Bjarmi - 15.11.1915, Blaðsíða 4
172
BJARMI
segir við þá, sem koma á hans fund:
»Sannlega, sannlega segi eg yður:
Þér munuð sjá himininn opinn og
engla Guðs stíga upp og stíga niður
yfir manns-soninn«. Hver tekur betur
á móti vinum sínum? Þannig er að
vera með Jesú. Þannig býður liann
vini sína velkomna. Við þeim hlasa
hin gullnu Paradísarhlið og þeim er
boðin englavernd. — Svo vel er mér
við æskulýðinn, að eg vil, að sonur
þinn og dóttir séu í þessum hóp.
Svo vel er mér við þig, að eg vil,
að þú sjáir hina fegurstu sýn. Þess
vegna segi eg við þig: »Sjá, Guðs
lambiðw. — Þú þarft að sjá þessa
sýn, því að þú liorfir á svo margar
daprar sýnir. Þú situr stundum undir
fikjutrénu og horfir upp í skýjaðan
himinn, situr við lokaðar dyr. Hið
ytra og hið innra mæðir hjarta þitt.
En sjá Guðs lambið, þá opnast
himininn og englar eru á ferð. Og
betra er að þjást undir opnum himni,
þar sem englar eru á ferð en að
berjast einn hjá lokuðum dyrum,
þar sem engir englar sjást. Enginn
hefir aðra eins fegurð og dýrð að
bjóða eins og Jesús: »Sannlega, segi
eg yður: Þér munuð sjá himininn
opinn«. Þannig er kristindómurinn.
Slíkt stendur mönnum til boða, en
margir hlaupa eftir tælandi röddum
og ætla að ná í gull og græna skóga.
En hún kom, hin sára blekking, og
himininn varð skýjaður
En hefir nokkurn iðrað þess að
hann var með Kristi? Nei. Við
Natanael var sagt: »Þú skalt sjá það,
sem þessu er meira«. — Ekki blekk-
ing, ekki vonbrigði, heldur hin feg-
ursta dýrðarsjón, opinn liiminn og
lofsyngjandi englar kringum manns-
ins son. — Er nokkuð sjálfsagðara
en að eg segi: »Sjá, Guðs lambið?«
En er nokkuð sjálfsagðara en að þú
berir þessi skilaboð til annara? Það
væri í samræmi við hið yndislega
guðspjall; eg vil að endingu benda
þér á Andrés og Filippus, og á bak
við línurnar er Jóhannes, sem hefir
sótt Jakob, en fyrst fann Andrés
bróður sinn Símon og segir við hann:
»Við höfum fundið Messías« — og
hann fór með hann til Jesi'i. Og
Filppus finnur Natanael og þegar
Natanael spyr: »Getur nokkuð gott
komið frá Nazarel?« Þá heldur Filip-
pus ágæta prédikun: »Kom þú og
sjá«.
Er Andrés hér inni eða Filippus?
Það er starf handa þér. Getur þú
kosið þér betri eftirmæli en að um
þig verði sagt: »Hann fór með mig
lil Jesú«? Gelur þú gefið mönnum
belri bendingu og belra ráð en þetta:
»Kom þú og sjá?« — Langar þig
ekki til að bera kveðju frá himnin-
um? Þekkir þú ekki einhvern, sem
þarfnast slíkrar kveðju? —
Þá hefi eg fylgt guðspjalli dagsins
og bent þér á þá, sem þar eru nefndir
og því meir sem eg hugsa um guð-
spjallið og hinar björtu sólskins-
myndir þaðan, þess ríkari verður gleði
mín og eg fylgi minni brennandi
hjartans þrá, er eg segi við þig:
»Sjá, Guðs lambið«. Amen.
Kverlærdómurinn.
Margt er sagt uni kverlærdóniinn nú
á síðustu tfmum og er svo að sjá sem
margir af leiðtogum kristindóms og ment-
unar hér á landi séu sammála um að
stuðla til pess að kverið sé lagt á hilluna
og eigi hreyft þaðan framar. Og mér
skilst svo að þeir álíti kverlærdóminn
eigi aðeins gagnslausan lieldur einnig
skaðlegan og það eigi einungis fyrir
kristindóminn, heldur einnig fyrir aðrar
fræðigreinar sem börnum eru kendar,