. Er
VÖRÐUR
kemur út á laugardögum.
Ritstjórinn :
Kristján Albertson,
Túngötu 18. — Sími: 1961.
Af greiðslan:
Hverfisgötu 21.
Opin 10—12 árd. — Simi: 1432.
Verð: 8 kr. árg.
Gjalddagi 1. júIL
Aðalfundur Læknafjelags
íslands
var haldinn hjer í bæ 28.—30.
júní í þingsal Neðri deildar Al-
þingis. 26 læknar sátu þingið.
Hjer fer á eftir stutt skýrsla
um merkustu samþyktir þings-
ins, sem einn af læknum bæj-
arins hefir birt í Morgunblað-
inu:
„Heilbrigðislögc/jöf vor, sem
á sínum tíma var góð, er nú
orðin að nokkru leyti úrelt,
sumpart vegna nýrrar þekking-
ar, sem menn hafa öðlast á
síðari árum um ýmsar sóttir,
sumpart vegna þess, að sam-
göngur við útlönd hafa tekið
miklum breytingum, svo að ná-
lega allir sóttvarnarsjúkdómar
hafa lengri undirbúningstíma
en hröð ferð tekur milli landa.
— Þetta og ýmislegt fleira þarf
endurskoðunar við. Var þvi
samþykt tillaga þess efnis, að
skora á heilbrigðisstjórnina að
láta endurskoða heilbrigðislög-
gjöf vora, og fá þeim ákvæðum
breytt sem úrelt þykja.
Nokkurar umræður urðu um
Jögin um varnir gegn kijnsjúk-
dómum og ágalla, sem eru á
framkvæmd þeirra í sumum
greinum, einkum hve erfitt er
að eiga við sjúklinga, sem hirða
ekki um að leita sjer ladtninga
og gera það sem þeir geta til
að smjúga úr höndum lækn-
anna, en halda einlægt áfram
að sýkja frá sjer. Var sam-
þykt tillaga þess efnis, að skora
á heilbrigðisstjórnina að hlutast
til um að hentug varnartæki
yrðu útveguð öllum íslenskum
skipuin, sem sigla milli landa,
svo að hásetar og farþegar eigi
greiðan aðgang að þeim til að
verja sig kynsjúkdómum.
Um berklavarnalögin urðu
allmiklar umræður. Eftirfar-
andi tillaga var samþykt:
„Fundurinn telur berklavarnar-
lögin 1921 hafa þegar komið að
talsverðum notum, en álitur að
enn þurfi meiri reynslu til þess
að fullnaðardómur verði lagð-
ur á gagnsemi þeirra. Jafn-
framt vill fundurinn láta það
það 80° heitt í Jauginni, verður
leitt 300 mctra veg og kólnar
lítið á þeirri leið. Rafmagn til
Ijósa verður leitt frá Akureyri.
Ljóslækningaáhöld og Rönt-
gentæki hafa verið keypt til
hælisins.
Hælið rekur engan búskap
fyrst um sinn.
álit sitt í ljósi, að þær breyt-
ingar, sem stjórn og alþingi
þegar hefir gert á tjeðum lög-
um sje tvímælalaust til hins
verra og skorar á stjórn Lækna-
fjelags íslands, að gera sitt til
að ekki verði gerðar breytingar
á því lagasmiði, án þess að
læknastjettin eða formælendur
hennar hafi áður gert tillögur
sínar“.
Þá urðu nokkurar umræður
um sullaveikina hjer á landi.
Almenningur er þrátt fyrir alla
fræðslu, enn alt of skeyting-
arlaus um að varna hundum
að komast í sullina. Eru jafn-
vel dæini til að sollið síátur
sje borið á tún og er slíkt ó-
verjandi með öllu, þar sem
fólki ætti þó að vera fullljóst,
að hver sá sullur, sem ekki er
eyðilagður, grafinn djúpt niður
eða brendur, er hættuefni
mönnum og skepnum. Sulla-
veikinni verður ekki útrýmt
hjer á landi, meðan nokkur
sullur er skilinn eftir í hirðu-
leysi. Líklega eru menn yfirleitt
of óvarkárir í umgengi við
hunda. Því þótt hundarnir sjeu
hreinsaðir, er ekki þar með sagt
að þeir sjeu skaðlausir. Marg-
ir læknar hafa illan bifur á
hundahreinsuninni, halda að
hún komi ekki að tilætluðum
notum. Víst er um það, að
sullaveikin er enn fjarri því að
vera kveðin niður sem skyldi,
en ætti þó að vera innan hand-
ar að útrýma veikinni gersam-
lega, til þess þarf ekki annað en
að eyða öllum sullum, svo að
hundar komist ekki í þá; og
þar sein við skynsama alþýðu
er að eiga, ætti málið að vera
auðsótt. Till. var samþykt frá
G. Claessen um að skora á
dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
að Játa rannsaka með ráði
læknadeildar háskólans, „hve
algengur sullaveikisbandonnur-
inn er í hundum hjer á landi,
og að hverju gagni hundalækn-
ingar koma með þeim lyfjum,
sem til þess eru notuð“.
Þá var rætt erindi frá Bann-
bandalagi íslands, þar scm það
fer fram á, að Læknafjelag Is-
lands sendi mann á fulltrúa-
fund bandalagsins. Samþykt var
að laka ekki þátt í Bannbanda-
laginu vegna þess, „að lækna-
fundurinn lítur svo á, að því
miður sje það fullreynt, að
bannlögin geta ekki náð til-
gangi sínum og hafi líklega
frekar gert ilt en gott. Þess
vegna telur fundurinn rjett að
lögin sjeu sem fyrst numin úr
gildi. Heilbrigða bindindisstarf-
semi er Læknafjelagið fúst að
styðja“.
Ýms fleiri mál voru rædd, svo
sem framhaldsmentun kandi-
Islendingar styðja íslenskan iðnað.
Islendingar flytja vörur sínar á íslenskum skipum.
Islendngar sjó- og bruna-tryg2)a
hjá Sjóvátryggingafjelagi Islands.
Íþróttakensía.
I haust byrja jeg á nýrri kensluaðferð í líkamsæfingum,
sem allir geta tekið þátt í, hvar sem þeir eru á landinu.
Aðferð þessi er í því fólgin, að fyrsta hvers mánaðar, meðan
námskeiðið stendur yfir, sendi jeg nemcndunx mínum núkvæma
lýsingu á æfingum þeim sem jeg kenni, ásamt fjölda mörgum
myndum. Mun jeg reyna að hafa lýsingar og mynair svo
skýrar, að elcki geti verið um það að ræða, að fólk geri æfing-
arnar rangt.
Fyrsta leikfimisnámskeiðið með þessu fyrirliomulagi hefst
1. okt. eða 1. nóv., ef nemendur óska þess heldur, og stendur
yfir í 7 mánuði. Námskeiðið er aðeins fyrir hraust fólk, cn bæði
fyrir konur og karla á hvaða aldri senx er. Nenxendum skifti jeg
í deildir eftir aldri, er gjaldið fyrir kensluna frá kr. 2.50 til
kr. 6.00 á mánuði. Fólk, senx ætlar sjer að taka þátt í námsskeið-
inu, ætti að senda umsóknir eða íyrirspurnir til íxiín hið allra
fyrsta.
JÓN ÞORSTEINSSON
frá Hofstöðum.
Mullersskólinn. Reykjavík. Sími 738.
AugnlækningaferÖalag 1927.
Dvel á Patreksfirði frá 29. júlí til 1. ágúst, þaðan
raeð Esju um Flatey til Stykkishólms og dvel þar frá
2. til 7. ágúst, og ef til vill lengur.
Guðm. Guðfinnsson.
M]0LL
Mjöll er búin til úr ágaetri íslenskri
kúamjólk. Hún er soðin niður með besfu
og nýjustu tækjum. Hún er laus við
öll óviðkomandi efni og tekur því
fram allri erlendri mjólk. — Styðjið inn-
lendan iðnað! Kaupið Mjöll!
A ðalumboðsmaður:
Sig. B. Runólfsson,
Reykjavík.
data, stofnun varahjeraðslækn-
isembættis, tillaga frá D. Sch.
Thorstcinsson um aukna kenslu
fgrir almenning í heilbrigðis-
fræði o. fl.
Foi’inaður fjelagsins fyrir
næsta ár var kosinn prófessor
Guðm. Hannesson, nxeðstjórn-
endur Gunnl. Claessen og Niels
Dungal, en varamaður Ólafur
Finsen hjeraðslæknir.
Reikningur Landsbankans
fyrir árið 1926 er nýkominn
út. Tekjur bankans síðastliðið
ár hafa alls nunxið kr.
3.180.131.82 (að fiádi’egnum
kr. 110.630.36, er fluttar voru
frá fyrra ári), en árið áður
námu þær kr. 3.874.471.40.
Innborgaðir vextir hafa nunxið
á árinu kr. 1.412.684.44 (1925:
kr. 1.546.989.36) og forvextir af
víxluin og ávísunum kr.
1.400.240.11 (1925: kr. 1.215.
847.18). — Ágóði af íækstri út-
búana nam kr. 53.362.32 1925:
kr. 86.382.63), ýnxsar tekjur
búana nam kr. 53.362.32, 1925:
935.187.39), verðbijef hækkuðu
í verði Unx kr. 9.294.60 og á-
góði af fasteignarekstri nam kr.
14.898.04. Þegar dregið er frá
tekjunum greiddir vextir og
kosnaðui’inn við rekstur bank-
ans, alls kr. 2.516.106.75 (þar
xneð taldir vextir af seðlum í
unxferð samkv. lögum frá 1922),
vei’ður afgangs af tekjum kr.
664.025.07 og kr. 110.630.86
voru fluttar frá fyrra ári. Af-
ski'ifað tap bankans sjálfs á
lánum og víxlum naxn kr.
900.520.00, útbúsins á ísafirði
kr. 250.000.00, útbúsins á Eski-
firði kr. 26.903.68, útbúsins
á Selfossi kr. 20.157.06 og af-
skrifað var af húseign bankans
í Reykjavík kr. 30.000.00. Lög-
ákveðin gjöld nema kr. 15.000.00
og kr. 245.923.11 eru fluttar til
næsta árs nx. a. fyrir fyrirfram
greiddum vöxtum. Alls nema
gjöldin kr. 4.004.610.60 og jafn-
ast mismunurinn nxeð vara-
sjóði kr. 713.847.92.
Sendiherra Þjóðverja
í Khöfn, von Hassel, sem um-
boð hefir til konungs Islands og
Danmerkur, hefir dvalið hjer
um tínxa í vor og fór utan aft-
ur 14. þ. m. Frú hans var xneð
í förinni og ferðuðust þau hjón
sjóleiðis til Akureyrar, en land-
veg suður. Sendiherrann kvaddi
blaðamenn á fund sinn, áður
en hann fór lxeimleiðis og bað
þá að votta þjóðinni þakkir
fyrir góða viðtökur. Var hann
sjerstaklega ánægður með hin-
ar alúðlegu viðtökur, er þau
hjón hefðu notið á íslenskum
bóndabæjum á leiðinni að norð-
an og fór loflegum orðum unx
þá menningu og það lundarfar,
er hann hefði kynst í sveitum
landsins. Sendiherrann kvaðst
hafa haft mikla ánægju al' ís-
landsför sinni, af allri viðkynn-
ing sinni við hina fámennu
frændþjóð sinnar eigin þjóðar
og kvað sterkt að orði unx hina
mai’gvíslegu framfaranxöguleika
hjer á landi. Lagði hann sjer-
staka áherslu á það, hve mik-
ils virði það væri að smáþjóð-
irnar gætu varðveitt menning-
arlegt sjálfstæði sitt og með því
lagt skerf sinn til þess að auka
auð og fjölbreytni evrópskrar
menningar. Hann ljet í Ijósi ó-
ánægju sína yfir ómaklegum á-
rásunx er íslensk stjórnai’völd
hefðu orðið fyrir á síðari tím-
uin i þýskum blöðum og sagði
að reynt myndi vei’ða ,að koma
í veg fyrir slíkt í framtíðinni.
Vísindalegur léiðangur.
Danski náttúrufræðingui’inn
Niels Nielsen, Pálmi Ilannesson
magister og Seinþór Sigurðsson
stud. mag. verða í sumar við
rannsóknir hjá Fiskivötnum
vestan Vatnajökuls. Ætla þeir
að gera laixdnxælingar þar,
rannsaka jarðmyndun, jurta-
og dýralíf í vötnunum o. fl.
Ráðgera þeir að dvelja í óbygð-
um mestan hluta sumars og
koma aftur í miðjum septem-
ber. Carlsbei’g-sjóðurinn og Sátt-
málasjóður kosta förina.
a
Jón Þorsteinsson
íþróltakennari auglýsir hjer
í blaðinu leikfimiskenslu nxeð
nýstárlegu nxóti. Ætlar hann
fyrir mjög lítið verð, að senda
mánaðarlega út um land leið-
beiningar um líkamsiðkanir og
myndir til skýringar. Mynda
þessar leiðbeiningar sanxfelt
kei-fi, sem auðvelt verður að
fylgja. Er auðsætt að hjer er á
boðstóluin ágæt tilsögn fyrir
alla þá, er iðka vilja holla leik-
fimi, en eiga ekki kost á kenn-
ara. J. Þ. hefir getið sjer hinn
ágætasta orðstír sem íþrótta-
kennari hjer í bæ og fjöldi
manns sótt Mullers-skóla hans.
Tveir merkir gestir
frá Ameríku eru komnir
hingað nýlega, prófessor Litch-
field Merril frá tekniska háskól.
í Chambridge, Mass., með frú
og dóttur á listiskipinu, en
hinn, dr. Frank Cawleg, kenn-
ari í norrænum fræðuni við
Harward háskóla, með „Brúar-
fossi". Ætlar dr. Cawlcy að
dveljast hjer um tveggja mán-
aða skeið i Borgarfirði og á
sögustöðununx austur í Rang-
árvallasýslu. Báðir báru kveðj-
ur frá háskólum sinum til há-
skólans hjer.
Skóíamál Sunnlendinga.
Um leið og kosið var lií þings
á Rangárvöllum, var leilað at-
kvæða um hvort Rangæingar
vildu heldur koma sjer upp
hjeraðsskóla einir eða þá i
samvinnu við Árnesinga. Með
samskóla voru greidd 499 atkv.,
með sjerskóla 363. Ógild urðu
45 atkv., en 219 seðlar voru
auðii’.
Prentsmiðjan Gutenberg.