Vorið - 01.09.1949, Síða 41
V O R I Ð
119
Hættulegur leikur
Tómas tamdi sér hættulegan leik.
Hann hékk aftan í bílum. Honum
fannst það vera hreystilega gjört að
hanga aftan í vörubílum, svo að
stúlkurnar í götunni sæju. En stúlk-
unum fannst þetta ekkert hreysti-
verk.
Dag nokkurn var Tómas staddur
á götuhorni með hinum börnunum.
„Sjáið þið vörubílinn, sem kemur
þarna með brúsandi hraða?“ spurði
hann.
Já, allir sáu hann.
„Eg treysti mér til að hanga aftan
í þessum bíl,“ sagði Tómas. Og svo
er ekki að orðlengja það, að hann
hljóp út á götuna og á eftir bílnum.
Þarna náði hann honum og hékk
aftan í honum. En hann hafði ekki
hangið lengi aftan í bílnum, þegar
bílstjórinn staðnæmdist skyndilega,
af því að hann mætti öðrum bíl. —
Tómas missti handfestu, datt á göt-
una og lá kyrr. Börnin hlupu til
hans. Tómas bar sig illa, og fólk
safnaðist í kringum hann. Þá bar
þar að mann í fólksbíl. Hann fór út
úr bílnum og bar Tómas inn í hann
og ók honum í sjúkrahúsið.
Sem betur fór meiddist Tómas
ekki eins mikið og fyrst leit út fyrir.
Þó hafði hann gengið úr liði um
öklann og handleggsbrotnað. En
það var þó nógu illt. Tómas varð að
Þggja lengi rúmfastur fyrir það, að
Krossgáta
Lárétt: 1. ránfugl; 6. maður í Nýja-
Testamentinu; 7. skammstöfun; 8. at-
viksorð; 9. skyldmenni; 11. handavinna;
13. haf (f.); 14. taka á; 16. fiskur (ef.);
17. sögn (þt.).
Lóðrétt; 1. fallegt; 2. tveir samhljóð-
ar; 3. afkvæmi íslenzks húsdýrs; 4. á
fætinum; 5. gott á bragðið; 9. tveir eins;
10. samhljóði og sérhljóði; 11. líður vel
(kvk.); 12. keyra; 13. dreifa; 15. á bát.
Eyfirzk stúlka, 13 ára.
Verðlaun. Bókarverðlaun verða veitt
fyrir réttar ráðningar á krossgátunni.
Sendið ráðningar.
hann hafði hangið aftan í vörubíln-
um.
Það þarf sennilega ekki að taka
það fram, að Tómas ákvað með
sjálfum sér að hanga aldrei framar
aftan í bílum.