Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.05.1916, Page 8

Bjarmi - 01.05.1916, Page 8
56 ÖJARMI dæmi, og eru þar oft undirbúin ýms mál til þingsins. Árin milii þinga er haldinn venjulega prestafundur, einn á hverju ári, fyrir land alt. Sá síöasti var haidinn í Hels- ingfors i október s. 1. Ilann stóð í 3 daga og sóttu hann 225 prestar, eða um fjórði hluti allra finskra presta. Prestskonurnar hjeldu annan fund jafn- hliða í Helsingfors og ræddu þar áhuga- mál sín. Fundarstjóri prestafundarins var Walli stiftprófastur. í upphafsræðn sinni talaði hann um hvað þjóðin ætti mikið Drottni að þakka á þessum hörmungatima ann- ara þjóða, en bætti því við, að hún ljcti sjer annara erfiðleika lílt að kenningu verða og tæki ekki bróðurþátt í þeirra kjörum. Pví að þá mundi eigingirni, munaðarfikn og andlegt kæruleysi láta minna á sjer bera. Fundur þessi hafði allmörg mál til meðferðar. Meðal annars má nefna: Sa/naðarlifið og proski pess. Urðu fjör- ugar umræður um það og hölluðust menn að því að koma á svonefndum »kirkju- dögum«, eða fundarhöldum meðal presta og áhugasainra leikmanna ákveðna daga árlega. Talið var og nauðsynlegt að koma á fót »kirkjulegri frjettastofu«, líkt og í Noregi, þar sem sjeð væri um að koma greinum um trúmál og kirkjumál i stjórnmálablöð. Var nefnd kosin til að undirbúa það mál til næsta fundar í sumar. Iláskólakennari úr guðfræðisdeildinni í Ifelsingfors, dr. Pietila, fiutti erindi um »játningarfestu í starfi prestsins«. Másegja að aðalefni þess erindis væri þetta: »Pjónn orðsins er kominn á hættulegan veg, ef hann metur meira fátæklega trú- arreynslu sína en opinberað orð ritning- arinnar, játningarrit kirkjunnar og trúar- reynslu kristninnar á liðnum öldum. Presturinn er auk þess trúnaðarmaður safnaðarins og því skuldbundinn til að boða þau grundvallaratriði ein, sem kirkj- an og söfnuðurinn hefir samþykt«. Siðgœðismálið var efni eins fyrirlesturs- ins, og voru prestar þar hvattir til að leggja rækt við það mál, taka það til meðferðar við fermingarundirbúning, og sömuleiðis í ræðum sínum, en vitanlega með allri gætni. Ennfremur varrættum barnaspurninga- kver, »hlutvcrk finsku kirkjunnar í þegn- fjelagsmálum« o. 11. mál, sem hjer yrði oflangt að telja. Yfirleitt virtust þeir sem tóku til máls hafa bestu vonir um framtíð finsku kirkj- unnar, og stakk það nokkuð í stúf við svartsýni undanfarinna prestafunda, — enda lögðu gömlu prestarnir fátt til mála. Eftirtektavert var það og að allir mæltu á finsku að einum manni og einni ræðu hans frátekinni, sem var á sænsku. Spurningar til kaupanda Bjarma. 1. Hvaða trúmála atriði óskið þjer sjerstaklega að rædd verði í blað- inu? 2. Hvaða siðferðismál á fyrst og fremst að ræða? 3. Á að hafa fleiri eða færri smásög- ur í blaðinu, en að undanförnu? 4. Eruð þjer með eða móti kver- kenslu barnakennaranna? 5. Eruð þjer með eða móti aðskiln- aði ríkis og kirkju? Æskilegt væri að fá skrifleg svör sem flestra kaupanda blaðsins við þessum spurningum. Seinna má svo geta um hvernig svörin verða og ef til vill birta þau rækilegustu. Fljótlegast að skrifa á þau, og öll brjef viðvíkjandi blaðinu: Bjarmi. Box 62. Reykjavík. Útgefandi: Sigurhjörn Á. (físlason (cand. theol.) öox 62. — Reykjavík. — Simi 236. Prentsmiöjan Gutenberg,

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.