Vorið - 01.09.1949, Síða 13

Vorið - 01.09.1949, Síða 13
VORIÐ 91 GAMLI BOLLINN Leiksviðið: Gamaldags stofa. Auk borðs og stóla er þar kommóða eða skápur með borðbúnaði og smáskraut- munum. Haldið á einum kínverska postulínsbollanum hefur brotnað af, en er límt á aftur. Leikendur: Amma, Eva, 12 ára, og Svava, trúnaðarstarfsstúlka ömmu. Eva er í heimsókn hjá ömmu. AMMA: Jæja, vina mín, svona lítnr það nú út hjá ömmu. Það er svo sem ekki eftir nýjustu tízku, bara gamalt og úrelt, alveg eins og hún sjálf. EVA: Nei, alls ekki, amrna! Hér er svo yndislegt. Og amnia er sjálf heldur ekki svo gömul. AMMA: O-jú-jú, barnið mitt, það finnst mér nú vera, skal ég segja þér. En nú skaltu taka af þér hatt- inn og fara úr kápunni og vera svo eins og heima hjá þér. En hvernig réðist þetta annars: fékkstu leyfi til að vera hjá mér til mánaðamóta? EVA ('meðan lnin fer úr kápunni): Fyrst vildi mamma nú ekki. að ég yrði svo lengi að heiman. en við pabbi reyndum bæði að tala um fyrir henni, og svo fékk ég loksins leyfið. AMMA: Jæja, það var þó gaman. Bara að þú kunnir nú vel við þig hérna. Hér er nú fátt af krökkum á þínum aldri. EVA: Það gerir ekkert til, amma. — Og þú átt svona fallegan trjágarð! En hvað þú hefur margar hænur! Áttu kjúklinga líka, amma? AMMA: O-já-já. Ég á eina 18 unga. Við létum klekja út 20 eggjum, en tvö voru fúlegg. EVA ('horfir í kringum sig í stof-

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.