Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1913, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.07.1913, Blaðsíða 2
106 BJARMI skapað nýjan manu og frjófgað móð- urlif á annan hátt en þann vanalega? Og hver vogar að segja við Guð: »Mjer líkar ekki þessi leið. Hví vald- ir þú þenna veg til þess að frelsa mannnkynið? Hví gerðir þú það ekki á einhvern annan hátt, sem mér fynd- ist eölilegri?« Mundi ekki svarið frá Guði verða á þá leið: »Eg gerði það af því mér þóknaðist að gera það! hvað kemur það þér við? — Hvers vegna ætti elcki hinn eilífi og almátl- ugi Guð að geta gengið inn í kjör mannanna, og lifað í sönnu mannlífi, liðið í óendanlegum mæli og gengið gegnum öldur dauðans? Gæti hann það ekki, þá væri liann ekki hinn algjöri og ótakmarkaði Guð; gæti hann það ekki, væri hann ekki lengur Guð, lieldur takmörkuð og ófullkomin vera, og þá gæti eg ekki lengur treyst lion- um né tilbeðið hann; já, kæmist eg á þá skoðun að hann gæti það ekki, færi eg að efast um að hann væri til. Svo stendur þetla fyrir mér. Og er eg svo les liina lieilögu trúarjátningu, sem kend er við postulana og sé, að þar stendur um Jesúm Krist, að liann sé getinn af lieilögum anda og fædd- ur af Maríu meyju, þá trúi eg því og veil, að það er salt; undrast eg þá alls ekki yíir því, að þelta sé mögu- legt, lieldur yíir hinu, hve Guð er góður að velja einmitt þenna veg. Eg trúi því þannig með allri Guðs heilögu kirkju, að Jesús Kristur, hinn sanni maður, sé einnig sannur Guð. Eg trúi því, að hann sé svo mikill og máltugur, að liann eftir eilífu vísdóms- ráði sínu gat orðið svo lítill og veik- ur að búa í mannlegu holdi og sam- einast því. Á hvern liátl þessari sam- einingu sé varið, það veit eg ekki, og skil það ekki; kæri mig heldur ekki uin að skilja það, því það er mér eilíílega nóg að vita að svona var það. Eg dáist að þessum mikilleik máttar, vísdóms og kærleika. Eg fyllist lotningu, er eg hugsa um liinn skapandi Guð, er útþenur himn- ana, framkallar sólirnar og hnitmið- ar brautir reikandi stjarna. En enn þá meiri lotningu og aðdáun fyllist eg, er eg virði fyrir mér, að sá liinn sami sem framkvæmandinn er við alla sköpun, að hann hangir á krossi og lekur á sig mina sekt og líður í staðinn fyrir mig og veitir mér með því kost á frelsi og fyrirgefning. Já, eg vil vitna um það til minnar síð- ustu stundar og segja það óhikað: Eg dái enn meir kærleiksmátt hins krossfesta Guðs en almættis krapt hins skapanda Guðs. Jesús Kristur, liinn mikli eilífi Guð, orð Guðs, sem var í upphafi, er orðinn maður, sem lifði, leið og dó, og reis aftur líkamlega upp frá dauðurn. Og hann, sem hefir opinberað guð, liann hefir alla eilífð verið framkvæmandi við alla sköjiun, því »fyrir hann eru allir lilutir gerðir og án hans varð ekkert til, sem til er orðið«. Þannig segir oss hið órask- anlega eilífa sannleiksorð, sem mált- ugra er en allar getgátur manna og mun á sínum tíma verða þeim til dóms, sem ekki vilja beygja sig fyrir því. Guðs orð í heilagri ritningu liefir fyrir mig eilíft sannleiksgildi, og er það segir, að Guði sé ekkert ómáltugl, þá trúi eg því bókstaflega, trúi um leið þeirn sannleika, að honum hafi lieldur ekki verið ómáttugt að sam- eina sitt guðdómseðli við manneðlið og vera i einu sannur Guð og sannur maður. Svo bjargfast er Guðs orð í heilagri ritningu fyrir mig, að þar stendur ekkert, sem eg get ekki trúað. Frá tyrstu blaðsíðu til hinnar síðustu finn eg hátign og óendanlegan heil- agleik sameinaðan liinum dýrðlegasla

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.