Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.03.1916, Blaðsíða 1

Bjarmi - 07.03.1916, Blaðsíða 1
BJARMI KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ X. árg. Reykjavík, 7. inarz 1916. 4. tbl. Pú skall ekki hafa aðra Guði en mig. 2. Mós. 20,3. Aðdráttarafl hjátrúarinnar. »Mikið er aðdrátlarall hjátrúar- innar« varð einum mikilsvirtum borgara að orði eitt sinn, er hon- um varð gengið fram hjá einu sam- komuhúsinu hér í Reykjavík. Draumamaður mikill, sem dreym- ir jafnt i vöku sem sveíni, hafði boðið fólki að hlj'ða á drauma sína spaklega, og nú var það að drífa að úr öllum áttum, eins og sárþyrst hjörð að valnsbóli. Og það er hverju orði sannara, að þarna var auðsælt aðdráttaraíl hjá- trúarinnar, því að það er alkunnugt, að draumspekin hefir lengi verið talin éinhver merkilegasti þáltur mann- légrar speki. Leyndardómahnýsnin er rík í eðli manna. Og af því að þeir vita, að þeir eru mörgu leyndir, þá beita þeir draumspekinni til að fá það að vita um forlög sín eða annara og aðra óorðna hluti, sem Guð vill láta leynt vera, og spyrja svo ekk- ert um vilja hans í því efni. Þetta er hjátrú. Þetta er að ætla sér að draga meira en Drottinn vill gefa. Trúaður maður veit, að Guð get- ur birt honum vilja sinn í draumi, eins og á annan hátt, en hann fel- ur það ávalt vísdómi Guðs og vilja á vald, lwað hann fær að vita og hvernig hann fær að vita það. Og eilt veit hann, að komi vísbending- in frá Guði, þá er hún spyrjandan- um ávalt ótvíræð, á hvern hátt sem hún kemur. Hér er ekki um neina hjátrú að ræða, því að hann lætur Guð öllu ráða. Hann vill ekkert vila, sem Guð vill ekki birta hon- um, því hann veit, að Guð sér, hvað honum henlar bezt í því efni. Sú trú, að menn geti vitað fyrir forlög sín af eigin ramleik með draumaráðningum, er ramheiðin og ein grein af trúnni á mátt og megin. Þá er andatrúin svo nefnda á öðru leitinu hér í bænum. En það er sú trú, að menn geti náð með visindalegum brögðum tökum á öndum framliðinna manna, og spurt þá spjörunum úr um alt það, sem vantrúa og efasjúkum mönnum get- ur í hug komið, og snertir bæði þelta lif og annað. Þessi trú var hér í miklu gengi fyrir nokkrum árum, bæði í myrkva- stofum sinum og á prédikunarstól. En nú hefir lnin legið niðri um hríð, eins og sagt er um útsynning- inn, af þvi að gömlu miðlarnir duttu úr sögunni. Nú kváðu vera komnir nýjir miðl- ar til sögunnar, og svo magnaðir, að úr þeim sindri eldglæringar í myrkrinu. En galdrameistarinn sjálf- ur, sem fleslar kann vélarnar til þessara hluta, kvað segja, að ekki séu miðlarnir fullmagnaðir, fyr en þeir verði hvítglóandi! Þá sé fyrst

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.