Menntamál - 01.01.1933, Qupperneq 24
24
MENNTAMÁL
Magnúss, (allir endurkosnir), Gísli Jónasson og Pálmi Jósefs-
son (nýir). Formaður félagsins er Gunnar M. Magnúss.
Félagið hefir haft stéttarmál ýms með höndum, t. d. hefir það
átt í harðri deilu við skólanefnd Rvíkur um það, hvort nota
skyldi gólf í minni leikfimisal Austurbæjarskóla Rvíkur. Gólfið
er þannig, að 7 mm. þykkur dúkur er lagður á steingólf. Stétt-
arfélagið hafði óskað eftir því, að trégólf yrði sett í salinn.
Leikfimikennarar neituðu að kenna börnum almenna leikfimi á
gólfi þessu. Skólanefnd vék þá kennurum þessum (þremur) frá
starfi.
Stéttarfélagið sótti nú málið i samvinnu við stjórn Kennara-
sambandsins. Var málið sótt með festu og rökum, og er nú lok-
ið með fullum sigri kennara. Margir hafa fylgt máli þessu með
eftirtekt. Flefir þetta styrkt mjög samtök kennara og aukið álit
annara manna á stéttinni.
Rætt hafði verið á fundum félagsins i haust um stofnun bygg-
ingarfélags kennara. Upp úr þeim umræðum var svo stofnað
sjálfstætt félag, óháð Stéttarfélaginu. Kosnir voru í stjórn bygg-
ingarfélagsins: Aðalsteinn Eiriksson, Arngrímur Kristjánsson
og Valdimar Sveinbjarnarson.
Þá má minnast á mál eitt, er mjög getur orðið til gagns fyr-
ir einstaka kennara eða stéttina í heild. Það er ræktunarmál i sam-
handi við sumaratvinnu kennara. Forgöngu i því máli hefir
Aðalsteinn Eiriksson haft. Hefir hann, bæði sem einstaklingur
og félagsmaður, athugað möguleikana fyrir þvi, að kennarar
geti á hagkvæman hátt fengið landsvæði til ræktunar. Og i þvi
sambandi hefir hann skrifað Búnaðarfélagi íslands og ríkisstjórn,
og fengið þau svör, er gefa vonir um góðan íramgang málsins.
Sig. Sigurðsson búnaðarmálastjóri hélt svo erindi um mál þessi
i des. síðastl. á fundi í Stéttarfélaginu.
Kennarastéttin hefir um skeið orðið fyrir grimmilegum árás-
um frá þröngsýnum mönnum og oftrúuðum. Hafa kennarar
verið sakaðir um kristindómsfjandskap, guðleysi og falskenn-
ingar í kristindómsfræðslunni. Ofsóknarmenn hafa reynt að
spilla vinnufriði kennara og æst foreldra gegn skólunum með