Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1917, Side 2

Bjarmi - 01.03.1917, Side 2
Ö í ARMÍ ÍJ4 hafi, og eins og hún mamma mín, og margir, henni líkir í trú, liafa kent mjer. Því að alt, sem jeg hefi til huggunar, sjálfum mjer og öðrum, í hörmum og nauðum lífs og dauða, alt, sem jeg veit eða trúi um alfull- kominn lifandi Guð, til hjálpræðis sjálfum mjer, og öðrum mönnum, alt þetta hefi jeg og veil einungis fyrir Jesúm Iírist, í honum og frá honum einum. En til þess þá að geta huggast, og hjálpast, við gleði- og lijálpræðisboð- skap Jesú Krists, þarf jeg fyrir milt leyli, að trúa og treysta á alveg sjer- stakan guðdóm hans; trúa því að hann sje Guðs eingetinn sonur. Því að annars get jeg ekki fulltregst neinu í fagnaðarboðskap hans, hve hjartans feginn sem jeg vildi. Enda veit jeg ekki til, að nokkur maður, nema sumir katólskir, þori að reiða sig á mannlegan fullkomleik og óskeikul- leik í andlegum eða leyndardómsfull- um trúarefnum. — Með trúnni á sjer- stakan, einsdœmis guðdóm frelsar- ans, stendur því eða fellur trú mín á orð hans og verk; og þar með líka huggunin mín og hjálpin mín í liörm- ungum lífsins og dauðans. í orði Krists og öllu verki, eins og frá er sagt af þeim, sem fyrstir voru frá upphafi með honum, liefi jeg líka fundið þenna sjerstaka guðdóm, sem einn getur svalað sálarþorstanum eftir þeim lifanda Guði. Eitt hefir líka altaf verið efunar- laust fyrir mjer, og eftir því, sem jeg best veit, einnig fyrir flestum öðrum; en það er, að Guðssonurinn, Jesús frá Nazaret, er einsdœmispersóna í heiminum. Og fyrst svo er, hvað er þá trúlegra en það, sem vitnað er svo sterklega af fyrstu vottum hans, að komu hans í heiminn, veru hans í lieiminum, og hvarfi hans úr heim- inum, hafi fylgt einnig ýms önnur einsdœmi? Jeg á hjer við »táknin«, undrin og stórmerkin, sem við Krist eru tengd og kend. Varla þekki jeg þó nokkra manneskju roskna og ráðna, sem er alveg laus við, að trúa og bú- ast við einhverjum jyrirboðum og tákn- um á undan, samfara og á efiir þýð- ingar miklum stórtíðindum og viðburð- um. Og enn í dag eru ýmsir að segja frá ýmsu slíku, sem gerist nú á tím- um. Hví þá ekki miklu framar, að trúa slíku i sambandi við hið þýð- ingarmesta, stærsta og besta, sem við hefir borið í veröldinni? Jeg fyrir mitt leyti, má ekki heldur missa trúna á »táknin og stórmerkin«, sem fyrstu vottarnir segja frá, í sambandi við Krist; því að fari svo, þá bilar óðara trú mín á einsdœmis guðdóm hans, og á kenningar lians um leið; og þá er líka guðstrúin mín brolin, og guðs- þörfin og þráin mín finnur hvergi fullnægju. Að vísu skil jeg ekki þetta fremur en margt annað í trúarefnum; en það fullnægir eitt best minni sál og minu hjarta; og skynsemi min og innri reynsla finnur ekkert atmað jafnsatt og trúverðugt. En alt lífið, og öll tilveran, jafnvel þessi sýnilega og átakanlega, er líka full af leyndardómum; i öllu, og bak við alt, sem sjest og finst, er eitt- hvað, sem ekki verður enn skilið og skýrt, eða með vissu vitað um eðli þess og uppruna. En sje svo í liinni jarðnesku til- veru, hversu mikiu framar þá í hinni himnesku, í hinum andlegu og eilífu efnum. Jeg trúi því þess vegna inni- lega, að »enginn þekkir föðurinn«, nje getur sagt oss áreiðanlega af hon- um, nema sá sonurinn einn, sem gat sagt og sagði líka: »Jeg og faðirinn, við erum eitt«, og: »Enginn kemst til föðursins, nema fyrir mig«. — Og jeg trúi því jafn innilega, að »enginn

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.