Bjarmi - 15.03.1908, Blaðsíða 8
48
B JARM I
hann sama stigi í réttarvísindum.
Hann var í öllu mikill: í heimspeki,
i lögfræði, í stærðafræði (reikningi),
guðfræði og stjórnfræði. Það var
eins og öll þekking þeirrar aldar
væri saman komin i eitt i honum.
Hann var og frúmhöfundur í þeirri
fræðigrein, að bera saman tungur
allra þjóða, og finna hvað líkt er
og ólíkt með þeim.
Virti nú þessi frábæri andans
maður kristindóminn að vettugi?
Nei, ekkert var honum fjarstæðara.
Ef hann hefði viljað gera það, þá
hefði hann ekki lagt eins mikinn
hug á það, eins og hann gerði, að
eyða allri sundrungu í kristninni,
og eíla með því málefni krislindóms-
ins í heiminum; þá hefði hann ekki
ritað heila bók, til að réttlæta guð
fyrir þeirri ásökun vantrúarmann-
anna, að honum hefði illa mistekist,
þegar hann skapaði slíkan heim, sem
þessi lieimur er. I5á hefði hann því
síður barisl fyrir útbreiðslu kristin-
dómsins, eins og hann gerði.
Þegar hann gekst fyrir stofnun
vísindaskólans i Berlin (1700), þá
fékk hann komið þeirri ákvörðun
inn í reglugerð skólans, að skólinn
skyldi meðal annars vinna að því,
að »eíla og útbreiða sanna trú«.
Svona leit nú mesti heimspek-
ingur sinnar tíðar á kristindóminn.
Skömmu fyrir dauða sinn rit-
aði hann Schoffrow, rússneskum
stjórnarmanni, og leggur honum
rikt á hjarta, ,að hann komi því á
leið við Pétur lceisara hinn mikla,
að menn gerðu svo margar tungur
í rússneska rikinu að ritmáli, sem
unt væri, og gæfu út orðabækur á
þeim, svo að menn gætu að mínsla
kosti gefið út á þeim málum hin
10 boðorð guðs, laðirvorið og trúar-
játninguna, »til þess að menn gætu
vegsamað guð á öllum tungum«.
_____________________
Síra Friðrik Friðriksson, sem
dvalið hefir i Danmörku i vetur og
prédikað þar viðsvegar um land,
hafði tekið að sér, þegar síðast fréttist,
að verja mánaðartíma til að reyna
að koma góðu skipulagi á K. F. U. M.
í Alaborg. Félagið þar er allslórl
(á 4. hundrað meðlimir), en ólíkar
stefnur og innbyrðis deilur voru þar
miklar, og var þá síra Friðrik treysl
flestum fremur til að geta lagað það.
»Ljósgeislarnir« frá Ameríku, sem
N. Iíirkjubl. hefir nýlega lokið mikil-
legu lofsorði á, fást hjá S. Á. Gísla-
syni.
NÝTT KIRIíJUBLAÐ. Hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og krisli-
lega menning, 18 arkir á ári, verð 2 kr., í Vesturheimi 75 cents. Útgefandi Þór-
hallur Bjarnarson, prestaskólakennari.
SA.MEUVHVGrIl>í, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Rit-
stjóri: sira Jón Bjarnason í Winnepeg. Hvert nr. 2 afkir. Barnahlaðið »Börnin« er
sérstök deild í »Sam.« undir ritstjórn síra N. Steingríms Porlákssonar. Verð liér á
landi kr. 2,00. Fæst hjá cand. S. Á. Gíslasyni í Rvík.
Útgefandi: Hlutafélag í Rcykjavík.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavík.
Prentsiniöjun Gutenberg.