Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1912, Qupperneq 3

Bjarmi - 01.03.1912, Qupperneq 3
B J ARM1 35 Hvað er það, sem Iaðar? Föstuhugleiðing. Hvað er það, seni laðar og hefir laðað kristna menn á öllum tímum kristninnar til að koma saman á föst- unni og heyra pislarsögu droltins vors og frelsara Jesú Krists? Er það daudi hans oss til friðþæg- ingar við heilagan og réttlátan guð, eða er það dœmi hans, eða það, hvernig hann bar þjáningar sinar? Hver sá, sem kannast við, að hann er ófær til að hlýða lögmáli guðs af eigin kröftum, sá sem ebkar Krist, af því að hann helir elskað hann að fyrra bragði — hann svarar hildaust: Fórnardauði drollins míns er það, sem laðar mig til að heyra píslar- sögu hans, því að eg hefi sjálfur reynt sannleika þessara orða hans: Svo elskaði guð heiminn, að hann gaf í dauðann sinn eingetinn son, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Hann segir fagnandi með postulanum: Hann sem aldrei þekti synd, gjörði guð að syndafórn vegna vor, til þess að vér yrðurn hans vegna réttlættir fyrir guði. En svo eru aðrir, sem hafa mist hina sáluhjálplegu trú á fórnardauða Krists; þeir segja, að dœmi Krists laði og hafi ávalt laðað menn til að heyra píslarsögu hans, því að dæmi lians sé það, sem frelsar, með þeiin áhrif- um, sem það hafi á þá, sem færi sér það í nyt. Þeim er alt af að fjölga meðal þjóðar vorrar, sem halda fram þess- um skilningi; en auðsælt ætti það að vera, hverjum þeim, sem vill sjá það, að sá skilningur fer beint í hága við skýlaus orð Krists sjálfs og poslula hans. Dæmi Krists eitt fyrir sig frelsar engan, því að enginn verður réttlát- ur fyrir guði af verkum lögmálsins. Lítum á dæmisögu frelsara vors tijnda soninn. Hver efast um það, að faðirinn í þeirri dæmisögu hafi gefið sonum sín- um golt dæmi. En hvernig fór með eflirbreytnina? Hvorugur skildi kær- leika föðursins, hvorugur þeirra elsk- aði hann. Yngri sonurinn undi ekki fjárfor- ráðum föður síns, heimtar arfhlut sinn og fer og ællar sér auðvitað að fara fyrir fult og alt, og lifa eins og hann sjálfan lysti. Eldri sonurinn var kyr heima. »Eg liefi aldrei breytt úl af boðum þín- um«, mælti liann við föður sinn. En skyldurækni hans var einskisverð, því liún var bundin við þá von og kröfu, að faðir hans gæfi honum alikátf við og við, til þess hann gæti glalt sig með vinum sínum. Hann var ver farinn en bróðir hans, því að þegar í nauðirnar rak, hvar.f liann þó heim aftur i þeirri von, að hann myndi la að vera daglaunamaður lijá föður sínum, ef hann játaði syndir sínar einlæglega. En viðtökurnar óverð- skulduðu opnuðu augu hans; nú skildi hann kærleika föður síns. Hver efast svo um, að kærleikur föður hans hafi orðið honum knýjandi kraftur til hlýðni, til eflirbreytni upp frá því? En eldri bróðirinn var reiður og vildi ekki ganga inn. Sá, sem ekki kannast við, að Jesús liafi dáið fyrir hann af kœrleika, til þess að frelsa hann, hann elskar Krist ekki, hann þelckir hann ekki; e/tir- breytni hans er einskis virði í auguln guðs. Hafi Kristur aðeins verið maður, spámaðurinn mikli frá Nazarel, eins og sjálfir leiðtogar kyrkju vorrar lialda nú fram opinberlega, þá hefir

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.