Bjarmi - 01.03.1917, Side 4
36
BJARMI
t,
Rögnvaldur Ólafsson
húsameistari.
(F. 5. des. 1874. — D. 14. febr. 1917.)
Kirkja vor misti þar góðan Iiðs-
mann er berklaveikin lagði Röguvald
Ólafsson í gröfina. Þótt hann hætti
guðfræðisnámi eftir eitt ár, þá hætti
liann ekki að unna kirkju lands vors.
Þær sýna það kirkj-
urnar víðsvegar um
land, sem hann
gerði uppdrætti
að, og mundu
sýna það betur, ef
meira fje hefði ver-
ið fyrir hendi. —
Og trúmálum unni
hann, eins og með-
al annars sást á
því hvað hann
hlynti að liúslestr-
um á Heilsuhælinu
og hvað hann bar
veikindi sín með
mikilli krislilegri
hugprýði.
Slarfsár hans
voru alt of fá frá
okkar sjónarmiði.
Það var svo margl
að bæta og laga í kirkjusmíðum og
húsagerð og vansjeð hvernig skarðið
verður fylt.
Vinsæll var Rögnvaldur með af-
brigðum. Jeg heyrði aldrei kuldalega
á hann minst, en hitt kom oft í ljós
að öllum sem þektu hann, þótti vænl
um hann. — Það er ekkert »Iíkræðu
skjall«, þótt öll blöðin hæli Rögn-
valdi látnum. — »Hann var svo góð-
ur drengur að þú getur ekki skrifað
of hlýlega um hann«, sagði málkunn-
ingi hans við mig
nýlega, og er jeg því
fyllilega samþykk-
ur.
Foreldrar Rögn-
valds voru Ólafur
bóndi Sacharíasson
á Ytrihúsum í Dýra-
firði og kona hans
Verónika Jónsdótt-
ir. Er móðir hans
enn á lííi og er hjá
syni sínum Jóni
trjesmið á ísafirði.
Rögnvaldur út-
skrifaðist úr latínu-
skólanum árið 1900
með ágætis eink-
unn, og sömu eink-
unn fjekk liann við
heimspekispróf á
prestaskólanum ári
síðar. Þá fór hann til Kaupmanna-
liafnar að læra byggingarlist en varð
að hverfa lieim aflur heilsunnar vegna
eftir þriggja ára nám. Upp frá því
var hann ráðunautur stjórnarinnar í
húsabygginga málum, og stundaði það
starf eflir því sein heilsan frekast leyfði.
S. A. Gíslason.