Menntamál - 01.12.1936, Side 1

Menntamál - 01.12.1936, Side 1
Fæ'ðslumálaskrifstofan, skýrslur II. Málbreytingar. Landspróf vorið 1934. Útdráttur úr skýrslum Bjarna M. Jónssonar og Aðalsteins Sigmunds- sonar. — Reykjavík, 1935. — Bls. 43. Svo litið sem fer fyrir þessu kveri, þá er það vist mesta nýjungin í íslenzkri málfræði, sem út kemur á landinu, og þótt víðar væri leitað, á því herrans ári 1935. Hér er í fyrsta sinn i stuttu máli, — merg- ur þessa máls er allur i skýrslunni á bls. 36—37, — gefið yfirlit yfir út- breiðslu þriggja binna merkustu hljóðbreytinga, sem nú eru að gerast i máli Islendinga, um land allt. Langt er siðan menn vissu um „nesjamálin“, „sunn- lenzkuna“, „flámælskuna“, „hljóðsýkina“, „hljóðvillurn- ar“, en breytingin i > e, u > ö hefir gengið undir öllum þessum nöfnum. Nokkuð vissu menn og um útbreiðslu þessara „bljóðvillna“ um landið, og hugmynd höfðu menn um, að breytingin i > e væri almennari en u > ö. En þessi skýrsla gefur ákveðnar tölur úr öllum sýslum og bæjum landsins. Kemur það upp, sem líklegt mátti þykja, að breytingin er útbreidd um land allt, en þó miklu sjald-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.