Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.02.1907, Page 4

Bjarmi - 15.02.1907, Page 4
20 B JARM I ið, er að eins lesandi. En hann les í heilagri ritningu, og hann finn- ur þessi huggunaríullu orð: »Kom- ið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, eg vil gefa yður hvild«. Og hann er að leita sér hvildar, því mótlæti lífsins mæðir hann. Hann finnur veginn, því hann les oi’ð frelsarans: »Eg er veg- urinn, sannleikurinn og lífið, enginn kemur til föðursins, nema fyrir mig«. Þennan veg vill hann komast á, og hann veit, að hann kemsl það, því Jesús sagði: »Hvers þér hiðjið föð- urinn i mínu nafni, það mun yðnr veitast«. Og hann fellur fram fyrir ásjónu almáttugs guðs og hrópar til hans í auðmjúkri bæn: »Takþúmitt þunga synda ok, sem eg get ekki borið, og gefðu mér hvíld. Ó, Jesú! leiddu mig á ljóssins, lífsins og sannleikans veg, og tak þér bústað í hjarta mínu!« Af því hann biður í einlægni og fullu Irausti og leggur alt sitt lif í Jesú hönd, þá finnur hann, að hann er bænheyrður, gleði hans verður óumræðileg, því: »hlóðið Jesú Krists hreinsar af allri synd«. Hver er nú munurinn á þessum mönnum? Og hver þeirra er betur fallinn til að útbreiða guðs ríki? Sá er munurinn, að hinn fyrnefndi — sé hann ekki lengra kominn en lýst var — hefir sofandi trú, en hinn síðarnefndi lifandi trú og samfélag við guð. Hinn síðarnefndi hefir þvíóefað öíl- ugri vopn, til að berjast á móti van- trú og guðleysi, og meira fóður handa þeim, sem hungrar. Því hvernig á sá að gefa gull, sem ekkert gull á? Hafi því guð kallað þig til aftur- hvarfs, og frelsað þig af öllu rang- læti,fyrir blóð Jesú Krists, og hafir þú fengið viðhjóð á öllum syndsamleg- um orðum og verkum, en gleði og frið í sálu þina og fullvissu þess, að .Tesús er í hjarta þér, þá krefst hið saklausa hlóð, er úthelt var á Gol- gata, sem lausnargjald fyrir syndir þínar, þess af þér, að þú íklæðist guðs alvæpni, og kunngjörir Krists fagnaðarerindi á einhvern hátt, án tillits til þess, hvort þú ert ungur eða gamall, karl eða kona, lærður eða ólærður. Eru þá prestar óþarfir og gagns- lausir? Nei, það er öðru nær. En því að eins geta þeir verið til bless- unar í söfnuði sínum, að þeir séu sönn guðs hörn. Annars eru þeir ryk, sem fýkur út í geiminn, jafn- skjótt sem vindurinn blæs, og hempa þeirra og lærdómur verður þeim til enn meiri syndar. Aftur á móti eru trúaðir prest- ar hinir beztu gimsteinar, sem nokk- ur þjóð getur átt, því hið dýrmæt- asta hnoss, Jesús Kristur, er sjálfur í hjarta þeirra og stjórnar orðum þeirra og athöfnum. Og víst er mentun til mikils gagns, þegar hún er brúkuð sem lampi, til að lýsa sér að þeim vegi, sem er upplýstur af dýrðarsól almáttugs guðs. En þótt presturinn sé í lifandi samfélagi við guð, þá eigum við leik- menn ekki að láta hann standa einan í baráttunni á móti synd og vantrú, heldur eiga öll sönn guðs hörn að taka krossinn og bera hann sameiginlega. Það skiftir engu, hvort við framflytjum bænir okkar, ræður eða lofgjörðir í kyrkjunni eða á öðr- um stöðum, því livar sem við erum, starir hið altsjáandi auga á okkur, og jafnt kyrkjan sem hinn hrör- legasti fjárkofi, standa inni í hinu ómælanlega dýrðarmusteri drottins. G. J.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.