Vorið - 01.09.1949, Side 32

Vorið - 01.09.1949, Side 32
110 VORIÐ Lag: Beuteful Dreamer (má hafa það). Nú er sól yfir landi, og sólskin í lund. Nú er seiðandi, heillandi mið- sumarstund. Nú er ísland að bjóða það bezta, er það á, þeim börnum, er fegurð og sól- birtu þrá. N ú er lágnættið dagur, af dásemd- um fyllt, svo hin dökkbrúnu fjöll verða álfahöll gyllt. Nú er ilmur úr grasi og yndi í lund. Nú er unaðsleg, heillandi mið- næturstund. :,: ERLA: Jæja, — nú segir þú frá, Rúna. RÚNA: Þið vissuð nú, að ég fór heim að Holti, til þess að heim- sækja hana skólasystur mína, en ég hitti þá svo á, að hjónin voru í kaupstaðarferð. Einhver stúlka bauð mér nú samt til stofu, og spurði, hvort ég vildi ekki mjólk að drekka. Ég þakkaði boðið, og svo fór nú stúlkan fram. Útsýnið er alveg yndislegt þarna. — Ég gekk út að glugg- anum og horfði hrifin yfir sveit- ina. Og garðurinn, framan við gluggann, var hreinasta Paradís. Trjálaufið bærðist í blænum, og blómin cinguðu. En, — það er nú höggormur í hverri Paradís, telp- ur mínar. Glugginn var opinn. Mundi þá ekki allt í einu koma gulbröndóttur köttur stökkvandi inn um gluggann, með lifandi mús í kjaftinum. — Ég rak, auð- vitað, upp skaðræðis óp. Þá varð kattarskömmin hrædd, svo að hann missti músina. Mús- argreyið þaut af stað eftir gólf- inu að leita sér að fylgsni. Ég svitnaði af skelfingu og varð nærri máttlaus. Þó stökk ég upp á stól og hélt pilsunum fast að fótum mér. Þarna stóð ég og hrópaði í ósegjanlegri skelfingu, með öllum þeim hljóðum, sem ég á til: „Hjálp!----Hjálp!“------- Aumingja stúlkan kom þjótandi inn, náföl, og með guðhrópi. En um leið og hún opnaði, skauzt músin út, og kisa á eftir henni. Ég skreiddist ofan af stólnum. Afskaplega lúpuleg afsakaði ég þetta við stúlkuna. Svo kom hún inn með mjólkina, sem ég varla hal'ði lyst á, ég var svo eftir mig eftir skelfinguna. Síðan þakkaði ég, kvaddi og fór. Ég er varla bú- in að ná mér enn. (Leggur hönd- ina á hjartað.) Ég held bara, að ég hafi vott af hjartslætti enn. HINAR: Já. — — Mýs eru alveg voðaleg dýr. (Hlæja.) Syngjum svo. ÁSTA (bendir): Nei, — er þetta ekki dásamlegt. — Sjáið þið, hvernig liafið blikar í kvöldsól- inni, eins og það væri gull. HINAR (horfa): Það er dásamlegt.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.