Menntamál - 01.12.1931, Side 13
MENNTAMÁI
125
fyrirkomulagi, hvar sem hann sér þa'ð koma íram í þjóÖfé-
laginu. A'ð ýmsu leyti svipar skoðunum Shaws á uppekli all-
mikiÖ til lífsskoÖunar Rousseau’s, én Shaw hættir þó alltaf til
íiÖ lita á uppeldiÖ frá þeirri ,,negativu“ hlið, nefnil. að hugsa og
segja: Svona eiga hlutirnir ekki að, vera, þetta fyrirkomulag
er vitlaust o. s. írv., heldur en benda á verulegar „pósitivar" leiðir
til sannara uppeldis. í. einni af hinum fyrstu ritgerÖum Shaw’é
um uppeldi: „Au adult and a chilcT’, líkir hann fullorðna
fólkinu í ensku þjóðfélagi við hugvitsmenn þá. sem finna upp
og gera vélar, og hann segir, að enskir íoreldrar og uppeldis-
fræðingar skoði barnið eins og vél, sem að visu þurfi að slípa
og smyrja og láta i té hleðsluefni, svo að gangi af sjálfu sér.
en annars virðist þeir ekki hafa skilning á því, að barnið sé
lifandi vera, sem gædd sé einstaklingsmeðvitund, og þarfnist
hvcrt um sig sinna eigin sérstöku vaxtarskilyrða. Og þetta
hefir verið áhugamál Shaw’s síðan. I fann hefir barist á móti
þeirri aðferð, að gera tilraun til að steypa allá í sama mótið,
hann hefir sett sig í spor barnsinS og heimtað frjálst starf,
lífræna kennslu, meiri rannsókn á hverjum einstakling, eðli
hans, jjroska hans, ,.iijteressum“ hans Og hæfileikum. Og þar
með vill hann að reynt sé að finna starfssvið handa hverju
barni, sem þvi sé hæfilegt.
Sliaw er oft hvassyrtur i skrifum sinum, en ef vel er aÖ
gáð, má ætíð finna heilindin og mannúðina, sem býr að baki
orðuin hans, hann leitar að meinsemdum, eins og góður og
sannur læknir, og hann sker upp og þrýstir á meinsemdir, þar
sem hann finnnr ])ær, ekki lil að særa, heldur til að lækna.
J. S.