Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 6
38 B JARMI verð jeg hamingjusamur fgr en jeg finn Helgun!« Hann lagði á stað út úr bænum, og gekk upp hæðina helgu. Hann kraup við krossinn. Þar sat Helgun. Maðurinn leit upp á hinn kross- festa. Kærleikur Krists fylti hjarta hans mað þakklæti og tilbeiðslu. Þá reis Helgun á fætur, gekk til mannsins sem kraup, og sagði hljóð- lega: »Jeg hefi beðið eftir þjer«. »Beðið eftir mjer«? spurði maður- inn undrandi. »Hvar?« »Hjer við kross Krists, hjer geturðu ávalt fundið mig«. — — Þær sitja þar enn systurnar: Iðrun, Syndafyrirgefning og Helgun og bíða. — Bíða þær eftir þjer? — (K. ísl.) Þú minn Drottinn þyrnum krýndi. Hann var málari. Hann var van- trúaður — konan hans var sann- kristin. Hann elskaði hana, — hún elskaði hann, en einn elskaði hún enn heittar — því veitti hann eftir- tekt — það var maðurinn frá Gol- gata, frelsarinn Jesús Kristur. Hún vildi hlýða á Guðs orð — hann fylgdist með hennar vegna. Hún las fyrir hann, talaði við hann um frelsara sinn — hann hlustaði á — brosti að því. Hún varð hljóðari og íölari, hann veitti þvi ekki eftirtekt. — Hún lá á banasænginni — hann sat hjá rúm- inu. Á dauðastundinni hvíldi höfuð hennar upp við brjóst hans, augna- tillit hennar, hið síðasta deyjandi augnatillit, var fest á myndina, sem var yfir rúminu, myndina af hinum krossfesta. — Mörg ár liðu. Hann gat aldrei gleymt henni. Hann hafði reynt það, — hafði leitað gleymskunnar í skemtunum — en það tókst ekki! Nú leitaði hann gleymskunnar í vinnu sinni. Hann sat nú og vann að altarismynd, sem átli að vera til nýju kirkjunnar í bænum. Hún átti að tákna »Krístur fyrir ráði Gyðinga«. Hann hafði — til þess að geta málað það nákvæm- lega og rjett — lesið nýjatestamentið hennar frá upphafi til enda — nýja- testamentið hennar með öllum undir- strikuðu orðunum. Málverkið var bráðum búið — andlitin þrútin af hatri, — slægir og drambsamir Fari- sear — sællifir Sadúsear — aðeins eitt vantaði: myndina af frelsaranum. Hann mintist eins atviks frá því er hún lifði. Hann hafði verið beðinn að mála mynd af krossfestingunni. Hann mundi hvernig hún í það sinn lagði hendina á arm hans, — kviða- full og biðjandi leit hún í augu hans — eins og hún ein gat litið. — »Gerðu það ekki«, hvíslaði hún. »Hvers vegna ekki?« spurði hann. »Sá einn, sem trúir á hann, getur málað hann«. Hann hafði hlegið að henni í það sinn. Nú hló hann ekki. Það var eins og hönd hennar legðist á arm hans, hvert sinn, sem hann ætlaði að byrja myndina af frelsaranum; það var sem hann heyrði hana hvísla: »Gerðu það ekki. Gerðu það ekki!« En hann var búinn að taka verkið að sjer, og það varð þó að komast af. Tíminn leið. Bara að hann hefði aldrei byrjað á því. Hann málaði — fögur mannsmynd fór að koma í Ijós undan liendi hans, — en andlitið, andlitið! Nei, »gjörðu það ekki« hljóm- aði þá. Hann gat það ekki — hann sem trúði ekki á hann. Dag eftir dag, — nótt eftir nótt heyrðist hann ganga aftur og fram, fram og aftur í vinnu- stofu sinni; en það var eilt sem engin manneskja heyrði, hvað fór á milli hans og þess sem hann hugsaði um, hans og Guðs hans, Guðs konunnar

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.