Vorið - 01.09.1949, Side 10

Vorið - 01.09.1949, Side 10
88 VORIÐ „Jæja, hvað segirðu svo um þetta?“ spurði kennslukonan og sýndi böggulinn. „Ég hef engu stolið," sagði Gulla snöktandi .„Þið haldið öli, að ég sé þjófur, af því að við erum fátæk — ég hef aldrei tekið neitt frá öðrum — ég á þessa peninga. . . .“ „Nei,“ hrópaði Magga allt í einu. „Þetta er brauðið mitt. Ég gat ekki borðað það allt og henti afgangin- um.“ „Ég sá það,“ sagði Gulla og grúfði andlitið í höndum sér. „Og ég sá, að á brauðinu var svo gott ofanálegg — og litli bróðir minn er veikur — og þess vegna tók ég það.“ Hún grúfði sig niður á borðið með höfuðið ofan á handleggjunum og grét hátt. Kennslukonan leit á hana með fyrirlitningu. En þegar hún ætlaði að rétta Jóhönnu seðilinn, þaut Gulla upp aftur. „Ég á þessa peninga," æpti hún. „Ég hef unnið fyrir þeim — ég fékk þá í morgun. . . . “ „Svo — hvernig þá?“ Það var auð- heyrt, að kennslukonan trúði ekki þessari skýringu. „Ég sæki brauð á morgnana fyrir gamla konu og ber út öskudallinn hennar. Hún var veik í margar vik- ur. Fyrir þetta fékk ég 5 krónur.“ „Ef þú getur komið með þetta skriflegt frá gömlu konunna, skul- um við trúa þér,“ sagði kennslukon- an. En Gulla stamaði: „Það get ég ekki, því að hún er farin út í sveit — liún ætlaði að fara klukkan I0.“ Þessi skýring var svo ósennileg, að kennslukonan svaraði henni ekki. Jóhanna fékk seðilinn, og nú reyndu börnin að festa hugann við námið eftir þennan viðburðarríka atburð. Gulla grét allan tímann eins og hjarta hennar ætlaði að bresta. í kennsluhléinu talaði enginn við hana. Hún var sniðgengin. En hún varð vör við, að hin börnin voru að hvíslast á um liana. Jafnvel Ella, sem var bezta vinkona hennar, var svo niðursokkin að tala við Grétu, að hún ávarpaði Gullu ekki með einu orði. Algjörlega ein og yfir- gefin rólaði Gulla um leikvöllinn. Jóhanna var mjög gröm yfir þrjósku Gullu, og hún lét móðan mása, þegar hún kom heim. Þegar hún ætlaði að endurtaka í fjórða sinn, hvað kennslukonan hafði sagt, hvernig Gulla hefði litið út, og hvað hún hefði hugsað, greip móðir liennar fram í fyrir henni: „Æ, aumingja barnið!“ „Nei, nú er ég hissa. Kennir þú í brjósti um þjófa?“ „Já, ég kenni í brjósti um hana. Hugsaðu þér, hvað þau hljóta að vera fátæk, fyrst hún tínir mat upp úr rusladallinum. Það er vandalaust fyrir þig, Jóhanna, að vera góð og heiðarleg. Þig hefur aldrei vantað neitt. Ef þú hefðir verið í sporum Gullu litlu, gat vel verið, að þér

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.