Vorið - 01.06.1942, Blaðsíða 33
VORIÐ
63
DÆGRADVÖL
GÖMUL NAFNAGÁTA.
Hrundum tólf ég hér í nótt
hýsing gjörði veita.
Um sín nöfn þær höfðu hljótt,
hér má þeirra leita:
Ein ber smáfuglsheiti hálft.
Haltrar önnur skökk af stað.
Þriðja er ýta yndið sjálft
þótt allir geti ei hlotið það.
Fjórða er kennd við fjallið grett.
Fimmta nefnd er gæðings ást.
Sjötta mér við saðning rétt.
Sjöunda þveita aldrei brást.
Áttunda er blökk á brá.
Bragna ver sú níunda.
Eitthvað skyggði á ég sá
aldrei fljóðið tíunda.
Elleftu fær enginn hnekkt,
er hún blómið kunna.
Þeim sem Röskun þáði í sekt
þykist tólfta unna.
Þau tólf kvenmannsnöfn, sem falin eru
í gátu þessari mynda vísu, ef rétt eru,
með því að skjóta tveimur orðum inn í
á einum stað.
Gáta.
Jarðarfylgsnum úr ég er
aldrei fagurleitur.
Hefir ei nokkur not af mér
nema ég sé heitur.
RAÐNING á gátu í síðasta hefti:
Ófeigur Oddsson Mörk.
Orðaþraut.
róa
óla
tan
efi
ísa
Framan við hvert þessara orða á að
setja einn staf, svo að ný orð myndist.
Séu þeir stafir lesnir ofan og niður eftir,
mynda þeir nýtt orð. Það er algengt
bæjarnafn.
Hringurinn, peningurinn
fingurbjörgin.
Hringur, peningur og fingurbjörg eru
falin í stofunni og að því búnu er gestun-
um sagt að leita.
Sá, sem finnur hringinn giftist fyrst
og verður hamingjusamur það sem eftir
er æfinnar. Sá, sem finnur fingurbjörgina
giftist ekki en sá, sem finnur peninginn
verður mjög ríkur.
Fyrir áramótin
var öllum barnastúkum sent sýnishefti
af Vorinu með ósk um, að þær ynnu að
útbreiðslu þess. Nokkrir gæzlumenn hafa
brugðizt vel við og útvegað fleiri eða
færri kaupendur, en hæstur er Sigdór V.
Brekkan kennari, gæzlumaður barna-
stúkunnar Vorperla á Norðfirði, er út-
vegaði 45 nýja kaupendur, en áður voru
þar 20 áskrifendur, svo nú er útsölumað-
urinn á Norðfirði, Eyþór Einarsson
Kvíabóli, orðinn annar í röðinni með
éskriíendafjölda.