Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1913, Síða 7

Bjarmi - 01.07.1913, Síða 7
B JARMI 111 Nýguðfræðin og Jón Helgason próf, (Framh.) IV. Min 7. hugleiðingin er um »Hvað Krist- ur opinberar oss uni Guð og sjálfa oss«. J. H. segir, að Jesús hafi opinberað oss pann Guð, sem liann kallar Guð sinn og föður sinn. Auðvitað er þetta rétt; en liér er þó ekki um nijjan Guð að ræða, heldur hinn sama Guð, sem Gyðingar þektu áður sem Guð og »föður« sinn. Móse segir í ljóði sinu 5. Mós. 32,G: »Er hann ekki faðir þinn?« í 89. Sálmi segir: »Þú ert faðir minn, Guð minn og kleltur lijálpræðis mins«. Hinn 103. Sálmur er dýrðleg lofgjörð um Guð, og honum líkt við föður, er »sýnir miskunn börnum sinum«. Jesaja segir: »Sannarlega crt þú faðir vor«. Jeremía scgir: »Faðir minn, þú ert unnusti æsku minnar« og »Þér skuluð nefna mig föður og eigi lála af að fylgja mér«. Fleiri staði í Gamla testam. mætli tilfæra, sem sýna, að Gyðingar þektu Guð, sem föður sinn. En Jesús gerir föður-hugmyndina víðlœkari; opin- ltcrar, að Guð er ekki að cins Guð og faðir Gyðinga, heldur Guð og faðir allra numna. En svo opinberar Jesús líka, að Guð er faðir hans í sérstakri merkingu. Pegar liann talar við mennina um Guð, þá segir hann annaðhvort: »Faðir yðar« cða: »Faðirinn«; cn aldrei: Faðir vor allra. Hann blandar aldrei sjálfum sér á þann liátt inn í manna hópinn. Hann greinir sjálfan sig frá. Hann segir t. d.: »Eg stíg upp til föður mins og föður yðar, til Guðs míns og Guðs yðar«, Jóh. 20. 17. — En lærisveinunum ætlaði hann að segja: »Faðir vor«. Þegar nú .1. IJ. fcr að svara spurning- unni: »Hvað heíir Jesús opinberað oss um þcnnan Guð sinn og föður?« þá sleppir bann aðal-svarinu. Gyðingar vissu það áður, að Guð er heilagur, réttlátur, almáttugur, náðugur og miskunnsamur, þolinmóður og gæzku- ríkur, trúfastur og kærleiksrikur o. s. frv. Pella sýna Sálmarnir oss greinilega og spámcnnirnir sömuleiðis. Jesú þurfti þvi ekki að opinbera mönnum það. En það, sem Jesús o])inberar Gyðingum og öllum heiminum, er />að nijja, að Guð cr svo óumrœðilega kœrlciksrikur, að hann hefir gert alveg sérs/aka, dýrðlega rúðslöfun til þess, að frelsa alla mcnn frá glötun og gefa þeim eilifl lif með þvi að scnda son- inn sinn í lieiminn. Þella er hið ngja, fagnaðarerindið, sem Jesús o])inbérar öil- um mönnum: »Svo elskaði Guð heim- inn, að hann gaf soninn sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glat- ist ekki, heldur liafi eilíft líf«, Jóh. 3. 16. Alt lífsstarf Jesú Krists er, að prédika þetta mönnunum, skýra það fyrir þeim og framkvœma það. Um Guð sjálfan opinberar Jesús þetta l. d.: að hann sé »andi, og að þeir sem tilbiðja liann, eigi að tilbiðja hann í anda og sannleika«, að Gnð einn sé góður, eng- inn nema hann; að fyrir Guði séu allir hlutir mögulegir; að Guð sé ekki Guð dauðra, heldur lifeuda; að Guð einn sé drottinn. Gyðingar höfðu að meiru eða minna leyti þckking á þessu öllu áður. Jesús segir einnig að Faðirinn elski sig (Jesúm) og clski lærisveina hans, og hafi elskað þá. En elsku Guðs, kærlcika Guðs, liefur Jesús upp í hœsla veldi, þegar liann opinberar mönnunum þelta: »Svo elsk- aði Guð heiminn« o. s. frv. og opinberaði þar með hina nýju, dýnnætustu kærlciks- ráðstöfun Guðs«. Pað er stór-undarlegt, að J. H. skuli sleppa þessu hö/uð-alriði, sjálfu fagnaðar- erindinu, þegar liann lekur sér fyrir hend- ur að hugleiða: »IIvað Kristur opinberar oss um Guð og sjálfa oss«. í þessu fagnaðarerindi eru fólgnar opin- beranir um öll atriðin, sem tilheyra krist- indómnum; t. a. m. að til sé Guðs ríki, himnaríki, eilíft lif; að þetta ríki, þetta lif sé fyrirbúið öllum mönnum; i bverju ráð- stafanir Guðs þessu viðvikjandi séu fólgn- ar; hvað af manna liálfu útheimtist, lil þess að geta fært sér í nyt borgararétt í þessu riki, öðlast eilifa lííið, er byrjar hér á jörðunni og heldur áfram um alla eilifð, o. s. frv., o. s. frv. Pað geta varla lalist kristilegar trúmála- hugleiðingar um »Hvað Krislur opinber- ar oss um Guð og sjálfa oss«, sem sleppa alveg sjálfu fagnaðarerindi Krists, nýja rikinu, nýja lífinu, sem Guð faðir gefur oss mönnunum mcð sendingu síns ein- getna sonarins í heiminn og fullkomnast með gjöf heilags anda. I stað þess að »hugleiða« fagnaðarer- indið tekur ,1. H. til að fullyrða, að »þrenn- ingar-hugtakið« komi alls ekki fyrir í Ritningunni spjaldanna á milli. Petta full-

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.