Vörður


Vörður - 03.12.1927, Síða 1

Vörður - 03.12.1927, Síða 1
Ritstjóri 03 ábyrgS- armaður Kristjár. Albertson Túngötu !S. V. ár. Heimsþing iúíherstrúarmanna. í júlí 1929 verður haldið í ; Kaupm.höfn alþjóðaþing lúth- erstrúarmanna, og er búist við því að það verði hin merkasta mótmælendasamkunda síðan á siðabótatímum. Sækja það i'ull- trúar frá öllum Evrópulöndum og öllum álfum. Tveir af for- göngumönnum þingsins, Mnre- head prófessor i’rá New Yorlc og Dr. Pehrson frá Gautaborg, | dvöldust fyrir skemstu í Khöfn j til þess að undirbúa það, og var þá tekin mynd sú af þeim | sem vjer birtum í dag. Prófess- orinn talaði á þessa leið um þingið við danskan blaðamann: — Þar verða fyrst og fremsl rædd þrjú mikilvæg efni: Hvernig eigum vjer að laða æskuna að kirkjunni og hvern- ig á að haga kristindóms upp- eldinu? Hvað á kristindómur- inn að leggja til úrlausnar á þjóðf jelagsvandamálum vorra tíma? Og hvernig geta lúthersku kirkjurnar í öllum lönduin sameinast í skipulagsbundna hcild, þannig að kirkja hverrar þjóðar haldi þó fullu sjálf- stæði? Kaþólska kirkjan sækir i'ram, við verðum að tengjast samtökum, vinna saman, skipa okkur í eina fylking. Stórskáld vorra tíma. Grazia Deledda. Á laugardaginn kemur (10. des.) verður Nobels-verðlaunun- um úthlutað í Stokkhólrni. Bók- mentaverðlaunin fær að þessu sinni ítalska skáldkonan Grazia Deledda, sem á síðari árum hef- ir hlotið heimsfrægð fyrir skáld- sögur sínar frá Sardína. Hún er 52 ára (fædd 1875), og' ólst upp á Sardína. Foreldr- ar hennar lifðu fábreytilegu lífi i fagurri, frjórri fjallasveit. Dóltirin fjekk snemma djúpa ást á ' viltri l'egurð heimkynna sinna og hinu óbreytta lífi bændanna. 15—16 ára gömul skrifaði hún fyrstu smásögur sínar og kom þeint á prent í rómversku tímariti. Hún hljóp með það tii foreldra sinna og sýndi þeiin hróðug nafn sitt undir sögunum. Þau urðu æf og bönnuðu henni að halda áfram að skrifa. Það væri líit sæmandi ungri stúlku af góðu fólki að fást við slíkt. Nábúarnir hneyksluðust mjög á þessu til- tæki henriar hún hafði sett blett á nafn æltar sinnar og stallsystruin hennar var bann- að að vera með henni. Grazia gerðist dul og ómannblendin, en einsetti sjer að verða fræg skáhlkona. Afonn hennar óx og feslist í kyrþey, hún opnaði hug og ímyndun fyrir líi'i og nátt- úru á Sardína og kynti sjer sem best hún málti aít er að því laut, að geta lýst fæðingarey sinni í skáldverkum. 25 ára gömul giftist liún em- bættismanni i hermálaráðuneyt- inu í Róin og hefir síðan skrif- að hvert skáldverkið á fætur öðru. Allar frægustu sögur hennar gerast á Sardina, í döl- um, hálendi og þorpum hinnar blómauðgu, litmörgu, ilmandi og slórfenglegu eyjar. Sögufólk- Reykjavík 3. etesember 1027. 40. blad. Kaldhæðni örlaganna ið er bændur og hjarðmenn og ungar stúlkur í þjóðbúningi, óspilt og frumrænt fólk með sterkar ástríður, vilt, óbrotið till'inningalíf, örlynt, skjótt að grípa til hnífsins og fremja hermdarverk — en innst inni góðlynt og heiðarlegt, trygg- lynt og ástríkt. Hún lýsir lifi þess í stríði og önnum, cjansi og gleði, hátíðum þess og píla- grímsgöngu lil bændahúsanna uppi í fjöllunum — í sólskini hins suðræna bláhimins, í þrumuveðrum og fjallaskúrum. Sálarlýsingarnar eru skarpar og lifandi. Alt efnið fullkomlega á valdi hennar. Hún hefir auðg- að bókmentir heimsins með lýs- ingu heillar þjóðar og hins dýrð- lega eylands, sem hefir fóstrað hána. Þegar henni barst sú l'regn að henni hefði verið veitt Nóbelsverðlaunin, hin mesta ytri viðurkenning sem skáldi getur hlotnast, þá komst hún svo að orði við blaðamenn, að hún hcfði búist við þeim í mörg ár. Það má gera ráð fyrir því að á næstu árum verði ýms af bestu verkum hennar þýdd á Norðurlandamál. Ein af sögum hennar er til á dönsku, „Efter Skilsmissen", önnur á sænsku, „De levendes Gud“ (talin ein af fremstu sögum hennar, þýdd af skáldinu Anders Österling). Afvopnunarfundurinn. Iíhöfn 30. nóv. Frá Genf er símað: Afvopnunarfundur Þjóðabandalagsins var settur í dag. Lögreglan hefir gert víð- tækar ráðstafanir til þess að vernda líf rússneska fulltrú- ans. s Menn búast við því, að til- lögur Rússa fari i þá átt, að þjóðirnar minki allan herbún- að urn helming. Frá Berlin er símað: Margir menn ætla, að Þjóðverjar sjeu hlyntir tillögum þeim, sem Rússar ætla sjer að bera fram á afvopnunarfundinum í Genf, og muni þýsku fulltrúarnir verða stuðningsmenn tillagn- anna. Frá Genf er símað: Aðalhlut- verk afvopnunarfundar Þjóða- bandalagsins, sem nú er liald- inn, er að kjósa nefnd, sem á að rannsaka öryggismálin. Fer nefndarkosning þessi fram samkvæmt samþykt, er náði fram að ganga á þingi Þjóða- bandalagsins i september. Þá er afvopnunarfundurinn var settur, fóru fram almennar um- ræður um afvopnunarmá). — Fulltrúi Rússa á fundinum, Lit- vinov, bar fram tillögur á fundi þeim, sem haldinn var i gær, um lullkomna, almerina af- vopnun innan fjögra ára. Frestað var til næsta nefndar- fundar að ræða tillögur þær, sem Litvinov bar fram fyrir hönd rússnesku ráðstjórnar- innar. Khöfn 2. des. Frá London er símað: Tillögur þær, sem full- trúi Rússa bar fram á afvopn- unarfundi Þjóðabandalagsins í Genf, fá yfirleitt daufar við- tökur hjá þeiní, sem sæti eiga á fundinum. — Frjálslyndu blöðin í Englandi virðast vera þeirrar skoðunar, að það sje óhugsanlegt, að hægt sje að hrinda því í framkv. á skömm- um tiina, sem felst í tillögum Rússa, og sje því óþarft að ræða þær að sinni. Varalögregla. Jón Magnússon lagði fyrir þingið 1925 frv. til lag'a um varalögreglu í kaupstöðum, er vera skyldi til taks þegar hin venjulega lögregla ekki fengi haldið í skefjum uppivöðslu- seggjum og óeirðarmönnum. Þegar hann var aðspurður hvers vegria frv. væri fram- komið, minti hann m. a. á að það hefði nokkrum sinnum komið fyrir í kaupdeilum í Reykjavík, að•stofnað hefði ver- ið til óspekta, lögreglan lirak- in og barin o. s. frv. ,1. M. kvað þjóðfjelagsvaldið ekki geta horft upp á slíkt til lengdar án þess að gera ráðstafanir til þess að tryggja það, að yfir- völdin bæru jafnan sigur af hólmi í slíkum viðureignum. Frainsóknar- og jafnaðar- blöðin hófu nú ákafa rógburð- arofsókn á hendur íhalds- flokknum fyrir frv. þetta. íhaldið ætlaði að fara að berja á verkalýðnum! Ungir og efni- legir „hugsjónamenn" úr verka- mannastjett áttu ekki framar að geta hrakið lögregluna, ráð- ist á vinnandi menn, skorið á vatnsslöngur o.s.frv.! Hvilíkt of- beldi, að ætla sér að hindra slíkt! Frv. dagaði uppi í þinginu, en rógburðinum hefir stöðugt verið háldið áfram. Það eru ekki nerna fáar vik- ur siðau núver. dómsmálaráð- herra sagði að íhaldsstjórnin hefði viljað „fá her til að berja á hjúum sínum“. Vjer komum að því síðar hvaða isl. ráð- herra haí'i fyrstur skákað „hjúum“ sínum með hervaldi. Óeirðirnar í fyrra. Vorið 1926 var enn kaup- deila í Reykjavík, verkfall við höfnina o. s. frv. Verkalýðs- leiðtogarnir bönnuðu m. a. að skipað yrði upp úr „Lyru“, hún sigldi með vörurnar aftur lil Noregs. Kaupmaður einn fór með skrifstofumenn sína nið- ur á hafnarbakka og ljet þá setja í land nokkra kassa af éggjum. Allmikill höpur ungra jafnaðarmanna safnaðist utan um þá, barði þá, reif klæði þeirra og fleygði eggjakössunum aft- ur iit i „Lyru“. Tveir lögreglu- þjónar horfðu á þetta án þess að hreyla legg eða lið. Annað- hvort hafa þeir hugsað sem svo, að enginn mætti við margn- 11111, eða þeim hel'ir skilist sein Alþingi ætlaðist til þess, að jafn- aðarmenn hefðu sjerrjettindi til þess að stofna til óspekta og að ekki skyldi taka hart á því, þó að þeir rifi klæði frið- samra borgara og gæfi þeim glóðarauga. Sama dag tefst öll umferð um Austurstræti, þar var aðsúgur og áflog og ópin gluindu um allan miðbæinn klukkustundum saman. Hvergi sást lögregluþjónn. En daginn el'tir hældist .Alþ.bl. um á fremstu siðu yfir þeim stór- sigri hugsjóna og siðmenning- ar, að einn andstæðinga þess hefði verið hárreittur í bardag- anum. Þingið sat þá á rökstólum. Má geta þess að enginn al' þingmönnum Framsóknar sá á- stæðu til þess að hælast um yf- ir viðburðunum og minna á hve giftusamlega Alþingi hefði farist árið áður, þegar frv. um varalögreglu var svæft. ,,Litla ríkislögreglan“. A síðasta Alþingi bar íhalds- sljórnin fram frv. um starfs- menn á varðskipum ríkisins. Alþ.bl. hamaðist allan þingtím- ann á móti þessu frv., taldi að hjer ætti að fara að koma upp einskonar grímuklæddri vara- lögreglu. „Litla ríkislögreglan" hefir blaðið jafnan nefnt varð- slcipin í háðungarskyni. Blaðinu stóð geigur af þeirri tilhugsun, að ríkisvaldinu gæti einhverntima orðið stuðningur að varðskipunum, þegar halda þyrfti uppi lögum og rjetti. Grunur blaðsins hefir nú reynst rjettur. Stjórn sú, sem Alþ.bl. styður, hefir nú gert varðskipin að „lítilli ríkislögreglu". Sá af ráð- herrunum, sem jafnaðarmönn- um er hlýjast til, sem best hef- ir stutt þá í baráttunni g'egn lög. um varðskipin, hefir nú tek- ið þau í þjónustu sína til þess að framfylgja lögurn og rjetti. En auðvitað ætlar stjórniri ekki að nota varðskipin geg'11 saklausum og heiðarlegum á- flogahundum úr l'lokki hug- sjónamanna. — Varðskipin hafa verið notuð til þess að ógna mönnum, sem engum hefir dottið í hug að hafa ætti forrjettindi til yfirgangs og uppivöðslu. Og má því búast við að Alþ.bl. uni því hið besta, að varðskipin eru nú orðin „lilil ríkislögregla". Bolvíkingar. Vjer höfum áður skýrt frá því, er Bolvíkingar ráku á brotl rannsóknardómarann Halldór Júliusson, söfnuðu liði gegn honum og fylgdu honum til skips. Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Bolungar- víkur og setti rjett þar. En á meðan rjettarhaldið fór fram, lá varðskipið „Þór“ á höfninni i Bolungarvík. Nú fjeli alt í ljúl'a löð, dómarinn hafði ekki frekar orð á því að laka hrepp- stjóra Bolvíkinga í gæsluvarð- hald og komst brátt að raun um að hann væri sýkn saka. „Þór“ ljetti akkerum án þess að neitt sögulegt hefði gerst. Það er eftirtektarvert hvern- ig Timinn (12. nóv.) skrifaði út af tiltæki Bolvíkinga: „í ákveðnustu íhaldshjeruð- um landsins, Rangárvallasýslu

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.