Bjarmi - 07.03.1916, Síða 8
32
BJARMI
ingimi og fór svo með hann lil úr-
smiðs og keypli þar handa honnm
Ijómandi fallegt úr.
»Sá, sem heiðrar foreldrar sína, er
verður gullsins«, sagði hershöfðinginn
um leið og hann fekk hinum unga
manni úrið.
Guð elskar oss ávalt.
»Mamma, Guð elskar okkur altaf,
er það ekki«?
»Jú, harnið inilt, alt af«.
»En einhver var að segja, að Guð
elskaði oss ekki, nema þegar við vær-
um þæg«.
»Hvað virðist þér«?
»Mamma, eg hugsa mér, að Guð
fari líkt að og þú. Þú elskar okkur all
af, en þú ert hrygg, þegar við erum
óþekk, en glöð þegar við erum þæg«.
Ekkert mist.
Einu sinni var faðir spurður, hvort
liann hefði mist nokkur af hörnum
sinum. »Nei«, svaraði hann, »eg á
tvö hörn á himni, en eg heíi ekki
inist þau«.
Á kristnu heimili er dáið barn að-
eins horfið að sj'nilegum návistum,
en um eilífan skilnað er ekki að
ræða. (Malt. 18,14).
Úr ýmsum áttum,
Heima.
Fyrir skömmu var síra Sigurður Sig-
urðsson kosinn prestur að Ásum í Skaft-
ártungu og Jón Guðnason kand. theol.
að Staðarhóli í Dalasýslu, báðir með þorra
atkvæða.
Til jólakveðjusjóðs hafa sent síðan
seinast var talið: Síra Jón á Djúpavogi
5 kr. 41 eyri, síra Páll á Svalbarði 5 kr.,
I skólabörn á ísafirði 22 kr. 50 a., skóla-
börn í Hnifsdal 5 kr., skólabörn i Suður-
látsbarnaskóla 5 kr., sira Sigurður í Fiat-
ey 5 kr., síra Björn á Dvergasteini 20 kr.
Erlendis.
Á Vesturheimseyjum Dana hafa
verið að undanförnu óvenjulega snarpar
deilur um bindindismálið. Bindindismála-
nefnd sú, sem setið hefir alllengi á rök-
stólum i Danmörku, heimtaði skýrslur
þaðan og gerði sig líklega til að leggja til
að einhverjar hömlur væri lagðar á áfeng-
isverzlunina þar vestra. Enda ber flestum
saman um að drykkjuskapur og dælur
hans: lauslæti og Ieti, varni þar öllum
þjóðþrifum. En landsstjórn ej'janna
eða »Kolóníuráðið« var ekki á því máli,
og taldi allar bindindisráðslafanir mesta
óþarfa, það væru »ekki nema« 30000 gall-
ónur áfengis bruggaöar þar árlega handa
evjarskeggjum, og væri sízt of mikið, þótt
þannig kæmu um 11 lítrar áfengis á hvern
mann. Danskur prcstur, Faber að nafni,
á St. Croix, tók þá að andmæla því harð-
lega, sagði hann skýrsluna rangn, þótt
»opinber« væri. Það væru bruggaðar
50000 gallóna árlega handa eyjarskcggjum
og auk þess aðkeypt áfengí fyrir 100 þús-
und krónur árlega, og þótti það lieldur
míkið handa einum 15 þúsund manns.
Bætti hann því við, að sízt væri furða,
þólt landsstjórnin væri andvig bindindi,
því 3 vínsölumenn sætu í henni og ílestir
broddborgararnir hefðu tekjur af áfeng-
issölunni. Svörin, sem hann fékk, voru
persónulegar skammir i blöðunum, og til
áréttingar var honum stefnt fjTrir að æsa
alþýðu lil nppreisnar, með þvi að vera
að prédika »þetta bindindi«! Dönsk blöð
telja þó enga von til þess, að hæstiréttur
Dana teljí slíkt landráðasök, en liúast
fremur við, að úr þessu verði farið að
taka betur í taumana hjá vínsölunum,
enda þótt margir þeirra séu hátt settir
þar vestra.
S. A. fíislason.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavik.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Greltisgötu 12, Reykjavik.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Laugavegi 19.
Afgreiðslan (Laugaveg 19) opin kl. 8, árd. til kl. 8. siðd. Sími 504.
Prentsmiöjan Gutenberg.