Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1910, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.11.1910, Blaðsíða 1
BJARMI ■= KRISTILEGT HEIMILIS B L A Ð IV. ár«. | Rejkjavík, 1. nóvember 1910. y>Peir þótlusl vera vitrir, en nrðn heimskingjar«. Róm 1, 22. 21. Fyrirlestur sira Björns í Miklabæ, seni hann hélt á prestasteínunni í sumar, sem leið, er nú kominn fyrir almenningssjónir í heilu lagi í N. Khl. Vér vitum, að stéttarbræðrum hans og mörgum öðrum er hin mesta for- vitni á að sjá hann. Höf. er ekki hrifinn af trúarlífi þjóðar vorrar á ofanverðri 19. öld, og segir svo að endingu: »Menn hafa verið svo blessunarlega ásáttir um alt, sem trú snertir, og enginn viljað víkja hárshreidd frá játningum hinnar evangelisk-lúlhersku kyrkju«. En svo kom nýja guðfræðin og biblíukrítík sú, sem hún byggist á og umturnaði aliri biblíunni og sneri llestu öfngu við það, sem áður liafði verið lalið rélt og rengdi gildi hei- agrar ritningar á margan veg. Höf. segir hispurslaust frá öllum þessum byltingum. En þó fer hann svo varlega, að ekki er auðséð í*iljótu l)ragði, livorn llokkinn liann fyllir. En vér vitum með sönnu, að hann er eindreginn fylgismaður nýju guð- fræðinnar, enda má sjá, að svo er, ef vel er að gáð. Hann segir l. d. á einum stað, með fram í sjálfs sín's nafni: »það vitum vér líka, að Jesús lagði sjálfur enga áher/lu á kraftaverk sín, til þess með þeim að sanna, að liann væri Messías«. Oss dylst eigi, að hér lalar nýr guðfræðingur. Enginn, sem trúir því, sem ritað er, gæti talað svona. Allir muna, livaða svar sendimenn Jóhann- esar skírara fengu, er hann lél spyrja, hvort hann væri sá, sem koma ætli. — ()g í guðspjalli Jóhannesar eru aftur og aftur tilfærð orð Krists, þar sem hann tekur það skýlaust fram, að hann geri kraftaverkin, til að sýna og sanna. að hann sé hinn fyrirheitni Messias. »Þó að þér viljið ekki trúa mér«, segir hann, »þá trúið samt vegna verkanna«. Af þcssu er auðsælt, að höfundur- inn rengir frásögu guðspjallamann- anna og liefir hana að engu. Þetla er skýlaust einkenni nýju guð- fræðinnar; hún rengir öll guðspjöllin og eignar þau all öðrum höfundum, en guðspjallamönnunum, en enginn veit, hvað þeir hafa heitið; það verð- ur aldrei grafið upp. Nýja guðfræðin á að vera lianda þeim, sem eru ollærðir til að trúa því, sem ritað er. En gallinn er sá, að lil þess þarf að stryka út alla kenningu Krists og setja annað í stað- inn. Til þess þarf engan visdóm; alls ólærðir menn geta gert nákvæmlega hið sama með því, að trúa ekki því, sem ritað er. Og það er dálítið um- fangsminna en að þreyta sig á öllum þessum visindalegu ransóknum. Lúkas ritar l.d. að Jesús hafi sagl: »Mannsins sonur er kominn til að leita að liinu týnda og frelsa það«. Vilji nú einhver elcki trúa því, að

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.