Vorið - 01.09.1949, Blaðsíða 7

Vorið - 01.09.1949, Blaðsíða 7
V O R I Ð 85 í félagi gert ýmislegt, er þeir gátu ekki hvor í sínu lagi. Aður en Siggi vissi af, var réttar- dagurinn liðinn og komið kvöld. Bændurnir höfðu lokið við að draga í sundur fé sitt og bjuggu sig nú til heimferðar. Frá réttinni voru nú reknir margir fjárhópar, misjafn- lega stórir eftir efnum og ástæðum eigendanna. Fegar pabbi lagði af stað með sinn fjárhóp, var Siggi einn rekstrarmaðurinn. Hann reið á Grána og var hinn kátasti. Reksturinn gekk ágætlega fyrst í stað. En til þess að komast heim með féð, varð að reka það yfir all- stóra á. Þegar að ánni kom, gekk illa að koma kindunum út í hana. Þær voru víst hræddar við vatnið. Pabbi tók þá í hornið á einni kindinni og dró hana á eftir sér út í ána og sleppti henni þar. Kindin synti þá yfir ána, en hinar kindurnar komu á eftir. Siggi gekk vel fram í því að reka kindurnar út í ána. Hann bað- aði út höndunum, hrópaði og sigaði sem mest hann mátti. Þegar hann sá pabba draga kindina út í ána, hugð- ist hann gera slíkt hið sama. Hann greip í eina kindina og ætlaði að draga hana út í. Kindin tók jrá und- ir sig stökk og sentist út í. Sigga varð þá laus fótur og féll hann áfram of- an í ána og fór á bólakaf. Hann krafsaði og klóraði í kringum sig í dauðans ofboði, því að hann hélt að hann myndi drukkna. Þá fann hann allt í einu eitthvað mjúkt rétt hjá sér. Hann greip í það í dauðans of- boði og hélt eins fast og hann gat. Hann gat nú rekið höfuðið upp úr vatninu og þá sá hann, að það sem hann hélt í, var kind á sundi. Siggi sá nú, að hann yrði að láta kindina draga sig yfir ána, ef hann átti að bjargast. Hann tók á öllum þeim kröftum, sem hann átti, til jress að geta nú haldið sér fast. Honum fannst þau ekkert þokast áfram og hann var alveg að gefast upp og sleppa, þá fann hann, að hann kenndi botns og liann gat staðið upp og vaðið í land. Þá varð honum litið á kindina, sem bjargaði honum og flutti hann yfir ána. Kindin hristi af sér vatnið og jarmaði. Siggi jrekkti hana um leið — það var hún Hyrna. Bréfin þökkuð „Vorið“ þakkar innilega fyrir hin mörgu bréf, sem því hafa borizt. Því miður getum við ekki svarað þeim öll- um. Við þökkum einnig bendingarnar viðvíkjandi tilhögun blaðsins og mun- um taka þær til greina eins og hægt er. En sérstaklega viljum við þakka vin- stúlkum „Vorsins" á Breiðafirði, sem sendu okkur bæði sögur og margar fallegar myndir til birtingar. Einnig eyfirzku stúlkunna, sem sendi kross- gátvrna. Útgefendur.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.