Vorið - 01.09.1949, Page 35
VORIÐ
113
tJr heimi harnanna
L U B B I.
Ég og Lubbi.
Það mun vera frekar
sjaldgæft, að selir drekki
mjólk úr pela og gisti í
fjárhúsum, en þetta
gerði Lubbi.
En nú verð ég að segja
ykkur hver Lubbi var.
Hann var selur, lítill og
horaður með svart trýni.
Pabbi fann hann einn
dag haustið 1944. Þá var
hann skriðinn langt upp
á tún og gólaði þar og
vældi vesældarlega. —
Pabbi fór til hans og ætlaði að taka
hann, en þeim litla „varð þá ekki
um sel“ og bæði klóraði og beit. En
pabba tókst þó að koma honum inn
í fjárhús, sem voru þar skammt frá,
en hann ætlaði svo að sýna okkur
krökkunum hann og lofa okkur að
ala liann, ef við gætum. Við urðum
heldur spennt, þegar pabbi sagði
okkur frá þessu, og lögðum strax af
stað með mjólkurpela og höfðum
gúmmítottu á honum.