Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1912, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.03.1912, Blaðsíða 4
36 BJARMI hann aldrei risið upp; en ef Kristur er ekki upprisinn, segir postulinn, þá er trú vor ónýt; vér erum þá enn í syndum vorum og þeir glataðir, sem dánir eru i trúnni á Krist, því að dýrkun vor er þá ekki annað en gagnslaus manndýrkun, sem engan frelsar. Vér deilum hvorki né dæmum aðra sjálfir, þó að vér höldum fram því, sem ritað er, skýlausu sannleiksorði guðs, af því að vér trúum því, og vitum af eiginni regnslu, að það er satt — eilífur sannleikur. Svo komum vér þá til að heyra söguna um fórnardauða frelsara vors, mesta /agnaðarboðskctpinn í heimi og láta síðan kærleika hans knýja oss til að feta í fótspor hans. Guð gefi oss öllum náð til þess. Fegins-grátur hins týnda sonar. Eg geng heim og græt, þú gjörir mér, droltinn minn, tárin svo sæt; af fagnandi hjarta eg fórna þér þeim, því frelsarann ástkæra sendirðu’ í heim að gjöra mig sælan og glaðan í von, þinn glataða son. Eg geng heim og græt, ó, guð minn, alt líf mitt í té þér eg læl; þú gafst mér það, faðir, eg gef þér það nú, ó, gjör þú mig styrkan í kærleika og trú. Ó, leið þú mig, hrösulan lærisvein þú lausnari minnl þinn, Þekkingin á guði. Það er margt í bibííunni, sem er Iangt fyrir ofan verksvið vísindanna, til ransóknar. Þannig er því varið um frásögurnar um tilveru guðs; þær eru þess eðlis, að vísindin komast þar eigi að. Mannsandinn hefir af- mælt verksvið, takmarkaðan liæfileika til ransóknar. Auðvitað þekkir eng- in takmörkin, svo að sagt verði: Hingað og ekki Iengra. Takmörkin eru óglögg, en mannleg skammsýni er almenn. Allir stranda einhvern- staðar, og þeir sem lengst liafa kom- ist, játa, að þeir hafi aldrei komist lengra en í fordyr þekkingarinnar. Einu sinni var Lúlher að prófa unga og gamla í kristnum fræðum í kyrkju einni á Saxlandi (1527) og spurði hann þá bónda nokkurn, hvernig ætti að skilja það, að guð væri almáttugur. »Það veit eg ekki«, mælti bóndi »Það er ekki von, vin- ur minn«, sagði Lúther, »hvorki eg né aðrir lærðir menn vita það í raun og veru, hvað hið mikla almætti guðs er, en trú þú að eins, að guð geti hjálpað þér og konu þinni og börn- um, þegar þið eruð bágslödd; þá ertu sæll og þarft ekki að vita meira«. — Svo er um þau atriði biblíunnar, sem mestu varða. Guðfræðingarnir sjálfir munu jafnvel játa það, að þeir skilji þau ekki, þau verða að vera trúaralriði. En því meiri reynslu og líkum, sem þau slyðjast við, því auð- veldara verður að sannfæra oss og þvi ríkari og trúrri verður sannfær- ing vor. Sköpun heimsins og viðhald hans, sannvizka vor og orð guðs í ritning- unni ber volt um mikinn og góðan höfund alt til samans. Alt er það opinberun guðs. í öllu þessu birt- ist guð oss. 1

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.