Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.03.1908, Side 3

Bjarmi - 15.03.1908, Side 3
B J A R M I 43 Til frekari líkinda má geta þess, aö þar sem ræninginn taldi Jesúm son guðs og herra í guðsriki, þá heflr hann visl ekki efasl um, aö sjálfur sonur guðs og drolt- inn liins andlega ríkis kæmist pegar íslað til guös og í ríki sitt. Og ómögulegt er mér aö skilja, aö Jesús hafl ekki lika haft þessa skoðun, þar sem liann nefndi guð föður sinn á andlátsstundinni og fól anda sinn i hendur lians. Svo tínir bl. nokkra staði úr Gamla- testamentinu til sönnunar sinu máli; en þeir nefna ekki svefn á nafn og sanna ekkert í pessu máli, nema cf það væri, að í þeim fælist trú á fullkominn aldauða hinumeginn grafar. Pessi orð Gamlatesla- mentisins eru líka frá þeim tíma, þegar hugmyndin um annað líf eftir dauðann og ódauðleik sálarinnar var ekki alment vöknuð i ísrael, lieldur alt miðað við petta líf, og að menn ættu hér á jörð að út taka laun ogliegningu eftir tilverknaði. Þessir ritningarstaðir sýna þá liclzl ekki annað en það, að liinir dauðu vegsami ekki drottinn hérnameginn o. s. frv. Eg vona, að »Frækorn« fyrirgefl mérþennan skilning á þessum orðum og trúiþvímeð mér, sem góðar heimildir segja: að pað var Jesús Kristur, scm leiddi í Ijós lífið og ódauðlegleikann og sannaði hvorttveggja með upprisu sinni og svo með þvi að reisa aðra upþ frá dauðum. Enn fremur segir bl., að ræninginn hafi ekki getað verið með Kristi í Para- dis á dánardægri þeirra beggja, af þvi að Kristur hafi eigi sjátfur komið þangað á þeim degi — og vitnar til orða hins upp- risna við Mariu: »Pvi enn er ég ekki uppstiginn til föður mins«. Hvað þýða nú þessi orð? Ekki annað en það, að Kristur varenn ekki Uþpstiginn lil guðs í og meðsamein- uðum anda og upprisnum líkama. Annars hefði sjálfur sonur guðs ekki átl að koiu- ast til föðursins á himnum, smannsins sonur, sem er á himni«, fyr en á upp- sligningardaginn ? Ekki svaf liann þó allan þann tíma. Hann birtist postuluuum, át og drakk mcð þeim o. s. frv. En »Fræk.« vilja kenna oss, að hann hafi sjálfur sofið frá andlát- inu til upprisunnar og áfella oss fyrir, að trúa því ekki. En livað á þá að gera við þá postullegu frásögu, sem líka er orðin dýrðlegt trúaralriði í 2. grein trúarjátn- ingarinnar, að hann haii farið eflir ki-oss- dauðann og prédikað fyrir öndunum i varðhaldi. Fór hann þá sofandi til að prédika fyrir sofandi öndum? Pað er hart, en þó ólijákvæmilegt, að koma með svona spurningu, og lýsir þvi bezt, hvílík svefntrúin er. Pessi dýrmæti trúarjátningarlærdómur, að Kristur steig niður í dauðraríkið að prédika þar fyrir öndunum, bendir á eítthvað annað en að mannssálirnar sofni og sofi. Sá lærdóm- ur heimtar þá trú, að sálirnar vaki þegar eftir dauða líkamans og jafnframt vekur það þá von og trú, að frelsarinn starfi líka hinumegin grafarinnar, aiveg eins og hérnameginn, að endurlausnarverki sínu fram til upprisu alls holds. »Lazarus vinur vor er sofnaður« þýðir einfaldlega þetta eitt: Hann er dáinn, sofnaður seinasta svefni likamans. Alveg sama meiningin er hjá Páli postula og öðrum kristnum mönnum, þar sem þeir minnast á dána menn burtsofnaða. — »Frækorn« gleymir því, að Jesús hafði annan tilgang með þvi kraftaverki að upp- vekja Lazarus, hcldur en að hugga systur hans — einmitt þann tilgang, að sanna þau orð sín, að hann væri upprisan og lífið og hver, sem á liann tryði, mundi lifa (ekki sofa), þó liann dæi. Mér skilsl þvi, að þessi uppreisn Lazarusar og aðr- ar uppreisingar Krists, sýni það allgreini- lega, að það er líkaminn, en ekki sálin, sem sefur.------ Sadúsear neituðu upprisu framliðinna og yfir höfuð öðru liíi og ódauðleika sál- arinnar. Peim svaraði Jesús þessu: »Guð cr ekki guð dauðra, heldur lifenda«. Eins finst mér að svara megi svefntrúarmönn- um: hinn lifandi og starfandi guð, sem aldrei syfjar og aldrei sefur, er ekki guð aðgerðalausraog gagnslausra sofenda, hcld- ur starfandi vakenda. Pað stendur heldur hvergi nokkursstað- ar i heilagri ritningu, að sálir andaðra manna sofni og soli frá andlátinu til alls- herjardóms, heldur hið gagnstæða. Hvað finst adventistum og öðrum ? Finst þeim virkilega, að sálarsvefnstrúin sé samboðin Kristi eða fullnægi eðliskröfu mannsandans, sem hungrar og þyrstir eft- ir ódauðleik, vöku og starfi ? — Finst þeim að Stefán pislarvottur liafi ekki mátt vona og trúa, að liann fengi samdægurs vist með Kristi í Paradís, þegar lianu sá himnana opna á dauðadegi sinum og mannsins son standa þar við hægri hliö

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.