Menntamál - 01.01.1933, Síða 26
26
MENNTAMÁL
húsi fyrir útlendinga i Múnchen. Borðhald verÖur sameiginlegt
í veitingahúsi. Gjald fyrir ofannefnt verÖur RM. 250,00 (aÖ
meÖtöldu fæÖi og húsnæði). Auk þess verÖur efnt til 4 skemmti-
ferða upp í Alpafjöllin og til Heidelberg, en ferðalög þessi
greiðast aukalega. Umsóknir verða að vera komnar til Múnchen
fyrir 1. júní næstkomandi.
Fyrir námskeiðinu stendur dr. Thierfelder, aðalritari Aka-
demísins, sem einnig las norrænu á stúdents-árum sinurii. Til-
gangur þessara námskeiða er að gefa öllum, sem kenna þýsku
utan Þýskalands, tækifæri til þess að fullkomna þekkingu sína
í Þýskalandi sjálfu og jafnframt kynnast stéttarbræðrum sin-
um og ástæðunum í Þýskalandi yfirleitt, þar að auki að lýsa
fósturjörð sinni fyrir ])ýsku menntafólki og þannig stuðla að
gagrikvæmum skilningi milli þjóðanna.
Komið getur til mála, að haldið verði sérstakt námskeið fyr-
ir Norðurlönd með svipaðri tilhögun og að framan greinir. Ef
a. m. k. 20 íslenskir kennarar vildu sækja slikt námskeið, mun
Akademiið gangast fyrir sérstöku námskeiði fyrir þá. Það