Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1918, Side 9

Bjarmi - 01.01.1918, Side 9
B JARMI 7 sínu, og svo veit fólkið ekki, liverju á að trúa. Betta var gamla fólkið, kynslóðin sem lifði í ungdæmi mínu, laustvið; þar átti engin efablendni sjer stað; hitt mátti heldur segja, að trúin væri dauð, dauð án verkanna, köld játning með vörunum, sem oft varð að beinni hræsni og skin- lielgi. Nýja guðfræðin, livað sem um hana er að segja að öðru leyti, hefir áreiðan- lega ruglað trúarmeðvitund almennings og sannleiks sannfæringu; þarf sjálfsagt langt að bíða eftir fastri niðurstöðu eða óbifanlegri fótfestu um það, liver liafi rjettast að mæla eða livað sje sannleikur. Athvarf fiestra, þegar á hólminn kemur, þykist jeg þó sannfærður um, að sje hið eilífa hellubjarg, Jesús Kristur, og lengi mega þeir vera að, þangað til þeim tekst að slíta alt samband sálnanna á timum neyðar og þrengingar við mannkynsfrels- arann, og það er min von, að lengi muni lifa í kolunum trúarsæðið, sem bestu sálmaskáldin okkar hafa sáð i hjörtun. Unglingurinn lærir nú yfirleitt miklu Heiri sálma en áður átti sjer stað, og »Qvo est imbuta recens servabit odorem testa diu«l.) Guttonmir Vigfússön. Raddir almennings. ---- ----ii'-.-:— I. Ur brjefi 28/«)- f*-á trúræknum bónda: Ekki get jeg að því gert. að mjer kem- ur ávalt i hug er jeg minnist guðspek- innar og andatrúarinnar orð Jesú lijá Matt. 24, 26. — Reir munu fullyrða að í þeirra lærdómum sje eins gott og betra hjálpræði en í Jesú Ivristi. Mjer finst og að orðin um »eyðimörku« eigi býsna vel heima um Thibet og Himalaya; þaðan á »Theosofian« trúi jeg að stafa, og sumir vænta þaðan ógn mikils fræðara og frels- ara (þótt ekki sje í kristilegum skihiingi). Um launkofa Spiritista þarf ekki að tala, þá kannast allir við að nafni. Jafn- vel heyrist nú að Spiritistar sjeu farnir 1) wSmekkurinn sú sem kemst i ker keiminn lengi eftir ber«. að lækna meinsemdir manna, og mun það ekki þykja slök meðmæli með þeirri »Religion«. En eitthvað verður það að vera meir en minna villandi sem jafnvel útvaldir, ef unt væri, ljeti villast af. Dýrið af jörðunni — falsspám. — hefir líka tvö lambshorn. Peir eru lika til sem halda hæst á lofti umburðarlyndinu og kær- leikanum, hvað sem nú yrði, ef þeir yrðu í meiri hluta. Hjegómagirnd og forvitni lield jeg sje lielsta orsök þess að menn aðhyllasl þessi dularfullu efni, en ekki sönn trúarþörf nema þá hjá einstaka manni, en sem þá vantar djúpa synda-meðvitund«. II. Hann hafði nýlega snúið sjer til Drott- ins, þegar við kvöddumst í vor, og var gagntekinn af gleði yfir ástgjöfum Drott- ins. Bjóst liann við, eins og títt er um nýafturhorfna menn, að allflestir m. k. sinir vinir og kunningjar hlytu að opna lijarta sitt fyrir Kristi jafnskjótt og þeim væri sagt frá afturhvarfi og afleiðingum þess, og mundu lusir viija kynna sjer þau efni sem best. — En reynslan hefir orðið önnur. Nú skrifar hann (3. nóv.) meðal ann- ars: »í vor, þegar jeg var þarna syðra hjá ykkur, þá gerði jeg mjer góðar vonir og háar hugmyndir um það, að jeg gæti gert svolítið til eflingar guðsríkis, sem það að útbreiða hans heilaga orð á með- al kunningja minna og fjelaga, en raunin bar þess vitni, að jeg er ekki þeim starfa vaxinn, þar sem árangurinn af iðju minni hefir ekki orðið annar en sá, er jeg nefndi; en það er samt ekki fyrir það að jeg hafi ekki reynt að starfa, heldur er það af því, að Satan hefir náð tangar- haldi á svo mörgum, hann hefir lokað augum og eyrum þeirra fyrir öllu því sem er gott og fagurt og Guði þóknanTegt og elur þá upp i því sem er gagnstætt Guðs vilja. — Já, hið andlega líf manna er mjög bágborið hjer um slóðir. — Margir eru andlega sofandi og hugsa elcki um annað en munn og maga, segja alla velferð og líðan manna byggjast á þvi, að raka sam- an nógum auð, og njóta lífsins á meðan hægt sje; og enn eru aðrir sem elcki trúa á neitt líf eftir dauðann og afneita biblí- unni og Kristi. — Svo úir lijer og grúir

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.