Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.12.1916, Síða 10

Bjarmi - 15.12.1916, Síða 10
186 BJARMI hita lierbergið ögn, áður en hún sækti barnið, sem góðfús nágrannakona hafði tekið af lienni, á meðan hún var að þvo gólfin. Henni veitti ekki af að taka hvaða vinnu sem bauðst. Sumarkaupið var búið. IJað hafði nú ekki verið mikið. Barnsmeðlagið gjörði það að verkum. Og hún var búin að seija ílesl alt, sem hún álti fjemælt í eigu sinni. Það koslaði tár og hugarkvöl, þeg- ar hún varð að selja steinhringinn fallega, og ýmsa skartgripi, sem all- llest voru gjafir að heiman. Og nú átli hún ekkert eftir af því tægi, nema silíurbeltið sitt, seinustu jólagjöfina frá foreldrunum. Það iá enn þá i kofi’ortinu hennar. En nú liafði hún kaupanda að því, sem bauð sæmilegt verð fyrir það. Hún þurfti á pening- um að halda. Hún lauk upp kofi'ort- inu og fór að leita að heltinu. Beltið var forkunnar fagurt. Hún bar það upp að Ijósinu og brá því svo snögg- vast utan um sig, og gremjusvipur, blandinn sárri lirygð, kom á andlit liennar. Silfrið glóði í Ijósgeislanum, — það vakli ofurlítið endurskin liorf- inna jólageisla í hjarla liennar. Jólin heima! Björt, rík, glaðvær. Jólin heitna! Allsnægtir, umvafin kærleika föður og móður. Jólin heima! Ógleymanleg um alla æfi! Steinvegg- irnir í kjallarakompunni nrðu svo átakanlega herir og kaldir, en golu- þyturinn við gluggann þuldi rauna- sögur unglingsins, sem glaumurinn tældi út á brautir óláns og mæðu. Hún lagði hellið aftur á sinn slað, hjá bókunura, sem hún álli í kofiorls- lokinu. Hún leit sjaldan í þær, hafði ekki tíma til þess. þarna var nýja testamentið, fermingargjöf frá móður hennar, skraulbundið, með nafninu hennar áletruðu. Pað var langt síðan að hún hafði lilið í nýja testamenlið. Hún flelli bókinni og leit á opnuna, sem fyrst varð fyrir henni. Einkenni- legt, að það skyldi vera þessi frásaga, dæmisagan af glataða syninum, sem fór burt úr foreldrahúsunum, — só- aði fje föður síns í gjálífi og synd, alveg eins og hún, — »og liann tók að líða skort«, — það hafði liún einn- ig gjört, — »og hann gætti svina hjá borgara einum«, — hún liafði og fengið að vinna skarnverkin. — Og hann sagði við sjálfan sig: »Jeg vil taka mig upp og fara lil föður míns, og segja við hann: »Faðir minn, jeg hefi syndgað í himininn og fyrir þjer, og er ekki framar verður að heita sonur þinn«. — I’etla átti hún ógjört. Hún lagði bókina frá sjer og grjet. Langt var síðan hún hafði grátið. Hjarta hennar var orðið einna líkast kalinni jörð, sem hausthret og liagl- jel höfðu lamið án afiáts, — en lárin mýktu og vöktu þrá barnsins eftir sátt og fyrirgefning. Hún varð að öðlast fyrirgefning. Hún varpaði sjer á knje við rúmstokkinn, og andvörp hennar urðu að bæn, sem steig í hæðir til hans, sem ávalt leitar að glötuðum sonum og glötuðum dætr- um. — — »Fyrirgef oss vorar skuldir«. Hurðinni var lokið hægt upp. Ferðamaður nam staðar í dyrunum. Hann litaðist um í herberginu, en kom ekki auga á slúlkuna, sem kraup grálandi við rúmstokkinn á bak við hurðina. Honum varð slarsýnt á hí- býlin, sem einkabarnið lians ól aldur sinn í. Óvisllegt kjallaraherbergi, hús- gagnalaust, þægindalaust, með fátækt- ina í öndvegi. Hann stundi þungan og gekk inn fyrir hurðina. Hún lieyrði fótatakið og stóð upp, — var hana farið að dreyma?-----------— »Faðir hans sá hann, kendi í brjósti um hann, hljóp og fjell um háls honum og kysti hann«.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.