Bjarmi - 01.03.1915, Qupperneq 8
40
BJARMI
Svarar Kaftan þá skorinort, að kristin
trú hafi enga meginfrumhugsjón, aðalatriði
hennar, eða Á. og Ó , sé p e r s ó n a, sem
um sé mælt: »1 gær og í dag og að eillfu
hinn samie.
Áhangendur nýju trúarbragðanna (ný-
prótestantismans) séu sín vegna alveg sjálf-
ráðir, hvernig þeir ákveði »meginfrumhug-
sjón« þeirra, en hann geti ekki dulið, að
hann telji þau fráhvarf frá kristindóminum.
Kaftan endar opið bréftil Radeaþessaleið:
»Þeir, sem telja gömlu trúna vora úrelta
ímynd þess, sem þeir eigi f miklu betri
mynd, geta látið sér liggja f ljettu rúmi
það sem hreyfir sér f djúpi sálar vorrar.
En f vorum augum er hér um helgustu
meginatriði að tefla Ósannsöglin, sem
mótar kyrkjumál vor nú, særir siðterðistil-
finningar mtnar, og eg er ekki sá eini, sem
það segir.
Eg tel kyrkjuna aflvana stofnun þegar
hún er horfin frá Kristi ritningarinnar. Sé
sá Kristur, sem hún segir frá, Kristur, get-
inn af Guði, krossfestur og upprisinn, ekki
sannsöguleg persóna, heldur hugmynda-
smíði safnaðarins, þá er meira en mál til
komið, að vér rýmum því á brott, sem kall-
að hefir verið kristindómur hingað til
með sögulegum rétti. Haettum þá við
kyrkjuna sem kyrkju og leitum oss nýrra
heimkynna í söfnuði spekinga vorra og
skálda, jafnframt því sem vér felum hverj-
um einstakling að fara eftir hugþótta
sfnum . . . Vera má að yður finnist, hátt-
virti herra doktor, svar þetta miður vin-
gjarnlegt, en eg get ekki, sem hreinskilinn
maður, svarað yður öðruvísi«.
Það er bersýnilegt á þessum ummælum,
að hér er ágreiningurinn mikill, þótt báðir
séu mennirnir lærðir og víðsýnir í kyrkju-
og trúmálum — Væri óskandi og vonandi
að deilan yrði til þess að hægri fylkingar-
armur nýguðfræðinnar færi nú alment að
sjá að sér og hverfa aftur að shinni gömlu
götu«. Er ekki ólíklegt, að hinn ahöru-
þrungni ófriður geti og stutt að þvf, því
að lttil huggun mun þeim, sem heima gráta
fallna ástvini, vera að getgátusmtði svæsnu
guðfræðinnar. S. A Gislason.
Frá Noregi.
Séra Th. Klaveness, Kristjaníupresturinn
nafnkunni, hefir fengið lausn frá embætti
sínu frá i, maf n. k. með 3500 kr. eftir-
launum. — Það mundi þysja hæfilegt
handa 10 uppgjafaprestum hja oss Frón-
búum. — Klaveness prestur liggur þungt
haldinn um þessar mundir, en núna um
áramótin flutti hann fermingarræðu, sem
vakið hefir töluverða athygli í Noregi, og
gæti ef til vill att erindi einnig til vor.
Getur hann þess, að þar sem þetta séu
síðustu fermingarbörnin stn, hljóti hann að
minnast mörgu barnahópanna, sem hann
hafi fermt undanfarin 40 prestskaparár sín,
og bera þá saman f huga sér, og sfðan
segir hann:
»En sá samanburður er mér hrygðarefni,
því að eg sé greinilega, að þekkingu barn-
anna fer stöðugt hnignandi. Öll önnur
þekking fer vaxandi, en kristindómsþekk-
ingunni fer hnignandi. Vér fermum nú
böm, sem mér fyr taeir hetði ekki komið
f hug að ferma. Sum kunna að vfsu nokk-
uð og skilja dalftið, en mörg kunna börnin
ekkert. Og það eru alls ekki börnin frá
lélegustu heimilunum eða lökustu skólun-
um, oft eru það börn frá beztu heimilun-
um.
En hver er ástæðan? Skólalöggjöf vor
hefir misþyrmt trúarbragðakenslunni, það
er önnur ástæðan. En hin er sú, að fólk
kann ekki að meta trúarbrögðin. Menn
skilja, hvers vegna það er gott að læra
þýzku, fiönsku, náttúrufræði o. s. frv., en
bera ekki skyn á gildi trúarinnar. Og þó
er mér ókunnugt um, að mannkynið hafi
uppgötvað nokkuð, sem geti veitt þrek og
hugrekki í erfiðleikum og freistingum frem-
ur en trúin á Krist. Mannleg vfsindi megna
ekki að veita þrek og viljafestu, sama er
um skáldskap og annað það, sem menn
hafa á boðstólum; kristin trú ein er fær
um það.
Eg mæli með þessu húsi við yður.
Sækið vel kyrkju. Komið til guðsþjónustu.
Þvf að það er einnig hrygðarefni, að æskan
fer í hópum fram hjá kyrkjunni. Og þvf
verða fjöldamargir mentamenn vorir jafn
fákunnandi og heiðingjar í kristnum fræð-
um.
Þjóð vor fær tilfinnanlega að kenna á
því. Mér er þungbært að huesa um það«.
S. A Gíslason.
Ctgefandi: Hlutafélag í Reykjavik.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Grettisgötu 12, Reykjavik.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Signrjón Jónsson, Laugavcgi 19.
Afgreiðslan (Laugaveg 19) opin kl. 8. árd. til kl. 8. síðd.
Prcntsmiöjan Gutcnberg.