Vorið - 01.09.1949, Qupperneq 5
VORIÐ
83
ekki að deyja, varð hann að bjarga
henni og það strax. En hvernig? Þá
datt honum snjallræði í hug. Hann
teymdi Grána að dýinu. Tók snæri
upp úr vasa sínum, batt annan end-
ann í hornin á Hyrnu, en hinn end-
ann batt hann í hnakkinn, sem var
á bakinu á Grána, og svo tók hann
í tauminn og teymdi Grána a£ stað.
Þetta dugði. Gráni var svo sterkur,
að hann munaði ekkert um að draga
Hyrnu upp úr dýinu. Siggi varð
fjarska glaður, þegar hann sá, að
Hyrna var úr allri hættu. Hann
leysti nú snærið af Hyrnu og hún
hljóp jarmandi í burtu.
Þegar Siggi kom heim, var ekki
þurr þráður á honum, og hann skalf
eins og laufblað í vindi. Mamma
tók hann og háttaði hann niður í
rúm og hitaði svo mjólk handa hon-
um. Siggi hresstist nú von bráðar.
Honum var hrósað mikið fyrir snar-
ræði hans og dugnað. En Siggi var
þó ekki ánægður. Hann skammað-
ist sín fyrir að hafa verið sendur
lieim úr göngunum, og hann kveið
fyrir því að hitta félaga sína í rétt-
inni daginn eftir. Hann bjóst við
því, að þeir hlægju að honum. Það
glaðnaði því ekki lítið yfir Sigga,
þegar pabbi kom heim um kvöldið
°g sagði, að sums staðar hefðu 11—
12 ára drengir verið sendir heim
sökum kulda, svo að 8 ára drengur
þyrfti víst ekki að skammast sín.
>-Auk þess hefur víst enginn bjargað
kind í þessum göngum annar en þú,
Siggi,“ sagði pabbi og brosti.
Réttardagurinn.
Næsti dagur var réttardagur. Siggi
fór snemma af stað um morguninn.
Þegar hann kom í réttina, voru
margir menn komnir. Siggi varð
hálffeiminn, því að hann bjóst við
því, að honum yrði strítt á því, að
hann var sendur heim úr göngun-
um. En það var nú öðru nær en að
honum væri strítt. Strákarnir hóp-
uðust í kringum hann og spurðu
hann spjörunum úr, því að sagan
um björgun Hyrnu hafði borizt
þeim til eyrna, og þeir voru mjög
hrifnir af Sigga fyrir frammistöð-
una.
Drengirnir fóru nú að hjálpa til
að draga kindurnar í sundur. Siggi
þekkti flestar kindurnar hans
pabba, og ef hann var ekki viss, þá
skoðaði liann rnarkið á eyrunum á
þeim. Markið hans pabba þekkti
hann eins og fingurna á sér. Þegar
Siggi hafði gengið úr skugga um, að
pabbi hans ætti einhverja kindina,
tók hann með annarri hendinni í
hornið á henni, lyfti svo öðrum fæt-
inum yfir kindina og dró hana svo á
milli fóta sér inn í dilkinn hans
pabba. Sigga þótti mest gaman að
draga lömbin, en sneiddi hjá stóru,
fullorðnu kindunum, því að þær
voru svo sterkar, að hann réð ekki
vel við þær. Þegar hann sá Hyrnu