Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.05.1907, Qupperneq 1

Bjarmi - 15.05.1907, Qupperneq 1
BJARMI s KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = Þárg. Reykjavík, 15. maí 1907. 9. blað »Ef þér elskið mig, þá munuð þér halda boðorð mín«. J< jh. 14, 15. Grundvöllurinn, Ijyggingin, eltlurinu. Páll posíuli ritar í fyrra bréfi sinu til Korinlumanna (3. kap.): »Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur. En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey, bálm, þá mun verk sérhvers verða aug- ljóst, því að dagurinn nnm leiða það í Ijós, af því að hann mun op- inberast með eldi. Og hvilíkt starf hvers eins er, það mun eldurinn prófa«. Þessi orð postulans, rituð til safn- aðar, sem var að sundrast út af kenningamismun leiðtoganna, vilj- um vér nú heimfæra til kyrkju vorrar, eins og hún er nú. .Tafnl prestar sem leikmenn kvarta yíir llokkadrætti í kyrkjunni, af því þeir hafa komið auga á meinin, sem hann vcldur, og vildu vist margir, að allir yrðu »með einum anda einn líkami«, eins og' þeir eru skirðir til. Vér þráum hið sama af öllum huga. En sá, sem fæst við lækn- ingar, verður að hafa gott vit á sjúk- dómum; annars getur lækningin farið út um þúfur eða gjörl ilt verra, því að meðulin eru þá af handahófi. Þetta siðarnefnda virðisl oss vera gallinn á mörgum þeim, sem fást við að lælcna sundrungarmein ís- lenzku kyrkjunnar, bæði vestan hafs og austan. Golt dæmi jiess eru ummæli eins hins merkasta af íslenzku prestun- um vestan hafs (síra Friðriks Berg- manns) í bók, sem heitir »Vafur- logar« og hann hefir samið, bók, sem annars hefir margt sér til á- gætis. Hann telnr upp ftokkana í kyrkj- unni. »IJað eru þjóðkyrkjumenn og frikyrkjumenn. Það eru heimatrú- boðsmenn og aðventistar. Það eru andatrúarmenn. Og það eru loks þeir, sem engu segjast trúa. Marg- ar fylkingar i liðu svo litlu«. En siðan segir hann með þessari köldu rósemi, sem lœrðir læknar hafa mest af: »Það er e.kki til neins að vera vondur út af því?« Svo kemur læknisráðið: »En reyna mætti að draga fylkingarnar saman, kenna þeim öllum að verj- ast sameiginlegum óvinum (svo sem?) leggja undir sig lönd, sem enn eru ónumin, en hætta öllu grjót- kasti? Mundu þær þá eigi smám saman gleyma þeim smámiinum, sem þeim kann á milli að bera og renna saman í eina þéttskipaða bræðrafylking?« Þar höfum vér það. Ekki er þelta læknisráð ákveðið, enda er það ónýtt og meira en það — það gjörir ilt verra, því að lækn- irinn virðist ekki sjá liina sönnu

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.