Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.1916, Side 5

Bjarmi - 01.05.1916, Side 5
B JARMI 53 'r....... .....................=* Raddir almennings. ...... ........-i Lillu slúlkan sem dó, cn lilir þó og bendir heim. Merkur bóndi norðanlands misti dóttur sína 5 ára gamla snemma í vetur (10. des.). Minnist hann svo vel á hana í nýkomnu brjefi, að ætla má að einhverjir, sem liarma látin börn sín, liafi gagn af að heyra það. — Hann skrifar meðal annars: »I}að er svo margt sem jeg vildi segja, því að þetta atvik hefir komið svo mikilli breytingu á hugann. Þessi sorg, sem er sú langþyngsta er jeg liefi reynt, hefir fylt hjarta mitt svo sárum liarmi og söknuði að lífið kemur mjer nú alt öðru vísi fyrir sjónir en áður. Það að horfa á eftir þessari heitt elskuðu dóltur yfir um dauðans haf, það liefir með svo ó- gleymanlegum sársauka sannað mjer, að hjer í lífi er okkur ekki ætlað að njóta annarar varanlegrar sælu en þeirrar er fæst með lifandi trú á Guð. Og það að eiga nú yndið sitt, ekki lengur samvistum með sjer heldur fyrir handan hafið, það gerir að hug- urinn leitar þangað yfrum. Hann þarf oft að koma þar sem litla elskan á nú lieima, og þó að hann finni ekki hana, þá finnur hann föðurinn sem hún er hjá, og samtalið við hann (bænin) geíur vissu um líðan liennar, og um leið þá hugsvölun sem ein inegnar að sefa sorgina. Þótl jeg áður hafi nolið styrks og sælu i bæninni, þá hefir það ekki verið eins áhril'amikið og nú. Lífs- gleðin bjerna megin orðin svo lítil, en eilífðarhugsunin orðin svo ákveð- in og gleðileg. Já þetta hefir fært okkur nær himninum og þrá hjart- ans, sú að fá að finnasl hjá Guði, tekur nú yfir alt annað. Þó að þessi missir tæki okkur svo sárt og hefði mikil áhrif, þá er það ekki af því að okkur finnist ekkert eftir til að lifa fyrir. Nei, Guði sje lof, við eigutn 2 ástúðleg og góð börn eftir, sem voru okkur jafnkær. En þetta var svo stórt skarð í ekki stærri hóp. Hún var líka yngst, og ungbarns ástin og innilegleikinn fylgdi henni. Þar að auk var hún svo yndislegt barn sem orðið gat. Öll framkoma hennar var svo geðþekk, um leið og hún var svo tilkomumikil. Þó hún væri yngst og aðeins á 6. ári, þá inátti heila að hún stjórnaði systkinum sínum hvar sem þau voru ein saman. Viljaþrek- ið og festan var svo einkennilega á- berandi að það hlulu aðrir að hlýða lienni. Eins var trygglyndið við það sem henni þótti vænt um, svo sem einstaka menn og ekki síst skepnurn- ar. Meðal þeirra átli hún vini, sem hún gat alt gert fyrir, og það tók hana svo sárl ef skepnum leið illa. í hverju húsi átti hún eitthvert dýr og gerði gælur við það, þegar hún mátti, og mörg af þeim þektu litla eigandann. Þau minna mig nú alstað- ar á lillu umhyggjusömu stúlkuna mína. Þó var ekkert eins að-dáanlegt eins og ástúð liennar og kærleiki, sem mamma hennar naut mest. Jeg hefi sjeð málverk af kærleiksgyðjunni, og það minnir mig ávalt á augnaráð og svip Guðrúnar litlu«. Andvörp útlcndingsins. Margur fer einförum með trú sína og þekkir fáa eða engan í nágrenni sínu, sem hann getur lalað við um það sem hjarta hans ann. Brjefin frá þeim eru stundum svipuð andvörpum útlendings, sem staddur er hjá ókunnri þjóð og heyrir hvergi móðurmál sitt. Þeir, sem eiga því láui að fagna að eiga trúaða ástvini og ýmsa trúaða nágranna, vita naumast hvað sárt hinir íinna til »einverunnar« og

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.