Bjarmi - 15.02.1910, Síða 8
32
BJARMI
Það er ekki hætt við að liann sldpi vin-
um gömlu stefnunnar á bekk með heimsk-
ingjum eða hræsnurum, pótt liann freist-
aðist til ógætni í freistingargreininni fyr-
nefndu, og hættara mundi öðrum en
honum, ef völdin væru söm, að skerða
kenningarfrelsi andstæðinganna.
En sleppum málalengingum. Það hefði
verið nær að snúa ádeilunni meira að
prestaskólanum en minna að byskupnum.
Prestaskólinn mótar prestaetnin, og skilji
hann pau eftir út á efasemdasvellinu, er
liætt við, að kyrkjulíf vorl lendi i vökunum,
fyr en varir.
Síra Eiríkur Briem mun að vísu standa
öruggur gegn efasemdastorminum pýzka,
og su var tídin, að síra Jón Helgason
varaði stúdentana mjög við »skynsemis-
stefnunni nýju«, en pað er liðin tið, og
»nú má guð vita hvar staðar verður num-
ið«. —
Við prestaskólann í Reykjavík eru
nú kendar ritskýringar Nýjatestament-
isins eftir Joh. Weiss háskólakennara
o. íl. þýzka fræðimenn. — Af hend-
ingu hefir mér lánast að kynnast bók
þessari, og blöskrar mér satt að segja,
ef aðrar eins kenningar og liún flyt-
ur, eiga að verða trúarjátning »ís-
lenzkrar kristni«. (Frh.)
Páll Melsted sagnfræðingur andað-
ist 9. þ. m. rúmlega 97 ára að aldri.
Vikublöðin hafa llutt æfiminningu
hans, en þeim hefir gleymst að geta
um tvent, sem mörgum kunnugum
þólti fegursta prýðin á lieimilí öld-
ungsins góðkunna. Annað var hin
áslúðlega sambúð gömlu hjónanna, er
voru jafnan svo innileg og nákvæm
hvort við annað, að mörg nýgift hjón
gælu mikið af því lært, og hitt var
trúin, sem opnaði svo vel gluggann, að
hádegissól guðs kærleika rak biolt
kveldskuggana og áhyggju næturinnar.
Páll Melsted var eini kennarinn við
latínnskólann, að guðfræðiskennaran-
um fráteknum, senr eg man eftir að
léti okkur pillana verða vara við trú
sína. l5eir voru ekki öfundsverðir af
andsvörum öldungsins, sem létu hann
heyra óvirðingarorð um kristindóm-
inn í kennslustundum. Honum var
Ijúft að tala um trúmál, einkum síð-
ari árin, og oft sagði hann þá hér
um bil á þessa leið: Eg var hreinn
heiðingi, þegar ég kom frá Bessastöð-
um, en þegar ég fór seinna að missa
börnin mín og konan mín dó, þá fór
ég að vakna«. — Hann fyrirvarð sig
ekki fyrir Krists fagnaðarerindi, og
það er satt, sem einn ástvina lians
sagði nýlega við undirritaðan: »Hann
er dáinn, en lifir samt«. S. G.
Prestskosning’in hér í Rvik fer fram
laugardaginn 26. p. m,, og er vonandi að
kjósendur sitji ekki eins margir lieima í
petta sinn og við prestskosningúna í fyrra.
— Meiri hluti safnaðarins ælti ekki að
vera »hér um hil sama«, hver kosinn
verður.
Kjörfundur.
Kosning prests í 2. prestsembætlið við dómkirkjuna í
Reykjavík fer íram laugardaginn 26. þ. m. í barnaskólabygg-
ingu Reykjavíkurbæjar, og byrjar kl. 11 f. h.
Prófasturinn í Kjalarnesspróíastsdæmi,
Görðum, 9. febrúar 1910.
Jens Pálsson.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavik.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimlumaður: Sigitrjón Jónsson, Lækjargötu 6.