Bjarmi - 15.12.1916, Side 14
190
B J A R M I
f---------- -..........
Hvaðanæfa.
Ný bók cftir Skovgaard-Petersen. Hann
á svo marga vini vor á meðal sem vilja
eignast bækur hans að rett þykir að geta
þess að nú er 4. bókin með sameiginlega
nafninu: Menneskeskikkelser. Bibelske
Karakterer nýútkomin, er lnin um nýja
testam. og eru þá komnar 2 bækur um
livort testam. eftir hann. Hver bókin
kostar í góðu bandi 3 kr.
Erlendis.
»Kirkjumánuður« í Kaupmanna-
höfn. Pað hefir verið venja í Danmörku
allmörg undanfarin ár, að lialda svo-
nefndar »missónarvikur« út um alt land
á veturna. Eru þá guðsþjónustur haldnar
á hverju kvöidi 7 til 10 daga, ýmist í trú-
boðshúsi eða kirkju, eða báðum jafn-
snenima þar sem fjölment er, og 2 ræðu-
mcnn á hverju kvöldi, — oftast prestur
og leikprjedikari saman. Hafa slíkar sam-
komur vakið víða marga andlega sofandi
menn og styrkt aðra. — í fyrra tóku
áhugamenn i Höfn sig saman um að
koma svipuðum vakningasamkomum á
í höfuðborg Dana. Voru þá haldnar guðs-
þjónustur í mörgum kirkjum samtímis
kvöld eftir kvöld, í licilan mánuð. En
jafuframt tók trúað fólk að sjer í hverri
sókn að fara daglega með kristileg smá-
rit og tilkynningu um guðsþjónusturnar
til hverrar fjölskyldu innan sóknar.
Pótt mestöll vinnan væri gefin, varð þó
kostnaðurinn við þetta um 7200 kr., en
áhugafólkið ljet það fúslega í tje, og
árangurinn þótti svo góður, að í haust
var stofnað til svipaðs starfs aftur. Kirkju-
mánuðurinn hófst að þessu sinni 29.okt. og
var úti 22. f. m. Borginni var skift í 4 hluti
og prjedikað í 12 til 15 kirkjum samtímis 6
kvöld í röð. Pað voru fengnir til starfsins
um 300 ræðumenn, prestar og leikmenn.
Breska og erlenda hihlíufjelag-
ið í Lundúnum úthlutaði eða seldi tíma-
bilið ’/4 1915 til 'li 1916 yfir 11 miljónir
biblía og testamenta og einstakra bibliu-
rita. Pað verður um 1258 eintök á liverri
klukkustund að mcðaltali. — Og hafa þó
samlímis 2 önnur ensk biblíufjelög gefið
út ógrynni slikra bóka. Pað er öðru nær
en heimsófriðurinn hafi hindrað útbreiðslu
ritningarinnar. Aldrei liefir eftirspurnin
eftir henni verið meiri en einmitt nú.
Síðan áfengisbannið kom í Rúss-
landi hefir glæpum fækkað þar um 62°/o
og lögreglubrolum um 72°/o.
JTóla.liveðja.11 ÍOIO. — Pví miður eru töluvert margar prentvillur í henni.
En áður en menn dæma þær hart eru menn beðnir að muna, að enginn skildi is-
lensku i prentsmiðjunni, þar sem luin var prentuð, og að þeir sem liandritin skrif-
uðu, gátu engan þátt tekið í prófarkalestrinum. Flestar eru villurnar ýmist stafaskifti
eða orðum rangt skift við línuskil, og lesa menn það væntanlega í málið. Alveg rangt
orð er neðst á bls. 8 í slðara dálki: »samskotu dublum« fyrir »samskotadeildum«. Enn-
fremur hefir blaðið verið beðið fyrir þessar leiðrjettingar við »Söguna hans afa«:
A 3. bls. fyrri dálki 9. 1. a. n. á að standa: »og þá kvað manni líða svo vel«. —
Á tveimur stöðum er »Nú« í stað »Nei«: á 5. bls. 12. 1. a. o. og 7. bls. 17. 1. a. o. —
Á 5. bls. 20. 1. a. n. í fyrri dálki stendur: »Pað að væri jólanótt«, en á að vera: »að
það væri jólanótt«. — Á 6. bls. 15. 1. a. n.: »skitnu« í stað »skímu«.
TJtsöliiinoiiii að sögunum »A heimleið«. og »Sigríði«, sem eitthvað eiga óselt
af þeim við áramót, eru beðnir að endursenda þær með fyrstu skipsferð lil Reykja-
víkur, þar eð þær eru uppseldar hjer í bæ.
Myndlna af Höfn í Hornafirði, eftir málverki Ásgríms Jónssonar, má panta
hjá útg. Bjarma. Hún kostar 1 kr. 50 aura, og hefir selst mjög vel í Rvík. Ef borgun
fylgir pöntun, greiðir útg. burðargjald með póstum. Áreiðanlegir útsölumenn óskast.
Pelta tölubl. er prentnð 4. des, — Jólakveðjan og Bjarmi 21. og 22. tbl. í Skagafjörð, Iiúnnvalnssýslu,
og aö mestu í Múlasyslur, voru send með Goöafoss.
Útgefandi: Sigttrbjorn Á. Gtíslason (cand. theol.)
Box 62. — Reykjavík. — Simi 236.
Prentsmiðjnn Gutcnberg,