Menntamál - 01.01.1933, Side 20
20
MENNTAMÁL
aukist viðnáms])i'óttur gegn blóðleysinu og kröminni, og að þau
hafi að verulegum mun minna sóttst eftir sleikipinnum og öðr-
urn slíkum óþverra. Mjög athyglisverða skýrslu um þetta flutti
útvarpið á dögunum frá hlutaðeigendum, og er ekki ástæða til
að vefengja hana.
Þá er eg hafði kynnst þessu er að ofan getur, þótti mér ein-
sætt að hreyfa þessu hér á Akureyri, því að nóg er hér af kirtla-
veikinni og blóðleysinu og herklunum, og því ekki vanþörf á
að reyna að stappa í börnin líkamlegum þrótti, og neyta til þess
svo að segja allra skynsamlegra ráða.
Skólanefndin tók strax vel i málið, og ákvað að leggja til
við hæjarstjórn, að upp yrði tekin ofurlítil Schiötz-máltíð hér í
skólanum í vetur, sem hærinn og þeir aðstandendur er gætu
og vildu, kostuðu í félagi. Skyldu börnin fá 200 gr. mjólkur,
100 gr. skyrs, eina rúghrauðssneið smurða síldarkæfu. Síldina
ætlaði Jón Kristjánsson að gefa, og K. E. A. brauðið, og kom
þá i bæjarins hlut mjólkin og skyrið, eða um 10 aurar á harn
á dag. Auðvitað áttu aðstandendur harnanna sjálfir hér frjálst
val um neyslu þessarar máltíðar, gátu látið börnin neyta henn-
ar, eða ekki, horga hana, eða ekki. Aðalatriðið, að þau hörn
nytu hennar sem þyrftu.
En er til bæjarstjórnar kom, felldi hún með 6 atkv. gegn 5
allt fjárframlag til þessa matarmáls, og er það því úr sögu í
hráð. En málið er þess eðlis, að líklegt má þykja, að valdhafar
heilhrigðismála hæjarins taki þetta merkilega heilbrigðisniál til
athugunar og átti sig svo á ]jví, að fyrir þeirra atheina komist
])að í framkvæmd síðar meir.
En skólanefndin hefir ekki gefist upp. Hún hefir nú sam-
þykkt að reyna til að koma mjólk inn í skólann, og ætlar að
verja til þess 500 kr. af því fé, sem skólanum er ætlað til óvissra
útgjalda. En liklegt er að ])að hrökkvi skammt, og mun þvi
nefndin ætla sér að leita eftir frjálsum framlögum hjá góðum
mönnum í þessu skyni, og er að vænta þeSs, að menn, sem eitt-
hvað geta, verði vel við, ]>vi málið er tvímælalaust nauðsynja-
mál, og góðverk að styðja að framgangi þess.