Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.01.1915, Blaðsíða 13

Bjarmi - 07.01.1915, Blaðsíða 13
B J A B M I 11 Lögmál og fagnaðarboðskapur, Lögmálið er skínandi ljós, en það ljós birlir oss ekki náð Gnðs né það réttlæli sem veitir oss eilíft líf og sælu, heldur sj'nd vora og samvizku, dauð- ann, reiði Guðs og dóminn. Fagnaðarboðskapurinn er líka skín- andi ljós, cn það Ijós upplýsir, lífgar og huggar hreldar sálir, því það birt- ir oss náð Guðs við ómaklega og fyr- irdæmda syndara, Krists vegua, efþeir trúa því, að Kristur haii endurieyst þá með dauða sinum og sigur lians veiti þeim náð, fyrirgefningu synd- anna, réttlæti og eilíft líf. Lögmálið linnur sjúkdóminn í oss, en fagtiaðarboðskapurinn veitir lækn- isdóminn. Lögmálið segir oss, livað við eig- um að gjöra, en fagnaðarboðskapur- inn segir oss þar á móli, livað Guð vill geja. Lúther. Bréf til barna minna, Brúðför í Iandinu helga. rEftir Hcnry A. Harpcr). I Austurlöndum eru niargir kynlegir siðir, þar á meðal brúðkaupssiðirnir. Einu sinni var eg á ferð í borg nokkurri um kvöld. Fór þá fram hjá mér hópur manna. Fremstir gengu menn, sem báru kyndla, sem lýstu ágætlega. Á eftir fóru hljóðfæramenn með flautur og trumbur, en aftast gengu menn og báru fána. Þetta var brúðgumi með föruneyti sínu að sækja brúði sína. Þegar hann kom nærri heimili brúðurinnar, þá kom yngis- meyjahópur á móti honum og höfðu þær allar logandi lampa í höndum. Þær léku á ilatar trumbur með bjöllum á röndun- um og glumdi hátt í þeim. Síðan hvarf allur skarinn inn í húsið og varð þá alt hljótt aftur. Lamiiarnir, sem brúðmeyjarnar báru, voru gerðir úr leir; lokið á þeim var fast og göt á og niður um þau er olíunni (viðsmjörinu) helt í lampana; í lampanefinu er stuttur baðmullarkveikur. Dauft er Ijósið á þess- um lömpum og hætt við að slokna, ef súg- ur kemur að því. Lamparnir rúma lftið af olíu í einu og verða meyjarnar því að hafa með sér olfu á könnum og hella í þá jafn- óðum og á þeim þornar. Þessi lýsing kemur nákvæmlega heim við dæmisögu frelsara vors um forsjálu og ófor- sjálu meyjarnar. Óforsjálu meyjarnar höfðu enga olíu með sér; en komu brúðgumans seinkaði og þær urðu þreyttar og sofnuðu og vöknuðu ekki aftur, fyr en brúðguminn var því nær kominn með brúðsveinum sín- um; urðu þær þá óttaslegnar og báðu for- sjálu meyjarnar að gefa sér á lampana af olíunni sinni, en þær höfðu ekki meira en þær þurftu sjálfar á að halda; fóru þá meyj- arnar með skyndi til að kaupa sér olíu, en þegar þær komu aftur, var brúðkaupssaln- um lokað og þær fengu ekki að koma inn. Börn, sern halda, að þau þurfi ekki á hjálp Guðs að halda til þess að vera hlýð- in, ráðvönd og ástúðleg, eru eins og ófor- sjálu meyjarnar. Börn mega aldrei hætta að biðja Guð að auka þann forða, sem þau hafa, af kærleika, hlýðni og sannleika. Þau ná skamt í því af eigin mætti að halda lömpum hjarta síns logandi. En hverju því barni, sem biður, gefur Guð af sínum ó- tæmandi forða; hann nægir handa öllum og hann fæst ókeypis, hann er gefinn með gleði. Jólabókin 1914 var send Bjarma eins og undanförnu. liún er inndælasta dægrastytting handa þeim, sem unna góðum sögum og Ijóðum. Fyrst er Nóllin helga, Ijólaljóð eftir (Juðm. Guð- mundsson. Þá koma: Týnd jól — fundin jól, saga frá æskuárum Grundtvigs, hins fræga kennimanns og sálmaskálds Dana, ásamt yfirliti yfir lífstarf hans, ritað til þess, að þeir, sem lesa, geti fundið bjarta gleði á jólaháttðinni. Þá kemur saga eftir Olfert Ricard, sem mörgum er orðinn kunnur hér heima, forstöðumann K. F. U. M. í Kaupmannahöfn; Míra, er nafn sögunnar. Það er saga af stúlku, sem Mira hét eða Maria og var ein af börnum þeim, sem jesús tók sér í faðm og blessaði. Sagan er hin fegursta dæmisaga — minnir á skírn- ina og ferminguna — minnir á blesun þá, sem trúaðar mæður geta veitt börnum sín-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.