Menntamál - 01.12.1936, Side 3

Menntamál - 01.12.1936, Side 3
3 ritgerð mín, Beitráge zur Phonetik der islándischen Sprache, kom út 1927, nema norski hljóðfræðingurinn Johan Storm. Hann tók eftir því um 1890, þegar hann var að lýsa sunnlenzku hljóðunum fyrir p, t, k, og t og k urðu að d, g', en p, hélzt óbreytt. (Englische Philologie, I, bls. 237). — Hinsvegar fann eg í áminnstri ritgerð, að k, í mínum austfirzka harða framburði bæði milli sérliljóða og oft í öðrum stöðum, var lítið eitt styttra en p og t. Og við rannsókn á framburði Sunnlendingsins Arsæls Sigurðs- sonar (A Specimen of southern Icelandic speech, Oslo 1931) kom það ennfremur í ljós, að k oft sýndi raddaða sprengingu (opnun) á undan sérhljóði, þar sem t og p höfðu óraddaða sprengingu (opnun). En bæði stuttleiki samhljóðsins og tilhneiging til rödd- unar bendir til veiklunar þess; at-kvæði þess er að lin- ast upp, og er það því réttmæli, þegar alþýða manna kallaði þetta linmæli. k er frá náttúrunnar liendi veikast á svellinu, t og p koma á eftir. Eftir þeim gögnum, sem nú eru fram komin, er því óhætt að fullyrða, eigi aðeins að flestir breyti k í g, heldur einnig að linmælskan yfir- leitt hafi fyrst hyrjað í orðum með k milli sérhljóða. Það eru raunar tvö atriði hér, sem taka þyrfti til íhug- unar, ef vera mætti að þau hefði einhver áhrif á hina mis- munandi tíðni villanna um p, t og k. Fyrst er það, að í ritmáli rétlu kemur p, t aldrei fyrir milli sérhljóða, svo börnin sjá það aldrei fyrir sér í venjulegu prentuðu máli. Aftur á móti kemur g fyrir miili sérhljóða, t. d. loga, sigur, og þótt það sé hér auðvitað ávallt framborið sem önghljóð, þá sést það ekki í riti, og gæti þetta þvi ýtt undir ruglinginn með k—g. Annað atriðið er hin mismunandi tíðni þessara hljóða í máli. Og hver var tiðni hljóðanna í prófblöðunum? Hvað sem um k og t er að segja, þá er það vist, að p er

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.