Menntamál - 01.12.1936, Síða 5

Menntamál - 01.12.1936, Síða 5
5 Eitt af því skemmtilegasta vi'ð skýrsluna er það, að úr henni má lesa myndun nýrra mállýzkna i bæjunum og það einna greinilegast í þeim yngstu, eins og Siglufirði og Neslcaupstað (Norðfirði). Á Siglufirði er þannig 29.7% barnanna „hljóðvillt“ (e > i), en það er hverfandi á Akur- eyri, sem yfirleitt varðveitir sinn norðlenzlc-eyfirzka svip. Hinsvegar er, að norðlenzlcum hætti, litið um linmælt börn, jafnvel á Siglufirði. Nú langar mig að bæta hér við nokkrum athugasemd- um um það, sem til bóta mætti verða í prófum og skýrslu- gerð framtíðarinnar. í þessari skýrslu er það aðeins tupplýsingarnar um hljóðvilluna (e > i, ö > u), linmælið (p, t, k > b, d, g) og hv > kv, sem hafa nokkuð gildi fyrir máls-lýsinguna sjálfa, upplýsingar um y og z, tvöfaldan samhljóð og greinarmerki hafa gildi einungis fyrir stafsetningu og uppeldisfræði. Enn eru allmörg atriði í lýsingu hins talaða máls, sem æskilegt væri að kennarar athuguðu á prófum og gæfu skýrslur yfir. Þelta eru liin alkunnu mállýzkueinkenni eins og t. d. munurinn á norðlenzku og sunnlenzku í orð- um eins og hampur, skamta, hanki, vanta, stúlka, mælt, stelpa, maðkur, vestfirzki framburðurinn langur, löng, gardur, hafdi, norðlenzki framburðurinn habbði, saggði, sem á það til að stinga sér niður á hinum ótrúlegustu stöðum. Þá er mismunandi framburður í Bogi og allt í lagi (laj-ji eða la-ji), mismunandi framburður á orðum með rn og rl: stjórn, barn, hvort menn segja aumkva eða aumka og ýmislegt fleira. Þetta síðast talda gæti komið fram í riti; sama er að segja um vestfirzku einkennin og norðlenzka framburðinn habbði og saggði, en hitt mundi alls ekki koma fram í riti og yrði því að prófast af kennara, sem kynni skil á þessum einföldu framburð- areinkennum. Um skýrslugerðina er það að segja, að hvort sem aukið

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.