Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.02.1910, Side 5

Bjarmi - 15.02.1910, Side 5
BJARM I 29 tekið afsökun hans feginsamlega. En engin kann neitt frá ráðríki Arngrims að segja í varabyskubsembættinu. Hitt er eins sennilegt eftir atvikum, að Arngrími liaíi þótt byskupsstaðan of umsvifamikil og taka um of tim- ann frá því, sem honum var hug- kærast, en það voru ritstörfin. Má það af mörgu sjá, að hugur hans hneigðist alla æfi meira að bóklestri og ritstörfum, en mannaforráðum eða völdum, enda gaf hann sig eingöngu við eftirlætisstörfum sinum, það sem eftir var æfinnar. Það gat og hafa valdið nokkru um undanfærslu hans, að á þessu sama ári (1627) misti liann fyrri konu sína, sem hann unni mjög, og mun því ráð hans liafa verið venju fremur á reiki um þessar mundir. Og víst er það, að byskupsembætt- inu hefði hann getað náð, ef hann hefði lagt kapp á það. Árið eftir giftist hann i annað sinn og gekk þá að eiga Sigríði dóttur Bjarna prests á Grenjaðarstað; var lnin skörungur mikill og mannkosta- kona. Var Arngrímur þá sextugur, en hún 27 ára. „Bjargið alda, borgin mín“. í hinu nátlúrufagra héraði Devon- skíri á Englandi, eiga þrír sálmar uppruna sinn, sem altaf munu verða hjartfólgnir trúræknum mönnum. Þessir þrír sálmar eða söngvar eru: »Tak mig sem eg er(?)« eftir Cliar- lolte Elliott, »Ver hjá mér, herra, dagur óður dvín« (sbr. wVerln hjá mér, halla tekur degi« i ísl. sálmab.) eftir Henny Lyte og og »Bjargið alda borgin mín« (sbr. »Hellubjarg og borgin mín«) eflir Ágústus Toplady. I’að heíir verið sagt um þennan síð- astnefnda sálm, að h'ann sé allra sálma fegurslur á enska tungu. Það var einu sinni i ágúslmánuði 1756, að 16 ára gamall drengur, sem fengið hafði hið bezla uppeldi hjá velmentuðum kristnum foreldrum, var staddur uppi í sveit í föðurlandi sínu írlandi, þar sem allmargt af bænda- fólki var saman komið til guðsþjón- ustu. Guðsþjónustan fór fram í hlöðu og lilýddi hann álengdar á hjartnæma prédikun út af Efes. 2, 13. Prédik- arinn var ólærður leikmaður, einn af lærisveinum liins nafnfræga enska vakningar-prédikara Jóns Wesléys, en hinn ungi maður varð síðar meir höfundur sálmsins: »Bjargið alda, borgin mín«. Toplady segir svo sjálfur frá þess- um atburði: Það er einkennilegt í meira lagi, að eg, sem hafði svo lengi setið við náðar- borð guðs á Englandi, skyldi kornast í samfélag við drottinn í litlum hópi guðs vina í einu skuggahverfinu á ír- landi; skyldi fólkið safnast þarna saman í hlöðu, og maðurinn sem safnaði því saman, skyldi varla getað stafað nafnið sitt. En drottinn hefir unnið það verk og það var sannar- lega dásamlegt. Slíkur kraftur lilýtur að koma frá guði; hann getur ekki verið frá mönnum. Skömmu síðar gekk Toplady á Trinity (þrenningar) liáskóla í Dýfl- inni (höfuðborg Irlands) og lærði þar til presls. Þegar hann var tvítugur að aldri, gerðist hann aðstoðarprestur í Farleigh og þaðan íluttisl hann til safnaðarins í Devón-skiri. Þar kendi hann fyrsl brjóstveiki þeirrar, er síðar dró hann til dauða. Síðan flutti hann til Lundúna sér til heilsubótar, el verða mætti, en heilsu hans fór si- hnignandi og þar dó liann 1788, 38 ára gamall. Hann hafði þó lifað nógu lengi lil

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.