Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.11.1916, Side 1

Bjarmi - 15.11.1916, Side 1
BJARMI - —= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ X. árg. Reykjavík, 15. nóveraber 1916, 21. Lbl. Sœlir eruð pjer, cr pjer eruð smánaðir fyrir nafn Krisls. (I. Pjet. 4, 14). Öfugstreymi. wÞað er hart að vera talinn heima fyrir »hilaður á sönsunum« þótt Krist- ur og biblian sje manni kærari en alt annað«. Þannig mælti ungur maður úr sveit í haust sem Ieið, og svipaðar um- kvartanir berast oss munnlega eða brjellega frá ýmsu trúuðu ungu fólki. Og það er í rauninni ekki neitt undarlegt, þólt ungum manni, sem nýlega hefir snúið sjer til Guðs, finn- ist það »hart« eða ærið óviðfeldið, þegar trúaráhugi hans er talinn »hálf- gerð geðbilun«, af fólki sem kveðst bera fulla virðingu fyrir kristindóm- inum og er einstaklega kirkjurækið eftir því sem gerist á voru landi. En það er gömul og ný reynsla, að »náttúrlegur (eða óendurfæddur) maður skilur ekki það sem Guðs anda er; því að lionutn er það heimska og hann getur ekki skilið það af því að það dæmist andlega«. (Sbr. I. Kor. 2, 14). Því miður er almenningur víða hvar á voru landi, svo ókunnugur verulegum trúaráhuga að honum hættir til að telja slíkan áhuga í ælt við öfgar og ofstæki eða geðbilun. Það er eins og fjölda fólks sje hul- ið hvílík ósamkvæmni það er, þegar foreldrar kenna börnum sínum að lesa bænir og segja þeim »að ótlast og elska Guð«, en verða svo gröm, ef eitthvað af þeim börnum veiður síðar trúræknari en foreldrarnir sjálf- ir og fá að reyna, að það er ekki fagur draumur heldur dýrðleg stað- reynd sem »kverið« vor flestra talar um á þessa leið: »Sjeum vjer rjeltlættir orðnir af Guðs náð fyrir trúna, ber lieilagur andi vitni um það hjá oss með sælu- ríkum friði hjartans, rósamri undir- gefni undir Guðs vilja og gleðiríkri fullvissu um að vjer sjeum Guðs börn og samarfar Iírists«. (Sbr. Barnalær- dómsbók Helga Hálfdánarsonar 9. kalla 109. gr.). Ef »kver«-kennararnir fleslir befðu sjálfir reynt það sem þessi grein tal- ar um, eða væru með öðrum orðum sönn börn Guðs, þá mundu þeir leggja hina mestu rækt við að sýna fram á að hjer er talað um eftirsóknarverð- asta hnoss þessa jarðlífs, hnoss, sem ekkert á skylt við geðbilun nje of- slæki, og linoss sem hver unglingur getur eignast, og alveg óþarft að eyða fyrst beslu árum æfinnar í Ijettúð og andlegu kæruleysi, ata sig synd og svívirðu, eða kafa fyrst djúp harma og sorga. — En því miður mun æði margan krislindómskennarann vanta þessa trúarreynslu, og því verður þessi grein, eins og sumar fleiri í 9. kafianum að »hálfgerðri hebresku« bæði kennurum og nemendum. Gott er þó þeim, sem síðar verða svo lán- samir að kynnast lifandi kristindómi, að koinast að raun um að þar eru

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.